Frjáls verslun - 01.08.1967, Qupperneq 23
FRJÁLS VERZLUN
23
„Ilmurinn er indæll og bragðið eftir ])ví.“ Hér ræða forystunienn
Ó. Johnson & Kaaber h/f vandamál dagsins yfir kaffibolla. Auðséð
er þó, að engin alvarleg vandamál steðja að. Frá vinstri: Rafn Johnson,
Ólafur Ó. Johnson, Gunnar Steingrimsson, fulltrúi, og Jóhann Miiller,
skrifstofustjóri.
ÓLAFUR: Ekki er ég spámaður,
en held þó, að fyrirtækin hljóti
að stækka. Það er að mörgu leyti
óhagkvæmt að reka mörg og smá
fyrirtæki.
Lítum t. d. á þetta fyrirtæki
hér. Það mun víst vera talið með
stærri fyrirtækjum sinnar teg-
undar. En það er samt sem áður
ekki stærra en svo, að við getum
ekki leyft okkur að taka upp
tölvu-kerfi. Ef ég hefði greiðari
aðgang að rekstrarfjármagni,
treysti ég mér til þess að tvö-
falda veltuna. Og með aukinni
veltu gætum við tekið upp þetta
kerfi og sparað þannig vinnuafl
og peninga. Ekki má heldur
gleyma því, að nákvæmari upp-
lýsingar fengjust þannig, svo að
reksturinn yrði hagkvæmari.
F.V.: Hafa fyrirtœki yöar ein-
hverjar nýjungar á prjónunum?
ÓLAFUR: Eins og þér vitið
kannski, höfum við nýlega byggt
nýja kaffibrennslu og hafið fram-
leiðslu á fleiri kaffitegundum.
Þetta hefur verið mikil fjárfest-
ing og nóg í bili, svo að ekki er
að vænta stórtíðinda á næstunni.
F.V.: Nú hafið bér starfaS í
viðskiptalífinu í ein fimmtán ár.
EruS þér ánœgður með þennan
tíma?
ÓLAFUR: Ekki get ég sagt
annað en ég sé bærilega ánægður.
Nei, ég held ég vildi varla skipta
um starf. Þetta hefur verið gott
að mörgu leyti, þó að starf kaup-
sýslumannsins sé kannski ekki
alltaf eins auðvelt og sumir vilja
vera láta.
F.V.: Viljið þér taka eitthvað
fram að lokum?
ÓLAFUR: Jú, ég vil þakka öll-
um samstarfsmönnum minumfyr-
ir samvinnuna á undanförnum
árum. Reksturinn hjá fyrirtæk-
inu hefur gengið vel, en slíkt er
ekki sízt að þakka því ágæta
fólki, er hjá því starfar. Einn
maður getur ekki gert allt, held-
ur fer velgengni þess fyrirtækis,
er hann stjórnar, fyrst og fremst
eftir þeim, er með honum vinna.
Ég hef verið heppinn með sam-
starfsfólk og vil þakka því fyrir
hið liðna.
-K
Er þess getið á öðrum stað. Má þar
nefna byggingu skrifstofuhúsnæð-
is við Sætún, byggingu kaffi-
brennslu, svo og stofnun tveggja
nýrra fyrirtækja: Heimilistækja
s/f árið 1962 og Dranga h/f 1963.
Alls eru fyrirtækin fimm, en
hafa að miklu leyti sameigínlegan
rekstur, þó að öllu fremur mætti
segja, að um deildir sé að ræða
vegna hinna nánu tengsla.
Við stjórnun fyrirtækjanna
hefur verið farið inn á þá braut
að láta hvern mann bera ábyrgð
að vissu marki, en verða síðan að
standa fyrir máli sínu gagnvart
forstjóranum.
Önnur störf. Þó að Ólafur hafi
ærið nóg á sinni könnu, þar sem
er stjórnun fimm fyrirtækja, fæst
hann samt sem áður við ýmislegt
annað. Þannig er hann umboðs-
maður Confederation of British
Industries. Þá situr hann og
í stjórn ýmissa fyrirtækja. — Og
ekki má gleyma því, að maðurinn
er félagslyndur og tekur virkan
þátt í ýmiss konar félagsstarfsemi.
Hefur hann verið formaður Junior
Chamber of Commerce og er nú
sem stendur formaður Lions-
klúbbsins Baldurs.
Ættu öll þessi störf að sanna,
að maðurinn er ekki iðjulaus.
MAÐURINN.
Ólafur er maður á bezta aldri,
36 ára gamall. Gæti hann vel
verið yngri eftir útliti að dæma,
enda er hann mun grennri og
spengilegri en títt er um forstjóra
hérlendis. Ber hann þar mót
bandarískar líkamsmenntar og
herskóladvalar.
Maðurinn er samvinnuþýður og
hið mesta ljúfmenni í framkomu,
en á þó til að verða harður, ef móti
honum er gert. Er hann vel látinn
af starfsfólki sínu.
Ólafur er maður félagslyndur,
gæddur miklum leikhæfileikum,
og þykir skemmtilegur í samkvæm-
um. Hann fæst og mikið við frí-
merkjasöfnun. Auk þess er hann
bridgemaður töluverður, svo ekki
sé minnst á laxveiðar. Hins vegar á
bókalestur ekki mjög mikil ítök í
honum, enda tími lítill til slíks.
Hann kvæntist árið 1954. Er
kona hans Guðrún Gunnlaugs-
dóttir. Hefur þeim hjónunum orð-
ið fjögurra barna apðið.