Frjáls verslun - 01.10.1969, Síða 26
AUKIN
RÉTTAR-
VERND
VÍGORÐA
GREIN EFTIR
SIGURGEIR SIGURJÓNSSON, HRL.
Einn veigamikill þáttur í
allri auglýsinga- og sölutækni
nú á dögum er notkun svokall-
aðra „vígorða“, öðru nafni slag-
orð (slogans). Hverjir kannst
t. d. ekki við eftirfarandi víg-
orð þekktra íslenzkra fyrir-
tækja: ,,Allt á sama stað“, „Frá
Síld & fisk á hvers manns
disk“, „Fljúgið með föxum“,
„Allt með Eimskip“, „Bara
hringja — þá kemur það“, „Af
ávöxtunum skuluð þér þekkja
þá“ o. s. frv. — eða hin erlendu
vígorð: „Say it with flowers“
(Látið blómin tala) „Guinnes
is good for you“, „Johnnie
Walker — still going strong“
„Is there a Hennessy in the
house?“
Vígorð eru þó ekki neitt nýtt
fyrirbrigði, hvorki í sambandi
við verzlun né heldur á öðrum
sviðum. Notkun vígorða er
ævaforn. Eins og sjálft nafnið
bendir til, þá voru vígorð upp-
haflega notuð í hernaði —
nokkurs konar heróp. í Heims-
kringlu Snorra höfum við
þannig t. d. frásögn af einu
elzta norrænu vígorði, er liðs-
menn Ólafs konungs helga not-
uðu í Stiklastaðaorustu:
„Fram, fram, Kristsmenn,
krossmenn, konungsmenn".
Þess má og geta, að útlenda
orðið „Slogan“ er upprunnið
úr gallisku og þýðir þar einnig
heróp eða vígorð. Nú á dögum
eru vígorð ekki einungis notuð
á verzlunarsviðinu, heldur og
einnig í pólitískum og félags-
legum tilgangi og í sambandi
við umferða- og öryggismál og
í hvers konar áróðursskyni.
Sem dæmi um þessa notkun
vígorða hér á landi má t. d.
nefna „Allt er betra en íhald-
ið,“ „Verið vai'kár, varizt slys-
in“, „Hreint land, fagurt land“,
„Herferð gegn hungri“ o. s.
frv.
Þegar vígorð eru hins vegar
notuð í auglýsinga- og sölu-
skyni á verzlunarsviðinu, má
að nokkru leyti jafna þeim til
vörumerkja, og er þá ljóst, að
slík vígorð verða að njóta laga-
verndar gegn allri óréttmætri
misnotkun og stælingu á þeim.
Hingað til hafa verzlunarvíg-
orð notið mjög takmarkaðrar
lögverndar hér á landi. Má í
því sambandi t. d. geta þess, að
fyrir nokkrum árum tóku verzl-
anirnar í „Vesturveri“ hér í
borg að nota og auglýsa víg-
orðið „Vöruval í Vesturveri“.
Skömmu síðar hóf kjörbúð SÍS
í Austurstræti að nota mjög
líkt vígorð, eða vígorðið „Vöru-
val á öllum hæðum“. Verzl-
anirnar í „Vesturveri“ töldu
þetta vígorð SÍS hreina stæl-
ingu á vígorði sínu „Vöruval í
Vesturveri“ og höfðuðu því mál
gegn SÍS og gerðu þar þær
dómkröfur, að SÍS yrði talið ó-
heimilt að auglýsa firma sitt
með vígorðinu „Vöruval á öll-
um hæðum“, eða nota það á
annan hátt í verzlunarskyni.
Niðurstaða málsins varð sú, að
SÍS var sýknað í málinu á
þeim forsendum, að vígorðið
„Vöruval í Vesturveri" nyti
ekki lagaverndar sem slíkt. í
öðru máli varðandi vígorð var
þó sagt, að vígorð ættu að
njóta réttarverndar samkvæmt
24