Frjáls verslun - 01.04.1968, Blaðsíða 10
a
FRJAL5 VERZLUN
FRAMLEIDSLA FISKMJOLS EYKST
STÖÐUGT, EN LÍKLEGT ER ÞÓ, AÐ
BIRGÐIR FARI MINNKANDI í ÁR -
LÁGT VERÐ Á SÍLDARLÝSI
Sveinn Benediktsson, framkvœmdastjóri, tók vel
beiðni Frjálsrar verzlunar um að rœða markaðsmálin,
og fara ítarleg svör hans hér á eftir.
AFURÐAVERÐ BRÆÐSLUSÍLDAR
OG AFLAHORFUR í SUMAR.
Verð á síldarlýsi hefur farið
mjög lækkandi s.l. tvö ár.
Þannig var verðið £ 80-0-0 til
£ 76-0-0 pr. tonn cif frá því í
febrúar þar til í byrjun maímán-
aðar 1966, en síðan féll verðið
fram á haustið 1966, og var kom-
ið niður í £ 50-0-0 í október. Á
sama tíma hafði verð á síldar-
mjöli fallið um 15%. Þegar svo
var komið, stöðvuðu Norðmenn
síld- og makrílveiðar hjá sér frá
byrjun nóvembermánaðar til árs-
loka. Um sama leyti stöðvuðust
veiðar Perúmanna vegna ágrein-
ings um hráefnisverðið.
Stöðvun veiðanna hjá helztu
framleiðslulöndum lýsis og íiski-
mjöls, ásamt minni framleiðslu á
sojabaunum í Bandaríkjunum en
vænzt hafði verið leiddi til hækk-
unar á lýsinu upp í £ 65-0-0 og
nokkurrar hækkunar á mjölverð-
inu. Þegar Perúmenn hófu veiðar
aftur, féll verðið á lýsinu á nokkr-
um dögum niður í hið sama lága
verð og það hafði áður verið í, en
nokkur hækkun hélzt áfram á
mjölverðinu þá um sinn.
Verð á síldarmjöli, sem hafði í
ársbyrjun 1966 verið yfir 20 sh.
proteineiningin í tonni cif, en síð-
an farið fallandi á því ári, lækk-
aði enn á árinu 1967 og féll á er-
lendum markaði niður í um 14 sh.
proteineiningin. Frá íslandi var
þó aðeins tiltölulega lítið magn
selt undir 15 sh. einingin, og mun
meðalverðið hafa orðið um 15/6
sh. á einingu s.l. ár.
Síldarlýsisverðið féll í vetur á
erlendum markaði niður í um £
33-0-0 per tonn cif., en íslenzkt
síldarlýsi mun þó ekki hafa verið
Sveinn Benediktsson.
selt lægra en £ 36-0-0 til £ 37-0-0,
miðað við venjuleg vörugæði.
Þegar komið var fram í apríl-
mánuð, hækkaði verð á síldarlýsi
á erlendum markaði talsvert, en
er þó ennþá 10 til 15% lægra en
á sama tíma í fyrra í sterlings-
pundum, þrátt fyrir gengisfall
pundsins.
Síðustu sölur Dana á síldarlýsi
til Bretlands eru á £ 44-0-0 tonn-
ið cif., en þess er að gæta, að Dan-
ir losna við að greiða 10% inn-
flutningstoll af lýsinu í Bretlandi,
þar sem þeir eru þátttakendur í
EFTA.
Samkvæmt samkomulagi, sem
náðist í GATT á s.l. ári, lækkar
innflutningstollur á íslenzku sild-
arlýsi til Bretlands niður í 8%
frá 1. júlí n.k.
Vegna kauptregðu á mörkuðun-
um eru hér ennþá óseld um 25000
tonn af síldarlýsi af fyrra árs
framleiðslu.
Á s.l. tveim árum nam fram-
leiðsla íslendinga á síldarlýsi og
síldarmjöli talin í tonnum:
Síldarlýsi: Síldarmjöl:
1966 120.000 134.500
1967 65.300 75.600
Aukin framleiðsla Perúmanna
og Norðmanna á síldarlýsi eru
aðalástæður hins gífurlega verð-
falls á lýsinu. Árið 1964 fluttu
Norðmenn inn um 75 þúsund
tonn af lýsi og sama og ekkert út
af hrálýsi, en á s.l. ári fluttu þeir
aðeins 12 þúsund tonn inn, en
fluttu hins vegar út um 165 þús-
und tonn, sem seld voru í sam-
keppni við íslendinga og aðra
framleiðendur lýsis. Frá árinu
1961 til ársins 1967 hækkaði árs-
framleiðsla Norðmanna á bollýsi
úr um 60 þúsund tonnum upp í
um 330 þús. tonn. Framleiðsla
Perúmanna hækkaði á sama tíma
úr 140 þúsund tonnum í um 238
þús. tonn. Heildarframleiðslan á
bollýsi jókst á sama tíma úr um