Frjáls verslun - 01.09.1967, Qupperneq 15
15
ALDREI DFBRÝNT FYRIR
MÚNNUM AÐ TRYGGJA
SEGIR BALDVIN EINARSSDN í
ALMENNUM TRYGGINGUM
Baldvin Einarsson.
Vegna brunans mikla á dögunum og orðróms um, að ákveðnir
aðilar hafi orðið fyrir milljónatjóni, sneri F.V. sér til Baldvins
Einarssonar, foi'stjóra Almennra trygginga, og spurðist fyrir um
ástandið í tryggingum hérlendis.
B.E.: Við verðum oftlega varir
við, að íslenzkir innflytjendur,
sérlega þeir yngri og áræðnari,
trassa algerlega að sjótryggja vör-
ur sínar á leiðinni til íslands, svo
og vörur, sem geymdar eru í vöru-
húsum, eftir að í land kemur.
Þetta leiðir auðvitað af sér sí-
fellda áhættu fyrir þessa menn.
Með þessu þykjast þeir græða
nokkrar krónur, og víst gera þeir
það, meðan allt leikur í lyndi, en
óhöppin gera aldrei boð á undan
sér.
F.V.: Hvemig md sporaa móti
þessari óheillavœnlegu þróun?
B.E.: Ég er þeirrar skoðunar,
að verzlunarskólar og námskeið
leggi ekki nægilega áherzlu á
að brýna mikilvægi trygginga fyr-
ir nemendum sínum. Trygginga-
félögin hafa undanfarin fjögur
ár starfrækt tryggingaskóla, og
eiga nú öll tryggingafélögin á
mjög hæfum tryggingamönnum
að skipa, ég vildi segja mjög góð-
um tryggingamönnum, og því er
það innflytjendum í lófa lagið að
setja sig í samband við trygginga-
félög sín og kynna sér, hvernig
megi tryggja á hagkvæmastan
hátt. En svo að við víkjum nú
aftur að núverandi ástandi og
ríkjandi tómlæti í þessum efnum,
þá þykir mér rétt að geta þess,
að bankarnir, sem hafa hönd í
bagga með innflutningi, fylgjast
ekki nægilega með því, að inn-
flytjendur komi með staðfestingu
frá tryggingafélagi, um að þeir
hafi tryggt. Þetta ber þeim að
gera!
F.V.: Hvaða trYggingaskilmdl-
ar standa íslenzkum innflytjend-
um til boða?
B.E.: Algengustu sjótrygginga-
skilmálarnir gera ráð fyrir svo-
nefndri „F.P.A.-tryggingu“. Sú
trygging bætir tjón, sem hlýzt af
strandi, bruna, árekstri eða al-
geru tapi skips, ásamt hlutdeild
í sameiginlegu sjótjóni. „F.P.A.-
trygging“ bætir einnig algert tap
á heilum stykkjum í út-, upp- eða
umskipun. Auk þeirra tjóna, sem
,,F.P.A.-trygging“ bætir, bætir
„W.A.-trygging“ þau tjón að
hluta, sem stafa af sjóskaða.
„All risks-trygging“ bætir allar
skemmdir og öll tjón, nema þau
stafi af ónógum eða lélegum um-
búðum, töfum eða eðli vörunnar
sjálfrar. Brot og leki bætist ekki,
nema sérstaklega hafi verið um
það samið.
F.V.: VitiS þér, hversu mikið
tjón hlauzt af brunanum í Borg-
artúni d dögunum og a3 hve
miklu leyti þaS lendir d íslenzk-
um aðilum?
B.E.: Um tjónið verður ekkert
sagt á þessu stigi málsins. Það
tekur nokkra mánuði að kanna
öll gögn til hlítar.
Hvað síðara atriðið snertir, er
það að segja, að innlend trygg-
ingafélög taka ekki á sig áhættu
sem þessa og verður tjónið að
mestu bætt með endurtrygging-
um. Annars má skjóta því að
hér, enda þótt það sé spurning-
unni nokkuð óskylt, að innlend
tryggingafélög eru farin að tryggj a
töluvert sín á milli og dreifa
þannig áhættunni.
F.V.: Hverjar teliið þér líkleg-
ar afleiðingar stórbruna sem
þessa?
B.E.: Ég vonast fastlega til, að
ný vöruhús, sem reist kunna
verða í stað þeirra, er brunnu,
verði þannig útbúin, að í þeim
verði sjálfvirkt slökkvikerfi, sem
er þannig úr garði gert, að þegar
hitastig fer yfir ákveðið mark,
sprautast vatn inn í húsið. Þannig
mætti e. t. v. koma í veg fyrir, að
stórbruni af þessu tagi endurtaki
sig í framtíðinni. — Hins vegar
þykist ég vita, að óhöpp af þessu
tagi hleypi nokkru fjöri í trygg-
ingar manna. En slíkir atburðir
vilja æði oft fyrnast, og þá byrj-
ar sami sofandahátturinn. En ég
vil leggja á það ríka áherzlu, að
það verður aldrei ofbrýnt fyrir
innflytjendum og öðrum að hafa
tryggingar sínar í lagi. Það hefur
nefnilega aldrei borgað sig að
spara fimmeyringinn, en tapa
krónunni.
FILMU-SETNING
OFFSETPRENTUN
|ade[adel
GARAMOND BLÝSATUR GARAMONO FILMUSATUR
11 PT. UPPSTÆKKAÐ 11 PT. UPPSTÆKKAD