Frjáls verslun - 01.04.1968, Síða 21
FRJAL5 VERZLUN
FALLNIR FORUSTUMENN
HEINRICH NORDHOFF
Skipulagssnillingurinn próf.
Heinrich Nordhoff er ekki á með-
al okkar lengur — hann lézt af
hjartaslagi á föstudaginn ianga
þessa árs, 69 ára gamall. Með
Nordhoff lézt heimsþekkt tákn
iðnaðarundursins og þýzkrar elju-
semi. Erlendis var þessi viðskipta-
jöfur jafnan kallaður „Herra
Volkswagen“. Hann gerði vilja
Adolfs Hitlers að veruleika; hann
setti þýzku þjóðina undir stýrið.
Það er fyrir atbeina tækni- og
kaupsýslumannsins Nordhoffs, að
nú aka rúmlega 14 milljónir
Volkswagenbifreiða um stræti
heimsins, og það er viljaþreki
hans að þakka, að Volkswagen-
verksmiðjurnar voru reistar úr
rústum síðari heimsstyrjaldarinn-
ar, en þær hafa fyrir löngu tryggt
sér sess sem umsvifamestu fyrir-
tæki V.-Þýzkalands.
ÆVIÁGRIP.
Heinrich Nordhoff fæddist 6.
janúar árið 1899 í Hildesheim í
Neðra-Saxlandi, sonur banka-
manns. Hann nam tæknifræði í
Berlín og vann um skeið í flug-
vélaverksmiðju í Miinchen. í árs-
byrjun 1948 var Nordhoff ráðinn
aðalframkvæmdastjóri viðskipta-
deildar Volkswagenverksmiðj-
anna GmbH í Wolfsburg. Undir
ötulli og framsýnni stjórn hans
var hafin skjót endurbygging
verksmiðjanna í Wolfsburg, sem
voru að miklu leyti í rústum eftir
loftárásir bandamanna. Þær voru
reistar í meira en fjórfaldri stærð,
og jafnframt voru byggðar verk-
smiðjur í Hannover, Kassel og
Emden.
En hið sögulega afrekNordhoffs
var ekki einungis bundið við end-
urbyggingu verksmiðjanna í
Wolfsburg; hann hélt áfram að
færa út kvíarnar og víkka starf-
semina. Hann skipulagði sölu- og
Próf. Heinrich Nordhoff í einni VW-vcrksmiðjunni.
VW-verksmiðjurnar í Wolfburg í Iok II. heimsstyrjaldarinnar,