Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1969, Page 18

Frjáls verslun - 01.10.1969, Page 18
AUGLÝSINGA SPJALL hér. Dixan hlýtur að verja á- kveðirmi prósentu af sölu í aug- lýsingar. Af hverju getur ekki íslenzkur framleiðandi gert. slíkt hið sama? Guðmundur: Ég er alveg sam- mála. En álítið þið, að íslenzkt fyrirtæki geti áætlað auglýs- inguna fyrir ákveðna veltu- prósentu? FV: Við héldum það. Árni: Þetta er undir verðlags- stjóra komið. Mitt álit er það, að það eigi að taka allan aug- lýsingakostnað og álagningu inn í verðgrundvöll fyrirtækj- anna. Þegar varan er fullunn- in, á seljandinn að leggja a. m. k. 5% ofan á verð vörunnar í auglýsinga- og sölukostnað. Guðmundur: Við verðum að gera okkur grein fyrir því, að ástandið er alls ekki heilbrigt. Þetta ástand í verðlagningar- málum getur ekki verið svona til frambúðar. Ólafur: Meðan þetta ástand er, þá hlýtur það að vera eðlileg krafa framleiðenda, að tekið sé tillit til þess, að það þurfi að koma vörunni á markað. Kristín: Ég er sammála. Það er útilokað að reyna að burðast við að selja vöru nema kosta töluverðu til auglýsinga. FV: Það er ákaflega hæpið, að ekki skuli vera reiknað með sölukostnaði í álagningapró- sentunni, sem út af fyrir sig er allt of lág, án þess að reikn- að sé með sölukostnaði eða aug- lýsingakostnaði. Þetta þýðir líklega, að menn eigi að fram- leiða vöruna, en ekki selja hana . Kristín: Mér finnst líka skrýt- ið viðhorf ýmissa heildsala og framleiðenda. Þeir telja ekk- ert eftir ferðalög og allan mögulegan kostnað í sambandi við sölu, en líta svo ekki á aug- lýsingar sem einn lið í sölunni, heldur sem eins konar óbæri- legan aukakostnað. FV: Ég talaði um daginn við mann sem gumaði af því, að hann þyrfti ekkert að auglýsa. Vara sín væri á markaðinum og fólk hlyti þar af leiðandi að kaupa hana. Slíkur hugsunar- háttur hlýtur að koma þessum manni í koll, áður en varir. Ólafur: Við skulum taka sem dæmi þá mörgu, sem hafa lát- ið gera sjónvarpsauglýsingar. Þeim hefur flestum fundizt auglýsingar mjög stór kostnað- arliður í byrjun. Þetta er eðli- legt, þar sem verðlagsákvæð- in eru þannig, að það virðist ekki gert ráð fyrir að við- komandi eigi að kynna sína vöru, hvorki í sjónvarpi, blöð- um eða útvarpi. Þess vegna líta þeir oft á þetta sem aukakostn- að, sem þeir verða að taka á sig af illri nauðsyn. Árni: Ég vil benda á, að fram- leiðendur fá frádreginn kostn- að fyrir sölumenn.... Allir: Sölumenn? Guðmundur: Við fáum líka auglýsingakostnað dreginn frá skatti, og það getur í einstaka tilfellum margborgað sig að auglýsa mikið. Ólafur: Mig langar að ræða hér aðeins um útvarpið. Það hefur staðið í mörg ár, hvað snertir auglýsingar og á von- andi eftir að breyta til á þann veg, að það selji tíma, en ekki orð. Útvarpið á að selja tíma eftir sekúndufjölda eins og sjónvarpið. Guðmundur: Ég er sammála þessu og vildi ráða, hvernig ég verði þessum tíma. Það yrði miklu betri auglýsing, ef mætti syngja auglýsingalag í stað þess að romsa upp einhverri orðabunu. Ólafur: Útvarpið er komið langt aftur úr í auglýsinga- tækninni. Miðað við tímann, sem það eyðir í auglýsingalest- ur, hefur það alltof litlar tekj- ur. Tíminn, sem seldur yrði, ætti að vera unninn af auglýs- ingastofnun. Þá fengi útvarpið í hendur fullunnar auglýsing- ar eins og blöðin og setti fast gjald fyrir ákveðna tímalengd. FV: Útvarpið lifir í dag eink- um á þeim mönnum, sem ætíð eru í vandræðum með sínar auglýsingar og enda alltaf á því að lyfta símtólinu og lesa upp auglýsingatexta, sem getur verið bæði slæmur og góður. Árni: Þarna er líka að verki annar hlutur. Þarna eru líka menn sem eru orðnir hvekktir á því að láta auglýsingu í Morg- unblaðið og fá síðan á sig öll hin blöðin. Þeir hafa líka tröllatrú á því, að fólk úti á landi hlusti á auglýsingarnar. . . Ólafur: Eins og nú er háttað, tel ég útvarpið vera þriðja flokks auglýsingavettvang. í dag er sjónvarpið sterkasti auglýsingavettvangurinn fyrir vörumerki. Morgunblaðið kem- ur næst, og þar á að úlista gæði vörunnar nánar. Útvarp- ið kemur í þriðja sæti, en er samt langtum þýðingarminni vettvangur að mínu áliti. FV: Hvað segið þið um Vik- una? 16

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.