Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1967, Qupperneq 14

Frjáls verslun - 01.08.1967, Qupperneq 14
14 F^JÁLS VERZLUN arstefnu harðlega. Þótti hon- um illt, ef sú stefna ætti eftir að komast á í Kína. Taldi hann- að hún væri fyrsta skrefið í átt til kapitalisma. Maó hélt því fram, að þeir, sem vildu breytingar á kínverskri framleiðslustjórn, væru í raun- inni svikarar. Endurskoðunar- stefnan leiddi til kapítalisma, og ef atvinnuvegimir væru orðnir kapitalískir, þá gæti kommúniskt stjórnarfar ekki þrifizt. Ef áfram- haldandi byltingarkommúnismi ætti að ríkja, þá mætti ekki þola endurskoðunarstefnu í n e i n n i mynd. Viðbrögð. Viðbrögð Maós urðu þau, að hann leitaði til æskunn- ar, sem ekki var k u n n u g stjórnarháttum fyrir byltinguna, en var hins vegar gegnsýrð af anda og hugsjónum kommún- ismans. Skyldi þetta fólk nú opin- bera Kínverjum hugsun Maós og uppræta endurskoðunarstefnuna. Þess gætti fljótt, að Maó hafði ekki gert sér grein fyrir raun- verulegum styrkleika andskota sinna. Brugðust þeir hart við og veittu kröftuga mótspyrnu. Einnig varð það Ijóst. að með því að nota Rauðu varðliðana hafði Maó leyst afl úr læðingi, sem hann réð ekki við. Bardttan. Andstæðingar Maós voru ekki alveg á því að gef- ast upp baráttulaust. Voru marg- ir þeirra valdamiklir, enda er Kína skipt niður í mörg stjórnunar- svæði, þar sem miðstjórnin hefur í rauninni lítið að segja. Þar við bætist, að þeir réðu yfir fram- leiðslutækjunum. Þessir menn voru ekki alveg á því að gleypa það hrátt, að tilvitnanir úr ritum Maós væru eins konar töfraþula, sem sópaði öllum erfið- leikum burt. Baráttan stóð sem sagt milli hinna hörðu flokksmanna, sem vildu áframhaldandi byltingar- kommúnisma, — og hinna, er vildu fara hægar í sakirnar og byrja að „njóta ávaxta byltingar- innar.“ Gerðust ýmsar greinir með þessum andstæðu fylkingum. en þó mun stuðningur hersins við Maó hafa ráðið úrslitum. Hefur Maó því haft betur, að því er séð verður. EFTIR I)PPGJÖRIÐ. Sú innanlandsbarátta. sem nú hefur átt sér stað í Kína, hefur stórveikt stjórn landsins og opin- berað ýmsa veikleika, er áður voru ekki kunnir. Baráttan hefur leikið landið illa, og er það nánast flak- andi í sárum. Tekur langan tíma að græða þau. Brœðrabylta. Þó að Maó hafi nú haft betur, þá er styrkur hans ekki sá, að hann komi fram öllum sínum áformum. Óvinir hans eru enn sterkir, og hann hefur án efa fundið, að hættulegt er að vanmeta þá. Utcmríkisstefna Kínverja verður vafalaust einangrunarkennd fyrst í stað, og endurskoðunarstefna á langt í land enn þá. Maó og fylgis- menn hans sjá fyrir því. En upp- gjörið hefur í rauninni einungis veikt Maó; trúin á veldi hans hef- ur minnkað og óánægjuraddir hafa kveðið sér hljóðs. Fram- tíð Kína er þess vegna jafn óráðin og fyrr. Maó hefur að vísu lagt andstæðinga sína að velli í orði, enda ekki við öðru að búast af heimsmethafa, — en einhvern veginn finnst það á, að þessum leik hafi frekar lokið með bræðra- byltu en algjörum sigri. TIZKAN: IUAO GEFLR LINLNA E n g i n n tízkukóngur hefur nokkru sinni haft jafnmikil áhrif á klæðaburð manna og Mao formaður, þegar hann lét, fyrir tæpum tuttugu árum síðan, 600 milljónir Kínverja klæðast sams konar klæðnaði: bláum vinnuföt- um. Vegna múgsvipsins, sem þjóðin hlaut af þessu, hefur hún oft síðan verið nefnd „bláu maur- arnir". Og þegar formaðurinn sendi 20 milljónir „ung-maura“ af stað í ólívugrænum búningi, sem rauða varðliða, til þátttöku i menning- arbyltingunni, fóru tízkuhús í hinum kapítaliska heimi að taka við sér. Frönsk og þýzk tízkuhús eru farin að senda frá sér „varð- liða-dragtir“ og „Mao-smókinga,“ — og um brezku Carnaby Street- húsin fór Mao-línan sem eldur í sinu og þaðan sem leið liggur í allar unglinga-tízkuverzlanir um allan hinn vestræna heim. „Peking-jakkinn", alfatnaður í bláu, með viðeigandi húfu, kostar í Þýzkalandi um 60 mörk, og í Bretlandi er hægt að fá fyrir átta til tuttugu pund „maura-alfatn- að“ í mismunandi litum. Og yndislega rauða dragt í verka- lýðs-stíl, sem heitir einfaldlega „Austrið er rautt“. Sammy Davis, Brigitte Bardot, fyrirsætur: „The Mao Look“.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.