Frjáls verslun - 01.05.1970, Page 19
FRJAL5 VERZLUN
19
Gjaldheimtan og aðrir inn-
heimtuaðilar, þ.e. hið opinbera
sjálft. Það er það, sem verður
að taka á sig tjónið, ef launa1
greiðandinn misfer með þetta
fé. Starfsmaðurinn á að vera
skaðlaus. Hann verður þó að
geta sannað, að þetta fé hafi
verið dregið af launum hans til
greiðstu opinberra gjalda, ef
aðilar, sem innheimtu þess
annast, ætla sér að ganga að
honum til greiðslu slíkra
gjalda. Ef t.d. Gjaldheimtan
gerði lögtak hjá manni fyrir
opinberum gjöldum hans, sem
launagreiðandinn hefur tekið
af honum, en ekki skilað Gjald-
heimtunni, yrði hún að falla
frá lögtakinu og taka sjálf á
sig þann kostnað. sem því hefði
verið samfara, er starfsmaður-
inn sýnir fram á, að þegar sé
búið að taka af sér rétta fjár-
hæð til greiðslu þessara gjalda.
Með tilliti til þessa verður
það ekki of brýnt fyrir fólki,
sem laun tekur hjá öðrum, að
geyma vel kvittanir og aðrar
viðurkenningar fyrir því, að
búið sé að taka af launum þess
til greiðslu opinberra gjalda.
Ekki er grunlaust, að margir
séu ekki nógu nákvæmir og
hirðusamir í þessu efni, eink-
um þeir, sem vinna stutt hjá
sama launagreiðanda, eins og
t. d. oft á sér stað um sjómenn,
sem ráða sig annað að vertíð
lokinni. Slíkir menn verða að
fylgjast betur með en aðrir,
hve mikið er tekið af launum
þeirra og varðveita rækilega
kvittanir fyrir slíkum greiðsl-
um. Ef launagreiðandi gengur
á rétt þeirra, verða þeir að
sækja rétt sinn sjálfir og það
er mun auðveldara, þegar fó-lk
er í föstu starfi hjá sama launa-
greiðanda árið um kring og líka
minni hætta á mistökum í
þe-ssu e-fni, heldur en t. d. fyr-
ir sjó-mann, sem starfar aðeins
nokkra mánuði í senn hjá sama
útgerðarmanni og fer síðan í
annað starf í öðrum landsfjórð-
ungi.
Almenna reglan er sú, að fé,
sem haldið hefur verið eftir af
launum, á að ski-la Gjaldheimt-
unni innan 6 daga frá því að
það var tekið. Vanræksla á
Gjaldheimtan í Reykjavík.
Það er öruggara. að vera viss í sinni sök.