Frjáls verslun - 01.04.1968, Blaðsíða 68
Allir hafa heyrt um hinar nýju NorSur-
landaferSir LoftleiSa, þar sem matur, drykk-
ir og önnur þjónusta við íarþega er meiri og
betri en áður hefur þekkzt hjá íslenzku flug-
félagi.
Allt hefur verið gert til þess að auka vel-
líðan farþegans, bilið milli sœta aukið, og
aðbúnaður allur við hœfi hinna kröfuhörð-
ustu.
En við gleymdum ekki fraktinni. Vitanlega
bjóðum við henni ekki glóðarsteikta kjúkl-
inga eða reynum að koma henni í inniskó,
slíkt vœri fjarstœðukennt.
En við gerðum annað haldbetra.
Við byrjuðum á því að setja stœrri frakt-
dyr á nýju RR-400 vélina okkar til þess að
þuría ekki lengur að vísa á bug stórum
sendingum og benda á skipafélögin eða
önnur flugfélög.
Síðan ákváðum við að nota stóran fram-
hluta farrýmisins fyrir frakt allt árið um
kring og stórauka þannig flutningsgetu
okkar frá Norðurlöndunum og Bandaríkjun-
um.
Við lítum nefnilega þannig á málið, að
vegna sívaxandi eftirspurnar frá ykkur um
flugfrakt sé okkur skylt að leggja aukna
áherzlu á, að þjónustan verði sem bezt, til
þess að flugfraktin geti þróazt hér eins og
annars staðar.
Okkur fannst því tími til kominn, að við
gerðum eitthvað róttœkt í málinu, því við
erum þess fullvissir, að einhvern tíma kem-
ur að því, að jafnalgengt verður að senda
vörur í flugfrakt og nú er að senda bréf í
flugpósti.
Þannig lítum við á málið.