Frjáls verslun - 01.05.1970, Side 8
B
FRJÁLS VERZLUN
CUDO
GLER
BJÖRGUN H.F.
VATMAGÖRÐUM
Tökum að okkur alhliða
BJÖRGUNARSTÖRF
á sokknum og strönduðum skipum.
Ennfremur sölu á alls konar steypuefni,
fyllingarefni, skeljasandi og
pússningarsa ndi.
BJÖRGUN H.F.
Símar: 33255-36990
Dýrt er Drottins orðið.
Frá F. V.:
Þann 17. apríl á þessu ári
pöntuðum við sýnishorn af
blaðinu „U.S. News and World
Report“ í flugi — hjá Snæbirni
Jónssyni & Co. hf. Þann 11.
maí kom tilkynning um að
blaðið væri komið og mætti
sækja það. Reyndist það vera
frá 20. apríl, eða þriggja vikna
gamalt, og kostaði með flugi
476 krónur! Blaðið kostaði 50
cent, en flugið 3 dollara og 60
cent! Samt kom það ekki fyrr.
Það má því segja, að dýrt væri
Drottins orðið. Og er ekki úr
vegi, að farið sé varlega í við-
skiptum af þessu tagi.
Svar:
Verzlunarstjórinn hjá Snæ-
birni Jónssyni & Co. hf. upp-
lýsir, að þrátt fyrir reglur um
að viðskiptavinum verzlunar-
innar sé gerð grein fyrir stað-
reyndum mála af þessu tagi,
hafi það farizt fyrir í þessu til-
felli og geti slífct komið fyrir.
Sérpantanir bandarískra blaða
séu með þessum hætti og gangi
yfirleitt ekki fljótar fyrir sig,
en flugkostnaðurinn sé geig-
vænlegur, eins og raun ber
vitni. Með skipi komi blöðin
hins vegar margra mánaða
gömul, en séu vissulega ódýr-
ari þá leið. Það sé því mjög
erfitt að kaupa bandarísk blöð,
nema þau, sem hafi dreifingar-
miðstöðvar í Evrópu og bóka-
verzlanirnar hér selji í ein-
hverjum mæli. Það sé full á-
stæða til að hugsa sig um tvisv-
ar áður en lagt sé út í slí'k
kaup, enda þótt allt kapp sé
lagt á það hér að greiða fyrir
þeim, eins og hafi verið í þessu
tiifelli — nema hvað gleymzt
hafi að vara við kostnaðinum.
Það er gent hér með.
Auglýsingaflóð.
Ó. J. skrifar:
Mér ofbýður auglýsingaflóð-
ið í Frjálsri Verzlun. Er ekki
full mikið af svo góðu. Efni
blaðsins hverfur stundum. Mér