Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1969, Blaðsíða 56

Frjáls verslun - 01.10.1969, Blaðsíða 56
Litaver er eitt þeirra fyrir- tækja, sem hefur „rifið sig upp“ á oft og tíðum hressilegum aug- lýsingum. „Við auglýsum mik- ið og reglubundið,“ sagði Einar Gunnar Ásgeirsson, einn af eig- endum fyrirtækisins, „og teljum það óhikað borga sig. Aftur á móti er slæmt að geta ekki var- ið hluta álagningarinnar beint 1 auglýsingar. Við lítum svo á, að auglýsingar okkar gegni hlutverki tveggja sölumanna, og sérstaklega á þetta við um landsbyggðina. Við höfum starf- að í fimm ár og fyrirtækið hef- ur vaxið ört, og eiga auglýsing- arnar sinn þátt í því.“ í sumar vakti ein auglýsinga- herferð mikla athygli, en það var er Kúba kastaði stríðs- hanzkanum framan í landann (við eigum hér við sjónvarps- tækin að sjálfsögðu), og þótti F.V. fróðlegt að vita, hvernig sú mikla auglýsingaherferð svaraði sér. Óli Bieldvedt hjá Nesco sagði, að auglýsingarnar hefðu gert gífurlega mikið gagn, svo mikið gagn, að nú ætti fyrirtækið í erfiðleikum með að hafa undan. í upphaf- legri áætlun var gert ráð fyrir mánaðarlegum sendingum, en nú væri svo komið (í septem- berlok), að afgreiðsla til kaup- enda væri á eftir áætlun, og því verður bið á næstu auglýs- ingaherferð, en hún verður á- reiðanlega eftirtektarverð, þeg- ar hún kemur. Hvernig á að auglýsa finnska skartgripi, sem eru með mynstri skartgrips, sem fannst í jörðu í Finnlandi og er talinn frá bronsöld? Jú, maður kennir skartgripina við hellabúa, og fær fegurðardrottningu íslands, sem getur rakið ættir sínar til Egils Skallagrímssonar, til að vera í hlutverki bronsaldar- ungfrúar. Myndin er sem sagt af Maríu Baldursdóttur, og það er Hinrik Árnason, sem útfærði auglýsingahugmyndina fyrir finnskt fyrirtæki, sem um þess- ar mundir er að hefja sölu á þessum skartgripum á Norður- landamarkaði. Slagorðið hjá Coca-Cola er um þessar mundir „Allt geng- ur betur með Coke“. Þetta er erlent slogan, sem fellur vel að íslenzku máli. Coke hefur alltaf auglýst af kappi og reglubund- ið og hafa auglýsingarnar nokkra sérstöðu, þar sem Coca Cola leitast við að kaupa bak- síður á tímaritum, og yfirleitt eru auglýsingarnar í litum. Kristján Kjartansson sagði í viðtali við F.V., að þeir gerðu. auglýsingaplan fyrir árið með hliðsjón af sölu fyrra árs og' áætlaðri sölu yfirstandandi árs. „Hefur ykkur einhvern tím- ann dottið í hug að spara og draga úr auglýsingum?“ „Nei, svo grænir erum við ekki.“ Kristján fræddi okkur á því, að dálítill blæbrigðamunur væri á bandarískum og evrópskum auglýsingum hjá Coke, en ís- lenzku auglýsingarnar væru mitt á milli, hvað stíl snerti. Nú hefur Coca Cola verk- smiðjan fimm drykki á boð- stólum með tilkomu svonefndra barvéla: Coca Cola, Fresca, Fanta appelsín, Sprite Ginger Ale og að auki sódavatn. Og þar sem Coke gerir það að verkum, að „allt gengur bet- ur“, er í ráði að stækka verk- smiðjuna á næstunni. 54
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.