Frjáls verslun - 01.04.1968, Síða 64
Sovétríkjanna
Framh. af bls. 51.
port“, „Mezhdunarodnaja Kniga“,
svo og auglýsingastofnunin
„Vnestorgreklama“ tóku þátt í al-
þjóðlegri vörusýningu í Reykja-
vík frá 20. maí til 4. júní í fyrra.
Verzlunarstofnanir þessar sýndu
sovézkar vörur og gerðu samn-
inga um sölu á þeim, einkum vél-
um og tækjum.
Sovézk útflutningsfyrirtæki eru
reiðubúin til að selja íslandi vör-
ur, sem landið þarfnast og ekki
eru framleiddar í landinu sjálfu.
ísland þarf að flytja inn vörur
eins og olíur, bifreiðir, stál, timb-
ur, rúgmjöl, og töluverður hluti af
því, sem ísland þarf að nota af
þessum vörum, er fluttur inn frá
Sovétríkjunum.
Með því að kaupa frá Sovét-
ríkjunum eru íslendingar að
tryggja sölu á íslenzkum útflutn-
ingsvörum til Sovétríkjanna. Sov-
étríkin eru einn stærsti kaupandi
fisks og fiskiðnaðarvara frá ís-
landi. Sovétríkin kaupa 30—32%
af útflutningi íslands á frystum
fiskflökum, allt að 30% af freð-
fiski og yfir 50% af útflutningi
landsins á niðursoðnum fiski.
Hlutur Sovétríkjanna í kaupum á
íslenzkri saltsíld hefur minnkað
á undanförnum árum, þar sem
íslenzkir útflytjendur hafa ekki
talið sér fært að selja síldina fyr-
ir það verð, sem sovézkir kaup-
endur hafa talið aðgengilegt.
Það er sérstaklega athyglisvert,
að innflutningur Sovétríkjanna á
niðursoðnum fiski frá fsJandi fer
sívaxandi. Á árinu 1961 fluttu
Sovétríkin inn niðursoðinn fisk
frá íslandi fyrir 53000 rúblur, en
á árinu 1967 var innflutningur á
þessari vöru orðinn fyrir 613000
rúblur. Kaup Sovétríkjanna á
þessari vörutegund hafa því
meira en tífaldazt á sex árum. Á
árinu 1961 hófu Sovétríkin að
kaupa prjóna- og ullarvörur frá
íslandi, og hafa kaup Sovétríkj-
anna á þeim vörum vaxið úr 175-
000 rúblna virði árið 1961 í 875-
000 rúblna virði árið 1967- Það
er eftirtektarvert að Sovétríkin
kaupa nær 100% af útflutningi ís-
lands á prjónavörum og ullartepp-
um.
Fyrsfi fundur
AfEandsbafsráðsíns
Framh. af bls. 56.
fundarins en þeir, sem nauðsyn-
lega þurfa og sýnt geta tilskilin
skilríki.
Fréttamiðstöð verður í Haga-
skóla, en búast má við að til
landsins komi gagngert vegna
fundarins a. m. k. nálægt 100
fréttamenn. Verða þeir ekki að-
• FÁiÐ BiTAIMN FRÁ RUNTAL •
' ■ ’
rrTm,|ll,,j,„,^F.,.lj..,
.
'
■
Runfaí er ódýrastur miðað við gæði
ÁVALLT Rf)M TYRIR RUIMTAL
RUNTAL OFNAR H.F. sí&umúia n s.mi 35555