Frjáls verslun - 01.10.1969, Síða 65
Skiltagerð og húsmálun Ós-
valdar Knudsen og Daníels Þor-
kelssonar hefur starfað í ein
45 ár. Við spurðum Daníel.
hvort þeir hefðu málað einn
skrautlegasta bílinn í bænum
— sendiferðabifreið Rolfs Jo-
hansons, og kvað hann svo
vera. Það kostaði 24 þúsund
að mála bílinn, sem er ekki
hátt verð miðað við, hve mjög
hann er skreyttur. Þá hefur
fyrirtækið málað gaflinn á Suð-
urlandsbraut 10 — hið risa-
stóra Hellesens batterí, og
kostaði það verk 30 þúsund,
en verkið sóttist mjög seint
vegna þess, hve veðurlag spillti
framkvæmdum. Nú er lokið við
að mála gaflinn á Helga Magn-
ússonar húsinu í Hafnarstræti
og þar koma auglýsingar frá
Coca Cola, Sælkeranum og
Ford.
Fyrirtækið sér um málun
alls konar skilta, og eru um-
ferðarmerki einn aðalliðurinn í
framleiðslunni.
Mikael Fransson hefur undan-
farin ár starfað sem útstilling-
armaður og auglýsingateiknari
hjá Gefjun og SÍS. Hann er á-
berandi flínkur við að gera
plaststafi og skreytingar úr
plasti. Mikael kom hingað frá
Ungverjalandi árið 1956, en
er nú orðinn íslenzkur ríkis-
borgari.
August Hákansson, eigandi
Skiltagerðarinnar á Skólavörðu-
stíg, sagði í viðtali við Frjálsa
verzlun, að hann hefði starfað
við skiltagerð og málun allt frá
1930. Nú rekur hann verzlun
samhliða skiltagerðinni, og er
þar á boðstólum margs konar
efni fyrir föndur, listmálun
og auglýsingar. August hefur
einkaumboð fyrir sjálflímandi
plaststafi af ýmsum stærðum,
sem hægt er að nota úti jafnt
sem inni. August kvaðst eink-
um gera smærri skilti fyrir
skrifstofur og ísbúðir og tals-
vert af plötum á legsteina. Þá
hefur August einn gert töfl-
ur með lausum stöfum í; slík-
ar töflur sjást víða í forher-
bergjum húsa þar sem eru
margs konar skrifstofur. Þá
hefur August gert flestar út-
sýnisskífurnar fyrir Ferðafélag
íslands og er nú að vinna að
skífum, sem settar verða upp í
Dýrafirði og í Þórsmörk.
Þá hefur August annazt gafl-
auglýsingar, meðal annars gafl-
auglýsingu fyrir Hörpu-silki á
Nýja bíói, sem gerð var fyrir
nokkrum árum og hefur sett
svip á bæinn.
RAFPLAST SF. vinnur eink-
um að gerð ljósaskilta, og sýnir
myndin hér að ofan eitt nýj-
asta skiltið frá fyrirtækin —
Gefjun Iðunn í Austurstræti.
Ingiberg Þorvaldsson sagði FV,
að verð hvers stafs i skiltum
hefði verið um 7 þúsund krón-
ur, en venjuleg ljósaskilti fyr-
ir verzlanir kosta um 10 þús-
und krónur. Yfirleitt kostaði
um 1000 krónur að setja skilt-
in upp og tengja þau. Perurn-
ar, sem eru fluorsent, duga að
jafnaði í tvö ár. Rafplast vinn-
63