Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1967, Side 40

Frjáls verslun - 01.08.1967, Side 40
FRJÁLS VERZLUN 4D Hópferðir Einstaklingsferðir Farmiðasala Kaupstefnu- og sýningaþjónusta Orugg og góð ferðaþjónusta FERDASKRIFSTOFAN SAGA INGÓLFSSTRÆTI, REYKJAVÍK SÍMAR 17600 OG 17560 SKIPAGÖTU 13, AKUREYRI SÍMI 12950 Vélar - tækni/ Gataspjöld: túlkun mann- legrar hugsunar fyrir vélræna úrvinnslu tölvunnar Bandaríska raanntalsskrifstofan byrjaði fyrst að nota gataspjöld. Má rekja rætur þessarar nýjungar aftur til ársins 1880, en það ár fór tíu ára manntal fram, lögum sam- kvæmt. Um þetta leyti varð mikil mannfjölgun í Bandaríkjunum vegna fjölda innflytjenda og inn- limunar nýrra ríkja. Krafðist manntalið því mikillar vinnu, þar eð upplýsingar um hvern ein- stakan íbúa voru handskrifaðar á sérstakt spjald. Spjöldunum þurfti síðan að raða niður eftir stafrófs- röð, atvinnu, aldri, lögheimili o. fl. Þar næst voru spjöldin talin, og var nauðsynlegt að raða þeim aftur og aftur, unz telja mátti, að kerfið væri sem réttast. Þannig unnu menn úr 50 milljónum spjalda. Líkurnar á villum voru miklar, þrátt fyrir allt erfiðið. Á árinu 1885 var lokið við að færa manntalið frá 1880 inn á spjöld, og var það þá tilbúið til röðunar. Höfðu þá liðið fimm ár frá því, að það var tekið, og var mönnum nú ljóst að beita yrði nýjum aðferðum, ef fullgera mætti þetta manntal, áður en hið næsta hæfist. VÍSIR AÐ GATASPJÖLDUM. Árið 1887 var vinnan við mann- talskýrslurnar frá 1880 komin á lokastig. Um það leyti hafði einn af reiknimeisturum manntalsstofn- unarinnar, dr. Hermann Hollerith, gert frumdrög að úrvinnslu gagna næsta manntals. Aðferð hans var sú, að skrá upplýsingar þversum á pappírs- strimla. V o r u upplýsingarnar SKÝRSLUTÆKNI IBM Frjáls verzlun mun framvegis birta greinar eða greinaflokka um ýmis efni, er varða skrif- stofustjórn. Fyrsti greinaflokkurinn fjallar um IBM-skrifstofuvélatœknina, sem óðum ryður sér til rúms. Hefur of lítið verið ritað um þetta efni á íslenzku. Alls eru greinarnar fimm í þessum flokki, en hin fyrsta tekur til meðferðar forsögu þessa kerfis og fjallar um það almennt.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.