Frjáls verslun - 01.08.1967, Blaðsíða 38
3B
auka viðskipti okkar við Banda-
ríkin, þar sem við höfum mjög
hagstæðan tollasamning og greiða
þá tolla, sem hafta- og einangrun-
arbandalögin í Vestur-Evrópu
gera okkur að greiða. Það er rétt,
að þeir tollar munu skerða lífs-
kjör þjóðarinnar, en þó tel ég, að
allir íslendingar kjósi fremur
frelsi og sjálfstæði en að dansa
í kringum gullkálfinn.
F.V.: Helur þjóðin efni á því
aS standa utan við þessi banda-
lög?
DAVÍÐ: Ef sjálfstæður íslenzk-
ur atvinnurekstur leggst niður að
verulegu leyti, skulum við ekki
taia um þjóð, því að íslenzk þjóð
án íslenzks atvinnulífs er ekki
íslenzk þjóð, heldur þjónustulýð-
ur útlendinga.
F.V.: Ber þá að skilja þessi
ummœli yðar svo, að þér séuð á
móti erlendri fjárfestingu hér-
lendis og stóriðju á íslandi?
DAVÍÐ: Nei, þvert á móti. Ég
álít, að nauðsynlegt sé að reyna
að auka stöðugleika íslenzks efna-
hagslífs, og stórfyrirtæki, sem
nota íslenzk hráefni eða íslenzka
orku til framleiðslu sinnar, eru
mjög vel til þess fallin að örva
þá þróun, auk þess sem þau veita
mörgum íslendingum atvinnu.
Við skulum gera okkur grein
fyrir því, að ísland er talið með-
al vanþróaðra landa sökum þess,
hve iðnaðurinn er enn lítt þróað-
ur, og það hlýtur ávallt að vera
eitt af aðalverkefnum hverrar
ríkisstjórnar að stuðla að því, að
næg atvinna sé í landinu og að
sjá um, að jafnvægi haldist íefna-
hagslífinu.
Stofnun stórra iðnfyrirtækja
útheimtir mikið fé, meira fé en
fátæk og fámenn þjóð eins og
íslendingar geta lagt fram, og
mikið öryggi er að því, að mark-
aður sé tryggður fyrir framleiðsl-
una; því álít ég eðlilegt, aðhöfðsé
samvinna við útlendinga, meðan
slíkur iðnaður er byggður upp.
Það er álitið, að Islendingar
verði tvöfalt fleiri en nú um alda-
mótin og um milljón eftir tæp
hundrað ár. Ég spyr: Hvaða at-
vinnuvegur annar en iðnaður í
einhverri mynd getur veitt öllu
þessu fólki atvinnu?
Framleiðni í landbúnaði eykst
vonandi, svo að ekki þarf að
fjölga starfsmönnum þar, ogsömu
sögu er að segja um fiskveiðarn-
ar. Ekki getur heldur allur þessi
fjöldi haft framfæri sitt af verzl-
un eða þjónustustörfum. Nei, við
þurfum meiri iðnað, meiri iðnað
úr innlendum hráefnum, meiri
iðnað, sem grundvallist á orku
landsins og meiri iðnað úr inn-
fluttum hráefnum, og þá með út-
flutning slíkra framleiðsluvara
fyrir augum.
F.V.: Þér nefnduð útflutning
iðnaSarvara úr innfluttum hrá-
efnum. GetiS þér skýrt nánar,
hvað þér eigið við?
DAVÍÐ: Eitt af því, sem ég álít,
að við þyrftum að flytja út, er
hugvit og smekkvísi. Framleiða
eitthvað til útflutnings, sem stór-
þjóðirnar framleiða ekki. Lítum
t. d. á útflutning Dana á ýmsum
iðnaðarvörum, húsgögnum, silfur-
munum o. s. frv. Hráefnin eru
flutt inn til Danmerkur, en það
er hin frábæra danska smekkvísi
og vöruvöndun, sem hefur gert
þeim kleift að flytja út dýrar,
fyrsta flokks vörur í samkeppni
við stórþjóðir heimsins.
Ég álít, að ef vel væri leitað,
þá fyrirfyndust hér á íslandi
sambærilegir formskapendur og
hagleiksmenn, og því álít ég
brýna nauðsyn á því, að hér verði
sett á stofn „Design Center“,
„hönnunar-miðstöð“, eins og það
hefur verið þýtt, það er að segja
sýningarsalur, þar sem bezta ís-
lenzka iðnaðarframleiðslan væri
til sýnis allt árið, því að slíkstofn-
un mundi vafalaust hafa örvandi
áhrif á íslenzka hönnun eða form-
sköpun, og enn fremur auðvelda
útlendingum leitina að góðum
íslenzkum vörum.
F.V.: ViliiS þér bœta einhverju
við að lokum?
DAVÍÐ: Ég vil taka það fram,
að ég álít brýna nauðsyn á því,
að endanleg ákvörðun verði tek-
in um EFTA-vandamálið, þannig
að menn geti hagað framtíðar-
áætlunum og fjárfestingum sínum
í samræmi við niðurstöðuna.
Enn fremur vil ég bæta því við,
að ég trúi á hugvit og framtak
einstaklingsins, og ef löggjafinn
hlúir að og aðstoðar íslenzka iðn-
aðinn í heild, þá mun iðnaðurinn
þroskast og verða fær um að
veita okkur og niðjum okkar at-
vinnu og þá um leið hefja fs-
land úr hópi vanþróaðra landa.
FRJÁLS VERZLUN
Vörur - þjónusta/
MÝJAR IIIVIB LÐ I R
Síðasta nýjungin við pökkun
ávaxta og fleiri matvara er að
nota teygjanlega plastfilmu. Þessi
filma er ekki algjörlega lofþétt,
heldur segja þeir, sem við þetta
fást, að hún ,,andi“. Geymist mat-
varan lengur af þessum sökum og
heldur betra bragði.
Ásamt plastfilmunni er notað
pökkunarsett. Sker það plastfilm-
una niður og bræðir plastið
saman. Er varan pökkuð inn í
sérstaka bakka og er þetta tii
mikils hagræðis, bæði fyrir kaup-
menn og neytendur.
Pökkunarsettið kostar 6200 kr.
1 kg. af plastfilmu (44m-) kostar
160 kr.
Á annað hundrað aðiljar nota
plastfilmur hérlendis.
Frekari upplýsingar fást hjá
Hervald Eiríkssyni s.f., Austur-
stræti 17.
FRLIURIT - AFRIT
Skrifstofuvélar h.f. í nýju hús-
næði að Hverfisgötu 33 bjóða nú
fyrirtækjum þá þjónustu að fá
ljósprentuð hvers konar skjöl og
pappíra, sem viðkomandi þarf að
fá í afriti undir eins. Ljósprent-
unarvélin er af gerðinni APECO