Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1967, Page 13

Frjáls verslun - 01.09.1967, Page 13
FRJÁLS VERZLÚN ra VIÐSKIPTAHEIMURINN Egyptaland er í rauninni gjaldþrota. Lokun Súez-skurðar kostar um 750 þúsundir dala á dag. Tefur lokunin birgðaflutninga Rússa til ARABALÖND Norður-Víetnam. Nasser, hinn slyngi stjórnmálarefur, sem sagði af sér sem forseti Egyptalands eftir ófarir Araba í styrjöldinni við ísraelsmenn og tók síðan aftur við embætti fyrir þrábeiðni stuðningsmanna siima, hefur nú enn sýnt, að honum er ekki fisjað saman. Gerð var byltingartilraun, þar sem átti að steypa Nasser af stóli, en hann brást hart við, og mega nú allir vita, að Nasser leiðist ekki stórlega í embættinu, úr því að hann hafði svo snör handtök, þegar það var í hættu. -4» Af fjórtán skipum, sem urðu innlyksa við lokun Súezskurðar, voru ÁSTRALÍA fjögur hlaðin áströlskum og ný-sjálenzkum eplum og perum. Alls voru þetta 750 þúsimd tonn. Ákvörðunarstaður Bretland. Þetta hefur ásamt lélegri uppskeru hækkað ávaxtaverðið. Kassinn af áströlskum eplum, sem nú eru flutt með skipum fyrir Góðvonarhöfða, er helmingi dýr- ari en á s.l. ári. -4» Bandaríska bankasambandið hefur látið fara frá sér skýrslu, þar sem það er fullyrt, að staða dollarans fari versnandi. 30 billjón dollara fjárhagshalli er nú fyrirsjáanlegur. Stríðið í Víetnam. Álitið er, að einungis 13% bandarísku þjóðar- innar séu ánægð með stefnu ríkisstjórnarinnar í Víetnam-stríðinu. Tal- BANDARÍKIN ið er, að 75% Bandaríkjamanna séu óánægð með framvindu mála í Víetnam. Aðalóánægjuefnið er það, að styrjöldin sé of kostnaðarsöm og sé þannig dragbítur á umbætur heima fyrir. Einnig eru margir fjarskalega gramir út í Suður-Víetnama, þar eð svo virðist sem þeir treysti algerlega á aðstoð Bandaríkjamanna. Ekki hjálpar það upp á sakirnar, að stjórninni í Saigon hefur oft verið borin stjórnmálaspilling á brýn. Aldrei hefur Johnson forseti notið jafnlítilla vinsælda og nú. Repúblíkanar búa sig nú undir næstu forsetakosningar. Fylgi Reagans vex eftir óeirðirnar í Detroit. Styrkur Romneys er álíka og áður. Óljós afstaða hans til Víetnamstyrjaldarinnar skaðar hann. Þá hendir það hann of oft að missegja sig eða þá, að hann talar hreinlega af sér. Efast sumir um greind Romneys. Hitt dregur enginn í efa, að hann er hlaupagikkur mikill. Fylgi Nixons (43%) er svipað og fylgi Romneys (44%). Rockefeller sækir og á. Þrátt fyrir skilnað sinn er hann mjög virtur stjómmálamaður í heimalandi sínu. Verkföll hafa orðið í bandaríska bílaiðnaðinum. Skattar hafa verið hælckaðir.

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.