Frjáls verslun - 01.09.1967, Síða 16
16
FRJÁLS VERZLUN
□ RÐ í TÍMA TDLUÐ
mjólkursölumálin
Sé því haldið fram, að almenn-
ingur sé ánægður með mjólkur-
sölumálin, er farið með ýkjur ein-
ar. Hin miklu blaðaskrif um þau
á undanförnum árum endurspegla
megna óánægju alls þorra manna,
— en hitt er svo aftur annað mál,
hvort þessi óánægja er sanngjörn
og réttlát, miðað við allar aðstæð-
ur.
SKOÐANAKÖNNUN.
Fréttamenn Frjálsrar verzlunar
létu fara fram eins konar skoð-
anakönnun á vegum blaðsins. Var
hringt í fjöldamargar konur á
Reykjavíkursvæðinu og eftirfar-
andi spurningar lagðar fyrir þær:
1. Viljið þér fá mjólk senda heim?
2. Ef svo — viljið þér þá borga
10 kr. fyrir líterinn?
3. Eruð þér ánægðar með hyrnur
Mj ólkursamsölunnar ?
4. Hvað hafið þér að segja um
Akureyrarumbúðirnar svo-
nefndu?
5. Viljið þér láta selja mjólk í
kjöt- og nýlenduvöruverzlun-
um?
Svörin. Allar konurnar nema
þrjár vildu, að heimsendingarþjón-
ustu yrði komið á, jafnvel þótt þær
teldu sig ekki þurfa hennar með
sjálfar, af því að „mjólkurbúðin
er hérna rétt hjá“, eða „maður
hefur bara gott af því að fara út
í búð á morgnana“.
Er konurnar voru inntar eftir
því, hvort þær vildu greiða 10 kr.
fyrir heimsendan lítra mjólkur,
voru hálfgerðar vomur í þeim
flestum. Yfirgnæfandi meirihluti
sagði loks nei, nokkrar kannski,
og örfáar sögðust vilja greiða
þetta verð.
Konurnar höfðu allar eitthvað
að segja hyrnunum til lasts, og
voru þær lýsingar heldur lang-
orðar sumar hverjar.
Vinsældir Akureyrarumbúðanna
virtust skiptast nokkuð í tvö horn.
Sú skipting sýndist mest fara eftir
ísskáps- og fjölskyldustærð við-
komandi. Konurnar voru samt all-
ar sammála um það, að æskilegt
væri að auka fjölbreytni umbúða;
slíkt væri þjónusta við neytendur.
Annars óskuðu margar kvennanna
eftir fimm lítra umbúðum.
Er spurt var um mjólkursölu
í kjöt- og nýlenduvöruverzlunum,
voru flestar því hlynntar, að henni
yrði komið á, en nokkrar konur
bentu á það, að ekki ætti það að
vera nauðsynlegt, þar eð „mjólk
urbúðin væri við hliðina á mat-
vörubúðinni“.
NiSurstaSan. Mönnum er það
í sjálfsvald sett, hvert mat þeir
leggja á þessa skyndiskoðanakönn-
un blaðsins. Skoðanakönnun getur
aldrei orðið greinargóð nema mik-
ill undirbúningur komi til og hún
verði unnin á mun vísindalegri
hátt. — En ekki verður sú stað-
reynd sniðgengin, að langflestar
þessara húsmæðra vilja fá heim-
sendingarþjónustu og aðra gerð
umbúða og einnig tækifæri til þess
að kaupa allar nauðsynjavörur á
sama stað. Og það er ekkert, sem
mælir á móti því, að þessi hópur
(nálega 100 húsmæður) sé frá-
brugðinn heildinni í afstöðu sinni
til þessara mála, ekki sízt þegar
hringt var af handahófi eftir síma-
skrá, þó þannig, að reynt var að
ná til sem flestra starfshópa, þ. e.
farið var eftir starfi eiginmanns.
MAT.
í upphafi greinarinnar var engin
afstaða tekin til þess, hvort megn
óánægja almennings með mjólkur-
sölumálin væri „sanngjörn og rétt-
lát, miðað við allar aðstæður“.
Þess vegna þykir rétt að reifa mál-
in fyrst frá báðum hliðum.
Lögum samkvæmt skal landinu
skipt niður í mjólkursölusvæði, og
séu fleiri en eitt mjólkurbú starf-
andi á viðkomandi mjólkursölu-
svæði, skal komið á mjólkursam-
sölu. Stjórn hennar er skipuð af
mjólkurbúum ogmjólkurframleið-
endum. Óheimilt er öðrum að
dreifa mjólk á svæðinu en mjólk-
ursamsölunni, en þó getur mjólk-
ursamsalan heimilað öðrum sölu í
smásölu en eigin verzlunum.
Mjólkursamsalan í Reykjavík.
Samlagssvæði hennar nær frá Gils-
firði til Skeiðarár. Skal hún og
annast dreifingu í Vestmannaeyj-
um. Samsalan erþvíekkieinskorð-
uð við Reykjavíkursvæðið. Hefur
samsalan einkarétt til dreifingar
á þessu svæði lögum samkvæmt.
Dreifir hún mjólk til 131 aðila,
þar af rekur hún 65 mjólkursölur,
63 eiga aðrir aðilar, og kjörbúðar-
vagnar eru 3. Á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu rekur Mjólkursamsalan
53 sölustaði, aðrir aðilar 44, og
auk þess er seld mjólk í kjörbúð-
arvögnum á þessu svæði.
Eins og fram hefur komið, selur
Mjólkursamsalan ekki sjálf alla
sína mjólk, því að stjórnendur
hennar hafa leyfi til þess að heim-
ila öðrum að selja framleiðslu
samsölunnar, ef ástæða þykir til.
Hafa þeir gert þetta, og er afstaða
þeirra jákvæðari en sumra starfs-
bræðra þeirra úti á landi, en að
því verður vikið síðar.
SUNDURLIÐAÐ VERÐ A MjÓLK-
URLÍTRA M.R. (AN SÖLU-
SKATTS) ARIÐ 1966.
Kostnaður Mjólkursamsölunnar
og mjólkurbúanna .... 25.79%
Til Byggingarsj óðs og
varasjóða ............... 0.93%
Til Stofnlánasjóðs af
sölu .................... 0.55%
Til Verðmiðlunarsjóðs . 1.17%
Til bænda að meðtöld-
um iðgjöldum til bún-
aðarmála og stofnsjóða 71.56%
100.00%
KOSTNAÐUR MJÓLKURSAM-
SÖLUNNAR OG MJÓLKURBÚA
ARIÐ 1966.
Mjólkurvinnsla ......... 14.45%
Flutningur til markaðs-
staðar ................ 1.48%
Sölukostnaður .......... 10.79%
26.72%
í sölukostnaðinum er innifalinn
allur kostnaður vegna dreifingar,
reksturs búða. viðhalds og reksturs
bifreiða, skrifstofuhalds og rann-