Frjáls verslun - 01.09.1967, Side 45
FRJÁLS VERZLUN
45
NÝTT
FRÍVERZLUNARBANDALAG?
í mörg ár hafa farið fram við-
ræður vestan hafs og austan um
svokallað Atlantshafssamfélag, þ.
e. víðtækt bandalag V.-Evrópu og
N.-Ameríku. Hernaðar- og að
nokkru leyti stjórnmálasamstarf
er þegar fyrir hendi með Atlants-
hafsbandalaginu (NATO). Hug-
myndin er, að slík samvinna megi
einnig takast á sviði viðskipta-
mála og að öðru leyti tengja þjóð-
irnar í þessum tveim heimsálfum
fastari böndum á sem flestum
sviðum.
Við stofnun NATO þótti sýnt,
að möguleikar yrðu í framtíðinni
fyrir stofnun fríverzlunarbanda-
lags aðildarríkjanna og annarra
landa í Evrópu. Síðan hefur mikið
vatn runnið til sjávar. Ríkin
klofnuðu á viðskiptasviðinu í tvö
bandalög, en Bandaríkin og Kan-
ada standa utan við þau. Með
forystu Frakka í EBE og neitun
um að fallast á aðild Bretlands
og þar með sameiningu við EFTA,
hefur hugmyndin um Atlantshafs-
samfélagið horfið í skuggann und-
anfarin ár.
En nú hefur nýjum krafti verið
blásið í hugmyndina, að vísu í
mjög útfærðri mynd. Hún er sú,
að Bandaríkin, Bretland, Kanada,
auk Ástralíu og Nýja Sjálands,
myndi nýtt fríverzlunarbandalag,
sem EFTA-löndunum er síðan ætl-
að að tengjast. Þá er rætt um
hugsanlega aðild Japana og jafn-
vel annarra iðnvæddra Asíuríkja.
í grein eftir kunnan brezkan
blaðamann, Anthony Lejeune, er
fullyrt, að á haustmánuðum 1966
hafi verið skipuð nefnd embættis-
eða tekst
de Gaulle að halda honum fyrir
utan EBE?
manna úr hinum ýmsu ráðuneyt-
um. Skyldi hún kanna möguleika
á stofnun slíks fríverzlunarbanda-
lags, „ef af aðild að EBE verður
ekki“. Starfsemi nefndarinnar er
haldið leyndri af ótta við, að hún
skaði samningsaðstöðu Breta og
verði vatn á myllu de Gaulle.
Ekki þarf að orðlengja, hvílíkur
gífurlegur iðnaðar- og viðskipta-
kraftur sameinaðist í eitt ef af
stofnun slíks fríverzlunarbanda-
lags yrði.
STIÓRNMÁLALEGA
HLIÐIN.
Áætlanir um hið nýja bandalag
hafa einkum verið ræddar inn á
við, enn sem komið er. Vitað er,
að það hefur verið rætt af ýms-
um áhrifamiklum hópum í við-
komandi löndum.
í ágústmánuði s.l. lýsti svo for-
sætisráðherra Ástralíu yfir fylgi
sínu við svipaða hugmynd og þá,
sem hér hefur verið sett fram.
Bandaríkjastjórn hefur tekið
afstöðu til umsóknar Breta að
EBE og er fylgjandi henni, en
margir gamlir stuðningsmenn At-
lantshafssamfélagsins kvíða henni
við núverandi aðstæður. Þeir ótt-
ast, að de Gaulle takist með þvi
að neyða alla Evrópu til að taka
upp andbandaríska stefnu og hún
muni þannig fjarlægjast á ný.
Kanadaförin í sumar varð enn til
að sanna óbilgirni hans og sann-
færa menn um þetta.
Stuðningsmenn bandalagshug-
myndarinnar benda á, að fáar
þjóðir eigi sér meira sameigin-
legt en þær, sem ætlað er að
mynda kjarna bandalagsins. Sam-
eiginleg tunga þeirra og menning