Frjáls verslun - 01.08.1967, Side 36
36
FRJÁLS VERZLUN
Iðnaður/
„Aðild að EFTA mundi
veikja samningsaðstöðu
V -J& 4
F.V.: Ekki þarl að fjölyrSa um
þaS, að miklar deilur hafa átt
sér staS um iSnaSarmálin. Þa3
er sem menn skiptist nokkuS í
tvo hópa: Þann hópinn, sem tel-
ur, að iðnaðurinn njóti nú þegar
nœgilegrar vemdar, — og svo
hinn, sem er þess fullviss, að iðn-
aðurinn sé á heljarþröminni og
Ieggist hreinlega niður, ef ekki
verður að gert.
Hver er yðar skoðun á þess-
um málum?
DAVÍÐ: Til þessaðsvaraþessari
spurningu þarf fyrst að reyna að
gera sér grein fyrir því, í hversu
margar gjörólíkar greinar iðnað-
urrinn skiptist, og er mjög mis-
munandi hvers eðlis verndinerog
hversu mikil hún er. Ýmsar teg’
undir iðnaðar njóta svotilalgjörr-
ar náttúrulegrar verndar, t. d.ým-
iss konar þjónustuiðnaður eins og
bifreiðaviðgerðir o. fl. því um
líkt. Andstæða við það er t. d.
margs konar sjávarafurðaiðnaður,
sem einkum miðar framleiðslu
sína við útflutning, en eins og
kunnugt er hafa ýmsar greinar
þess iðnaðar átt í miklum erfið-
leikum undanfarið og hafa jafn-
vel þegið styrk af hinu opinbera.
okkar við EBE“
-rætt við
Davíð Sch. Thorsteinsson
um erfiðleika iðnaðarins
og úrræði til bóta
- Fríverzlunarbandalagið -
Efnahagsbandalagið o. fl.
Enn fremur eru starfræktar
hér ótal tegundir iðnaðar, sem
standa í beinni samkeppni við er-
lenda iðnaðarframleiðslu á innan-
landsmarkaði, ótollverndaðar eða
lítt tollverndaðar; þar má t. d.
nefna skipasmíði og veiðarfæra-
gerð, en þessar iðngreinar eiga
mjög í vök að verjast, þrátt fyrir
markað, sem í þessu tilviki er
mjög stór.
Svo er hinn almenni neyzlu-
vöruiðnaður, og þykist ég vita, að
með spurningunni sé einkum átt
við hann, en eins og kunnugt er,
starfar mikill hluti þjóðarinnar
við þá grein iðnaðarins. Ymsar
greinar neyzluvöruiðnaðarins
njóta beinnar lögverndar, þ. e. a.
s. að innflutningur er nú bann-
aður á hliðstæðum erlendum
vörutegundum, eins og t. d. á
iðnaðarvörum úr landbúnaðaraf-
urðum, svo sem smjöri, smjörlíki,
ostum, kaffi o. fl. Aðrar greinar
eins og t. d. öl- og gosdrykkja-
gerð, plastumbúða- og dósagerð
njóta verulegrar náttúrulegrar
verndar vegna flutningskostnaðar
á hliðstæðum erlendum vöruteg-
undum, en mikill hluti neyzlu-
vöruiðnaðarins stendur nú í
harðri samkeppni við innfluttar
erlendar iðnaðarvörur, og hefur
orðið samdráttur í ýmsum grein-
um hans, þrátt fyrir tollvernd þá,
sem ýmsir aðilar álíta að nægja
ætti til verndar honum.
Ég vil benda á það, að skrán-
ing krónunnar hefur að sjálf-
sögðu mjög mikla þýðingu, þegar
rætt er um tollvernd og það, að
kaupgjald hér á landi hefur meir
en tvöfaldazt, síðan gengi krón-
unnar var síðast breytt, og á sú
þróun að mínu áliti hvað mestan
þátt í núverandi erfiðleikum iðn-
aðarins. Það er álit mitt, að iðn-
aður, sem einkum selur fram-
leiðslu sína á hinum litla innan-
landsmarkaði, muni næstu ára-
tugina a. m. k. eiga mjög erfitt
með að keppa við innflutning full-
unninna iðnaðarvara, án toll-
verndar, og þá einkum af eftir-
farandi ástæðum:
1. Smæð markaðarins, sem
veldur því, að ekki er hægt
að framleiða nema tiltölu-
lega lítið magn af hverri
vörutegund og sjaldnast er
hægt að koma við sjálf-
virkni í stórum stíl, þannig
að einingarverð hlýtur að
verða hátt.
2. Stærð landsins og kostnaður
við að halda sem mestu af
því í byggð, en þetta veldur
að sjálfsögðu háu kaup-
gjaldi.
3. Harðbýli landsins, sem or-
sakar mjög hátt verð land-
búnaðarafurða og þarafleið-
andi hátt kaupgjald.
4. Húsnæðisverð, sem er að
sjálfsögðu hátt í okkar lofts-
lagi.
Mitt álit er því, að ef haldast
á byggð í landinu og nægileg at-
vinna handa ört vaxandi þjóð
okkar, þurfi að vernda íslenzka
neyzluvöruiðnaðinn næstu ára-
tugina eða a. m. k. þangað til
fólksfjöldinn í landinu er kom-
inn yfir eina milljón.
Til þess að koma í veg fyrir at-
vinnuleysi hér á landi í náinni
framtíð, álít ég m. a. nauðsynlegt,
að nú þegar verði felldir niður
tollar af hráefnum til iðnaðar,
svo og tollar af öllum vélum og
tækjum til iðnaðar.
F.V.: Segjum nú sem svo, aS
iðnaðurinn nyti þeirrar tollvemd-
ar, sem hann nýtur nú, og fengi
síðan niður felldan toll á hráefni