Frjáls verslun - 01.01.1968, Síða 43
f-RJALS V/ERZLUN
43
SPORT
JUDO
Slysahætta er sízt meiri í judo en í öðrum íþróttum.
Judo-hreyfingin er í töluverð-
um vexti á íslandi. Eru nú starf-
andi tvö judofélög í Reykjavík,
Judofélag Reykjavíkur með 80 fé-
laga og Judodeild Ármanns með
um 30 félaga. Frumkvöðull judo-
hreyfingarinnar á Islandi er Sig-
urður H. Jóhannsson, starfsmaður
í Landsbanka íslands, og kannast
margir við hann, þar sem Sigurð-
ur vísar inn til bankastjóranna á
viðtalstímum. Sigurður hefur náð
lengst allra íslendinga í judo og
hefur þar nú tvö stig, en algeng-
ast er að mestu keppnismenn nái
fjórum til fimm stigum, meðan
þeir eru enn í keppnisformi. Hærri
stig en það, allt upp í 10, koma
með árunum fyrir framlag til i-
þróttarinnar á ýmsan hátt. Sig-
urður stefnir nú að þriðja stigi og
flestir hafa möguleika á fjórða
stigi með því að leggja sig alla
fram.
Frjáls verzlun rabbaði lítillega
við Sigurð um judoíþróttina í því
skyni að kynna hana fyrir lesend-
um. Hér er íþróttin aðallega
stunduð af fólki á aldrinum 15—-26
ára en í rauninni geta menn stund-
að hana alla ævi og er sérstakt
æfingakerfi fyrir fullorðið fólk.
Judo er ein tegund glímu, sprott-
in upp úr ævagömlum japönskum
bardagaaðferðum og hefur þró-
azt í íþrótt, sem er iðkuð um ail-
an heim.
Öndvert því sem er í öðrum
glímum klæðast judomenn fötum,
víðum jakka og síðum buxum, áð-
ur en þeir ganga til leiks. Þeir
fara tveir saman inn á leikvang-
inn og staðnæmast með fjögurra
metra bil á milli sín og standa
kyrrir þar til dómari eða þjálfari
gefur merki um að leikur skuli
hefjast. Þá geta menn gripið til
andstæðingsins hvernig sem þeir
vilja og beitt ýmiss konar brögð-
um að því undanskildu að ekki
má grípa til fantabragða. Sigur
vinnst á því að varpa andstæðingn-
um á herðarnar í gólfið, ellegar
með því að halda honum föstum
í 30 sekúndur, ellegar reyna þann-
ig á olnboga hans að hann gefist
upp af sársauka, ellegar með því
að 'halda honum föstum með háls-
taki þar til hann verður annað-
hvort að gefast upp ellegar missa
meðvitund.
Tvær síðasttöldu aðferðirnar
hafa sumum þótt nokkuð vafa-
samar. Hins vegar hefur það sýnt
sig að þær eru ekki hættulegar
og er lífs- og slysahætta í judo
ekki meiri en í mörgum öðrum í-
þróttum. Algengustu slysin eru
tognun í hnjáliðum og ökkla elleg-
ar um olnbogana og axlir. Al-
gengustu brögð eru klofbragð,
sniðglíma á lofti, sniðglíma niðri
og axlakast, einnig er beitt hæl-
krók og leggjabrögðum. í kloí-
bragði tekur annar keppandinn í
handlegg andstæðings, snýr bak-
inu snögglega að honum, teygir
annan fótinn aftur fyrir sig milli
BÍLAVARAHLUTIR
í FLESTAR GERÐIR BÍLA
Kristinn Guðnason hf.
Klapparstíg 27 - Sími 22675