Frjáls verslun - 01.04.1968, Page 39
FRJALS VERZLUN
37
stöðu með atkvæðagreiðslu, þav
sem meirihlutinn ræður. Sérat-
kvæði eru ekki kunngerð opin-
berlega. í desember 1966 höfðu
483 mál verið lögð fyrir dómstól
Efnahagsbandalagsins, sem kveð-
ið hafði upp dóma í 357 af þeim
AÐRAR STOFNANIR.
Til viðbótar þessum stofnunum
bandalagsins, starfar fjöldi ráðgef-
andi stofnana og sérnefnda c.ð
markmiðum þess. Tvær helztu
þeirra eru: efnahags- og félags-
málastofnunin.
Álits hennar verður að leita
varðandi meiri háttar tillögur,
sem snerta sammarkaðssvæðið og
Kjarnorkumálastofnunina.
RÁÐGJAFANEFNDIN.
í henni eiga sæti 51 fulltrúi, og
er verkefni hennar svipað og
Efnahags- og félagsmálastofnun-
arinnar, en er bundið við Kola- og
stálsamsteypuna.
HAGVÖXTUR.
Efnahagsbandalag Evrópu er á
meðal þeirra efnahagssvæði á
Vresturlöndum, þar sem vöxtur
efnahagslífsins hefur verið hvað
hraðastur. Á þeim níu árum, sem
liðu frá því að Rómarsamningur-
inn tók gildi í janúar 1958 til árs-
loka 1966, jókst heildariðnaðar-
framleiðsla aðildarríkjanna sex
um 67%, borið saman við 73% í
Bandaríkjunum og 33% í Bret-
landi. Frá 1958 til ársloka 1966
hafði heildarframleiðslan — það
er að segja verðmæti allrar vöru
og þjónustu, sem verða til á öll-
um sviðum efnahagslífsins — vax-
ið um 51%, samanborið við 45%
í Bandaríkjunum og 30% í Bret-
landi.
Að vísu virðist hagvöxtur Efna-
hagsbandalagsins hafa sýnt merki
þess að undanförnu, að hann færi
minnkandi. Fyrsta millibils efna-
hagsáætlun bandalagsins, sem
gerð var snemma árs 1966, gerir
ráð fyrir, að heildarframleiðsla
þess muni vaxa að meðaltali 4.3%
á ári á tímabilinu 1966—1970 að
báðum árum meðtöldum, borið
sman við 4.9% raunverulega
aukningu á ári fimm árin þar á
undan. Þetta átti einkum rót sína
að rekja til afturkipps í Vestur-
Þýzkalandi, sem búizt var við, að
myndi verða úr sögunni síðari
/ífti'ititrUmt
’T'rmta
ANTiO
USSX
'Púiand
f’ 'JWand v
/ \ S
r' <ýcmutfíy ;
' (sovitr \ k,
Efnahagsbandalagslöndin Belgía, Frakkland, HoJland, ítalía, Luxem-
bourg og Vestur-Þýzkaland.
hluta árs 1967 og aukinn hag-
vöxtur koma í staðinn. Þetta hef-
ur einnig reynzt á rökum byggt,
og á þessu vori er ljóst, að fjör-
kippur er kominn í vesturþýzkt
efnahagslíf að nýju, ,þvi að fyrir
skömmu sýndi atvinnuleysiskönn-
un, að eftirspurn eftir vinnuafli
var orðin meiri en framboð, þann-
ig að atvinnuleysi það, sem þar
gætti talsvert í fyrra, er úr sög-
unni.
Ljóst er, að vöxtur efnahags-
lífsins í aðildarríkjunum sex á
ekki allur rót sína að rekja til
tilkomu Efnahagsbandalagsins, en
hinum sameiginlega markaði þess
verður endanlega komið á 1. júlí
n.k., og þá verða síðustu tollar af
vörum, sem seldar eru frá einu
aðildai-ríkinu til annars, felldir
niður. Efnahagssérfræðingar eru
hins vegar sammála um, að hin
athyglisverða aukning í verzlun
aðildarríkjanna sex sín á milli
innbyrðis og sem heildar út á við,
hefur átt verulegan þátt í þess-
um vexti efnahagslífsins. Vitn-
eskjan um, að verið væri smám
saman að fella niður tollmúra
milli aðildarríkjanna og að i
mörgum tilfellum væri einnig ver-
ið að lækka tolla á innflutnings-
vörum frá ríkjum utan banda-
lagsins, hefur auk þess vafalaust
haft örvandi áhrif á iðnað og
verzlun innan Efnahagsbanda-
lagsins í þá átt að taka upp nýja
skipulagningu og fyrirkomulag
með samruna fyrirtækja, svo og
á annan hátt, og þannig mætt
harðari samkeppni með aukinni
og bættri framleiðslugetu.
FILM U-SETNIN G
OFFSETPRENTUN
|ade|ade|