Frjáls verslun - 01.09.1967, Qupperneq 44
44
FRJÁLS VERZLUN
STDFNA BRETAR NYTT
FRÍVERZLUNARBANDALAG7
Enn hafa Bretar barið að dyr-
um Efnahagsbandalagsins og bíða
þess með óþreyju, hvort þeim
verði hleypt inn. De Gaulle er
sagður vera við sama heygarðs-
hornið. Hann kveðst ekki vilja
veita Bretum inngöngu í Efna-
hagsbandalag Evrópu (EBE) fyrr
en þeir taka pólitíska hagsmuni
Evrópu fram yfir hagsmuni sam-
veldisins og Bandaríkjanna.
Margar af bandalagsþjóðum
Frakka í EBE, ekki sízt Benelux-
þjóðirnar, eru þess mjög fýsandi,
að Bretar fái aðild, og mun De
Gaulle í einkaviðræðum láta í
ljós mikla gremju í þeirra garð
vegna þessarar afstöðu þeirra. Á
þessu stigi málsins er útilokað að
spá um það hvort Frökkum verði
enn stætt á því að halda Bretum
utan við EBE. Margt bendir þó
til að ,,NON“ de Gaulle verði nú
léttvægara fundið en fyrir fimm
árum.
Nýtt sjónarmið hefur rutt sér
til rúms í Bretlandi. í fyrstu var
það aðeins hugsað sem neyðarúr-
ræði, ef fyki í öll skjól um inn-
göngu í EBE. Nú er það rætt op-
inberlega, og margir hafa orðið
til að lýsa yfir fylgi við hugmynd-
ina. Hún er í stuttu máli sú að
mynda nýtt fríverzlunarbandalag,
bar sem enskumælandi bjóðir séu
í meirihluta.
IÐNAÐINN ÞYRSTIR í
MARKAÐI.
Það er brezki iðnaðurinn, sem
leggur áherzlu á inngöngu í EBE.
Bretland er eitt iðnvæddasta land
heims. Á móti hverjum einum
starfandi manni í landbúnaði eru
12 í iðnaði. íbúafjöldinn er 54.5
milljónir, þar af búa 80% í borg-
um. Sjö stórborgir og úthverfi
þeirra rúma meira en helming
íbúafjöldans.
Brezkur iðnaður var í algjörri
niðurníðslu eftir heimsstyi'jöldina
síðari. Mikið átak var gert til að
koma iðnaðinum á núverandi stig.
Þó hefur tækni aldrei átt sér stað
í jafnríkum mæli og í sumum
stærstu iðnaðarríkjunum. Afleið-
ingin hefur verið sú, að nokkrar
iðngreinar hafa farið halloka í
samkeppninni, ekki sízt viðbanda-
rískan, þýzkan og japanskan iðn-
að. Þetta veldur síðan atvinnu-
leysi innanlands.
Þegar litið er á útflutninginn,
kemur í ljós, að þrátt fyrir for-
ystuhlutverk í Fríverzlunarbanda-
laginu (EFTA) er útflutningurinn
meiri til EBE-landanna. Á árinu
1966 nam hann 19% af heildar-
útflutningnum, á móti 15% til
EFTA-landanna. Hvað viðkemur
innflutningi til Bretlands er hið
sama upp á teningnum. Ef gerð-
ur er samanburður á útflutningn-
um s.l. 9 ár til þessara landa, sést,
að hann hefur vaxið hlutfallslega
meira til EBE-landanna. Á sama
tímabili minnkaði útflutningur-
inn til samveldislandanna um
12%. Ástæðan er síaukin iðnvæð-
ing í samveldinu. Það er ekki
lengur hráefnaforðabúr, sem síð-
an er séð fyrir iðnaðarvarningi.
Með þessar staðreyndir í huga
skyldi engan undra, þótt brezkur
iðnaður æski inngöngu landsins í
EBE og líti hýru auga til „heima-
markaðar“ með 300 milljónir íbúa.
Við slíkar aðstæður vonast iðn-
rekendur og stjórnarvöld einnig
til, að unnt verði að innleiða nýja
Fær Wilson að koma inn.........
tæknivæðingu og betra skipulag
í atvinnulífinu.
WILSON OG ÞVOTTAVÉL-
ARNAR.
Þegar kannaður er hugur
brezks almennings til inngöngu,
kemur í Ijós, að áhugi á henni er
fjarska lítill. Sú spurning var
lögð fyrir nokkra alþýðumenn,
hvort þeir gætu hugsað sér eitt-
hvert leiðinlegra málefni en EBE.
Engum gat hugkvæmzt neitt
hvimleiðara. Flestir hafa bókstaf-
lega sagt enga hugmynd um, um
hvað málið snýst. Það er alltof
flókið og afleiðingar af aðild eru
í hugum fólks fjarlægar og óviss-
ar. Skoðanakannanir leiða í ljós,
að ef efnt yrði til þjóðaratkvæða-
greiðslu um inngöngu í EBE,
mundu atkvæði falla ákaflega
jafnt.
í þingkosningum, sem haldnar
hafa verið síðan aðild kom til
greina, hefur áhugaleysi kjósend-
anna gert sitt til að málið félli í
skuggann í kosningahríðinni. í
kosningunum gagnrýndu Verka-
mannaflokksmenn íhaldsmenn
fyrir undanlátssemi við hagsmuni
landsins. Haft var eftir Harold
Wilson:
„Við höfum enga heimild til að
fórna frændum vorum og vinum
fyrir ímyndaðan hagnað af þvotta-
vélasölu í Dússeldorf“.
Margir kjósendur Verkamanna-
flokksins hafa áreiðanlega kosið
hann í þeirri trú, að þeir kysu
gegn aðild.
„En hvað um það, ég er þó
alltaf 25 árum yngri en de Gaulle“
sagði Wilson, þegar hann sótti
um inngöngu á ný.