Frjáls verslun - 01.04.1968, Qupperneq 18
16
FRJÁLS VERZLUN
eins og kunnugt er, illvígur gin-
og klaufaveikifaraldur víða um
heim í mörgum kjötframleiðslu-
löndum, sem flytja kjöt á Bret-
landsmarkað, og settu Bretar inn-
flutningsbann á mörg viðskipta-
löndin. Orsakaði það verðhækkun
í Bretlandi á ýmsum tegundum
kjöts, og nutum við góðs af, því
að hér á landi hefur gin- og
klaufaveiki aldrei gætt.
Útflutningsgærur haustfram-
leiðslunnar 1967 eru löngu seld-
ar, en verðlag á öðrum skinn-
um og húðum má teljast við-
unandi nú sem stendur, svo sem
á nautgripahúðum og kálfaskinn-
um. Vorkópaskinn og selskinn
hafa verið í mjög lágu verði á
mörkuðum erlendis, aðallega sök-
um mikils áróðurs gegn notkun
þeirra í m. a. loðkápur, en nú
virðast söluhorfur betri en mörg
undanfarin ár.
Ullarmarkaðir eru mjög óhag-
stæðir sökum offramleiðslu helztu
sauðfjárræktarlandanna og mikill-
ar aukningar í notkun alls konar
ódýrra gerviefna, sem hvarvetna
ryðja sér til rúms í stað ullar.
Hvað snertir markaðsástand
mjólkurafurða í dag, þá hefur
mjólkurframleiðslan haldið áfram
að aukast í Evrópu, og eru miklir
söluerfiðleikar ríkjandi um alla
álfuna á hvers konar fullunnum
mjólkurafurðum, þurrmjólk, osti
og ostaefni. Á árinu sem leið
þurfti að flytja úr landi um 670
lestir af mjólkurmjöli, eins og fyrr
segir, en sökum sölutregðu nú á
útmánuðum þótti ekki ráðlegt að
fara mikið út í þá framleiðslu hjá
mjólkurbúunum, heldur beina um-
frammjólkinni í ostagerð með háu
fituinnihaldi til útflutnings til
Bandaríkjanna. Þar hefur unnizt
beztur markaður fyrir íslenzkan
útflutningsost, og hafa selzt þang-
að í vetur og vor um 500 lestir.
— Hver hefur þróunin verið í
markaðsmálum landbúnaðaraf-
urða?
— Reynt hefur verið, eins og
frekast hefur verið unnt, að nýta
sem bezt markaði, sem okkur eru
opnir og gefa hagstæðasta verð
hverju sinni. Kjötmarkaðurinn í
Bretlandi er og hefur verið á und-
anförnum árum „dumping" mark-
aður, sem hefur þó það til síns
ágætis, að hann er nær ótakmark-
aður, og ekki þarf að greiða neinn
innflutningstoll af heilskrokka-
kjöti. Flestir aðrir markaðir eru
háðir alls konar hömlum og leyfis-
veitingum, en gefa yfirleitt mun
hærra verð. Hefur verið kappkost-
að að komast inná þessa markaði
með íslenzka dilkakjötið, stykkj-
að og pakkað í neytendaumbúðir,
bæði austan hafs og vestan, svo
og á fjærliggjandi mörkuðum, og
hefur talsvert áunnizt í því efni.
Þannig hefur tekizt að komast
inn á meginlandsmarkaðina í
Hollandi, Vestur-Þýzkalandi og
Sviss, en þeir gefa mun hærra
verð en Bretlandsmarkaðurinn.
Einnig hafa Noregur, Danmörk og
Færeyjar keypt verulegt magn af
söltuðu og frystu kjöti frá íslandi
á undanförnum árum, en þar er
þó m. a. Nýja-Sjálandsdilkakjöt
boðið á mun lægra verði en hið
íslenzka, en við Nýja-Sjáland,
Ástralíu, Argentínu og fjölmörg
önnur stór sauðfjárræktarlönd
verðum við að keppa á öllum er-
lendum mörkuðum, sem við ná-
um til. Gildir það raunar um
flestar landbúnaðarvörur okkar,
sem flytja þarf úr landi, að alls
staðar er við harða samkeppni að
etja og ekki sízt hvað snertir
mjólkurafurðirnar, sem ekki hafa
verið fluttar út í teljandi mæli
nema á hinum síðari árum. Tug-
þúsundir lesta af þurrmjólk og
osti hlaðast upp í öllum stóru
nautgriparæktarlöndunum á meg-
inlandi Evrópu, og framleiðendur
hafa orðið fyrir stórtjóni og
skakkaföllum sökum sölutregðu
og verðlækkana og vita ekki, hvað
til bragðs skal taka.
— Framtíðarhorfurnar?
— Fyrirsjáanlegar eru ekki
miklar sölur á landbúnaðarafurð-
um okkar til útflutnings, en ef að
líkum lætur, verður slátrun hér
á hausti komanda mikil að vöxt-
um, eins og nú árar í íslenzkum
landbúnaði, og því allt útlit fyrir,
að þörf verði mikil fyrir útflutn-
ing á margs konar sauðfjárafurð-
um í haust og vetur. Um verð-
lagsþróun er erfitt að spá nú á
þessu stigi.
Hvað snertir framleiðslu mjólk-
ursamlaganna fyrstu mánuði árs-
ins 1968, þá jókst hún um 11,8%
fyrstu þrjá mánuði ársins miðað
við sama tíma í fyrra. Ef mjólkur-
framleiðslan heldur áfram að
aukast á næstu mánuðum, er út-
lit fyrir að flytja þurfi úr landi
meira magn af osti til Bandaríkj-
anna seinna á árinu og óvarlegt
að spá um fáanlegt verð að svo
komnu máli.
■[bIIúIIsIMS
HVlLIÐ MEÐAN ÞÉR VINNIÐ
SAVO-stóll er vandaður stóll.
B ú S L w 0 Ð
ríÚSGAGNAVERZLUN
VID NÓATÚN — SfMI 18520