Frjáls verslun - 01.04.1968, Page 32
3D
FRJALS VERZLUN
VIÐSKIPT AHEIMURINN
HVAÐ ER EFNAHAGSBANDA-
LAGIÐ?
Hinn 1. júlí n.k. verSur Efnahagsbandalag Evrópu að fullkomnu sam-
markaSssvœði. Þá verða felldir niður síðustu tollar milli aðildarríkj-
anna innbyrðis, og sömu tollar verða gildandi út á við á öllum svið-
um varðandi innfluttar vörur í öllum ríkjum bandalagsins. — í þess-
ari grein er fjallað um upphaf Efnahagsbandalagsins, hvað það er
og hvers vegna því var komið á fót. Jafnframt er skýrt frá stofnunum
og skipulagi bandalagsins, markmiðum þess og hvemig það starfar.
í eínahagsbandalagi Evrópu,
EBE, eru sameinuð í eina heild
efnahagslíf sex landa, en þau eru:
Belgía, Frakkland, Holland,
Ítalía, Luxembourg og Vestur-
Þýzkaland.
Hinar sameiginlegu meginstofn-
anir EBE eru þrjár:
1. Kola- og stálsamsteypa Vest-
ur-Evrópu (ECSC), sem komið
var á fót með Parísarsamningnum
frá 1952, en með gerð hans var
leiðin rudd til sameiginlegrar yf-
irstjórnar yfir kola-, stál- og járn-
grýtisframleiðslu ríkjanna sex og
þau gerð að einu markaðssvæði
íyrir þessar framleiðsluvörur.
2. Markaðsbandalag Evrópu
(EEC) eða hið raunverulega Efna-
hagsbandalag. Því var komið á fót
með Rómarsamningnum, sem
gerður var í byrjun árs 1958, en
með honum var í áföngum stefnt
að því að gera öll bandalagsríkin
sex að sameiginlegu markaðs-
svæði í öllu tilliti. Var upphaflega
gert ráð fyrir að ná þessu marki
á 12 árum, en síðar var ákveðið
að stytta þann tíma, þannig að síð-
asta áfanga þess yrði náð 1. júlí
1968. Á þessu markaðssvæði búa
um 185 millj. manna.
3. Kjarnorkumálastofnun Ev-
rópu (EAEC) var einnig komið
á fót í ársbyrjun 1958 með öðrum
samningi, sem einnig var undir-
ritaður í Róm. Með kjarnorku-
málastofnuninni var stefnt að því
að koma á fót þróttmiklum iðnaði,
þar sem kjarnorka yrði hagnýtt
til friðsamlegra nota.
TILGANGUR
EFNAHAGSBANDALAGSINS.
Tilgangurinn með stofnun EBE
var í fyrsta lagi að koma í veg
fyrir árekstra milli ríkja Vestur-
Evrópu, sem um aldaraðir hafa
valdið klofningi og styrjöldum á
milli þeirra. Á slíkt skyldi bund-
inn endir í eitt skipti fyrir öll.
í öðru lagi að endurvekja sjálfs-
virðingu bandalagsríkjanna og
gera þeim kleift að hafa í sam-
einingu áhrif í heimsmálunum í
samræmi við efnahagsgetu og
menningararf þeirra.
í þriðja lagi að bæta með sam-
eiginlegum aðgerðum lífskjör og
starf sskilyrði bandalagsþ j óðanna.
Enn fremur að ryðja úr vegi
þeim úreltu hindrunum, sem vald-
ið höfðu því, að Vestur-Evrópa
hafði skipzt í smá tollverndar-
svæði.
Að flýta fyrir tæknilegum fram-
förum og að koma á stórvirkni í
þeim iðngreinum, þar sem slíkt
skiptir máli, en þeim fer sífjölg-
andi.
Að gera í sameiningu sérstakt
átak til aðstoðar verr settum
svæðum innan bandalagsins og
löndum annars staðar, sem gert
hafa við það viðskiptabandalag á
einn eða annan hátt.
Og loks að skapa grundvöll fyr-
ir Bandaríki Evrópu í framtíðinni.
LEIÐIRNAR AÐ MARKMIÐINU.
Til þess að ná því fjölþætta
markmiði, sem greint hefur verið
frá hér að framan, voru gerðar
ýmsar mikilvægar ráðstaíanir.
Komið var á fót föstum stofn-
unum innan bandalagsins, sem
hafa skyldu eftirlit með því, að
samningarnir, er gerðir höfðu ver-
ið, yrðu hagnýttir, en tækju einn-
ig að sér að móta og framkvæma
sameiginlega stefnu bandalags-
ríkjanna.
Stofnuð var framkvæmda-
stjórn, sem gætir hagsmuna
bandalagsins almennt, kemur í
framkvæmd samningum banda-
lagsins og þeim ákvörðunum, sem
síðar yrðu teknar, og ber ein fram
tillögur um sameiginlegar ráðstaf-
anir. Með sérstöku skipulags-
skrárákvæði var þessi fram-
kvæmdastjórn gerð ábyrg gagn-
vart sérstöku Evrópubandalags-
þingi, þ. e. þingi, sem yrði skipað
þingmönnum frá bandalagsríkj-
unum.
Komið var á fót sérstökum
dómstól, en úrskurðir hans eru
bindandi fyrir alla aðila, þar á
meðal framkvæmdastjórnina, ráð-
herranefndina, stjórnir bandalags-
ríkjanna, einstaklinga og fyrir-
tæki.
Stjórnendum og starfsmönnum
stofnanna bandalagsins var bann-
að skýrt og skorinort að taka við
fyrirmælum ríkisstjórna einstakra
ríkja bandalagsins.