Frjáls verslun - 01.04.1968, Síða 54
52
FRJALS VERZLUN
STARFSEMI Á.T.V.R.
Jón Kjartansson
forstjóri Á.T.V.R. á skrifstofu
sinni.
ÁFENGISVERZLUN ríkisins var
stofnuð með lögum 27. júní 1921.
en þá var leyfð sala á borðvínum
o,g heitum vínum hérlendis vegna
Spánarviðskiptanna. Þegar bann-
inu var svo endanlega aflétt 1.
febrúar 1935, hóf Áfengisverzlun
ríkisins einnig innflutning og sölu
á sterkum drykkjum, jafnframt
því sem hún setti á markaðinn
fyrstu framleiðslu sína — brenni-
vín.
Árið 1961 voru Áfengisverzlun
ríkisins og Tóbakseinkasala ríkis-
ins, sem stofnuð var með lögum
1931 og annaðist innflutning og
sölu á tóbaki og eldspýtum, sam-
einaðar í eitt fyrirtæki, Áfengis-
og tóbaksverzlun ríkisins —
Á.T.V.R.
FRAMLEIÐSLA Á. T. V. R.
íslenzka brennivínið eins og
þau skandinavisku, tilheyrir þeim
flokki sterkra drykkja, sem
nefndur er Aquavite. Hafa þeir
allir kúmen sem bragðefni að
meira eða minna leyti, og sterk-
asta bragðefnið í íslenzka brenni-
víninu er einmitt kúmen. Brenni-
vínið hlaut strax í upphafi viður-
nefnið „svartidauði", sem dregið
var af svörtum miða á brenni-
vínsflöskunni.
Fyrir nokkrum árum var svarti
miðinn tekinn af og annar ljósari
miði settur á í staðinn. Þessi ráð-
stöfun sætti harðri gagnrýni, og
var þá horfið að svarta miðanum
aftur, og auglýsir hann því enn
þessa framleiðslu Á.T.V.R., á-
samt nýja miðanum.
Síðar meir varð íslenzka áfeng-
isframleiðslan fjölbreyttari, og
eru nú framleiddar fjórar tegund-
ir: brennivín, ákavíti, bitter-
brennivín og hvannarótarbrenni-
vín, sem er eina brennivínið í
heiminum, sem vitað er um að
hafi ,,Angelica“ að aðalbragði.
Eins og í brennivíni er kúmen í
hinum þremur tegundunum, en í
mismunandi miklu magni.
Þegar lokaðist fyrir aðflutn-
ingsleiðir frá Danmörku í heims-
styrjöldinni síðari, hóf Tóbaks-
einkasala ríkisins framleiðslu á
neftóbaki, og er það enn meðal