Frjáls verslun - 01.04.1968, Síða 52
5D
FRJÁL5' VERZLUN
VIÐSKIPTALÖND
VAXANDI VERZLUNARVIÐSKIPTI
MILLI ÍSLANDS
OG SOVÍTRÍKJANNA
Eítirfarandi grein er rituð af sendiráði Sovétríkjanna
í Reykjavík.
Það er stefna Sovétríkjanna að
eiga verzlunarviðskipti við allar
þjóðir, án tillits tilþess, hverskon-
ar þjóðskipulagþær búa við, þvíað
það er hagkvæm leið til friðsam-
legrar sambúðar og vinsamlegs ná-
grennis milli þjóða. Dæmi um slík
viðskipti, sem eru báðum aðilum
til hags, eru viðskipti Sovétríkj-
anna við ísland.
Verzlunarviðskipti milli Sovét-
ríkjanna og íslands eiga sér tölu-
verða sögu. Fyrir fjörutíu árum,
27. maí 1927, var með orðsend-
ingaskiptum lagður grundvöllur
að beinum viðskiptum milli Sovét-
ríkjanna og íslands á grundvelli
gagnkvæmra beztukj ara-samn-
inga. Þetta er í fullu gildi enn í
dag. Ennfremur voru 11. nóvem-
ber 1965 undirritaður viðskipta-
samningur milli Sovétríkjanna og
íslands fyrir tímabilið 1966—1968,
er gildir til 31. desember 1968, og
eru í honum ákvæði um framleng-
ingu.
Á fyrstu árunum eftir heims-
styrjöldina fóru viðskipti milli
Sovétríkjanna og íslands ekki
fram samkvæmt samningum milli
ríkisstjórna heldur á grundvelli
einstaklingsviðskipta. Á því tíma-
bili keyptu Sovétríkin frá íslandi
síldarlýsi, fiskflök og síld. í stað-
inn seldu Sovétríkin til íslands
timbur, kol og sement.
Sovétríkin og ísland gerðu ekki
viðskiptasamning sín í milli fyrr
en í ágúst 1953. Samkvæmt þeim
samningi áttu skiptdn að fara fram
í samræmi við vörulista, er sam-
komulag yrði um fyrir eitt ár í
senn. Báðar ríkisstjórnirnar hétu
því ennfremur að gera allar nauð-
synlegar ráðstafanir, til þess að
staðið yrði við vöruafhenaingar
samkvæmt listanum og sérstak-
lega að veita útflutnings- og inn-
flutningsleyfi fyrir þeim vörum,
er samningurinn náði til. í samn-
ingnum var kveðið á um, að við-
skiptin væru á grundvelli vöru-
skiptaverzlunar.
Fram til ársins 1956 voru við-
skiptasamningarnir af beggja
hálfugerðir til 18 mánaða. Reynsl-
an leiddi aftur á móti í ljós, að
%*** 1 ‘ ‘ ..... 7
V-. . •- . ....... •.....,_____- .................................
Moskwitsch hefur unnið sér sífellt vaxandi vinsældir og sjáum við hér
mynd af milljónasta bílnum í Moskvu.