Frjáls verslun - 01.05.1970, Qupperneq 47
FRJÁLS VERZLUN
47
Fjölmiðlar
Sérritin sterkust með sjónvarpinu
Fyrir aðeins fáeinum árum
hefði það þótt spaugileg fullyrð-
ing, að ýmis konar sérrit, sem
einskorða sig við aðeins eina
grein íþrótta, s.s. knattspyrnu,
einn atvinnuveg, s.s. verzlun,
svo dæmi séu nefnd, væru öfl-
ugur auglýsingavettvangur og
það öflugri en almenn og
heimsþekikt rit, eins og Life.
Þetta er ekki spaugilegt lengur,
heldur bláköld staðreynd.
Þróunin í auglýsingum hefur
stefnt hratt í þessa átt. Sérrit-
in hafa sérhæft sig æ meira,
og þau sem lengst hafa náð,
aukið svo vinsældir sínar. að
útbreiðsla þeirra og fræðslu-
eða heimildagildi hafa beint á-
huga auglýsenda í ört vaxandi
mæli að þeim og um leið frá
hinum almennu ritum, sem
fja'lla um allt milli himins og
jarðar, og skjótast yfir eins og'
fuglinn fljúgandi. Það sem þó
hefur ráðið úrslitum er sam-
snil sérritanna og sjónvarpsins.
Síðustu árin hafa sjónvarps-
auglýsingar aukizt gífurlega
víðast í heiminum. Þeir sem
vilja taka neytendur með
trompi, auglýsa í sjónvarpinu,
sem í þvi tilliti kemur í stað-
inn fyrir almenn rit, eins og
Life. En þeir sem vilja meira,
þeir sem vilja spila úr spilun-
um og njóta trompsins til hins
ítrasta, auglýsa lika í sérritun-
um, þar sem unnt er að koma
á framfæri fyllri og áreiðan-
legri upplýsingum og kynn-
ingu.
Life er stærsta almenna rit-
ið í Bandaríkjunum. Auglýs-
ingatekjur þess í fyrra námu
sem svarar nálægt 13.8 millj-
örðum ísl. króna. En þrátt fyr-
ir að upplag þess er 8.5 millj-
ónir eintaka, voru auglýsinga-
tekjurnar í fyrra sem svarai
900 milljónum ísl. króna minni
en 1968. Auglýsingamagnið
minnkaði um 7% 1968 og 13%
1969, og forráðamenn ritsins
telja að þessi þróun haldi á-
fram í ár. Sömu sögu má segja
um önnur almenn rit, eins og
Look, Reader's Digest, McCall‘s
o.s.frv. Á hinn bóginn hafa sér-
rit eins og Sunset, sem er gefið
út í aðeins 1 millj. eintaka upp-
lagi, haldið sínum hlut óskert-
um, og önnur, eins og Cosmo-
politan, stóraukið auglýsinga-
tekjur sínar. En aif stærri sér-
ritunum juku t.d. Playboy og
Redbook auglýsingatekjur sín-
ar um 27% í fyrra.
Tímarit, sem lesandanum er
ætlað að staldra við, verður nú
á dögurn að grípa lesandann,
höfða til hans í lífi og hugsun-
um, koma honum að beinu liði,
smjörþefur af yfirborðinu næg-
ir honum ekki lengur til þess.
Hann fá menn við sjónvarps-
tækin. Þess vegna eru sérritin
orðin sterkust með sjónvarpinu,
og af því að þau hafa gripið
á lofti ný viðhorf til fjölmiðl-
anna.
Þannig er þetta um heim all-
an þar sem blaðaútgáfa er
frjáls. Þetta nær eins til ís-
lands og er Frjáls Verzlun
glöggt dæmi um það, þar sem
auglýsingamagn og auglýsinga-
tekjur aukast ört á sama tírna
og dagblöðin og almenn rit
kvarta um samdrátt.
ie Concorde
tomorrow
you’d wear
t'Oi.K*
r.. '
, 'jlswthíW'' *
Playboy er eitt af þekktustu sérri tum í Bandaríkjunum, þangað
streyma auglýsingarnar frá þeim sem auglýsa til þess að hafa gagn
af því — og sjónvarpsins.