Frjáls verslun - 01.05.1970, Síða 53
FRJALS VERZLUN
Innleíidar fréttir
53
VANDIÐ VALIÐ
VELJIÐ MOON-SILK
SNYRTIVÖRUR
Halldór Jónsson hf Hafnarstræti 18 ‘ Beykjavifc Simi 22170
BRIJÐHÍAIJPSSKREYTIIMGAR
BRÚÐARVEiNIDIR - BORÐSKREYTIIXIGAR -
KIRKJLSKREYTIIXIGAR
ÁLFTAMÝRI 7
BLÓMAHÚSIÐ
simi 83070
ÚR ÝMSUM ÁTTUM
• íslenzk skipasmíðastöð hef-
ur nú tekið að sér smíði tveggja
65 tonna frambyggðra togbáta
fyrir indverskt fyrirtæki. Hef-
ur verið skýrt frá því, að opin-
berir aðilar tryggi lánsfé til
fimm ára, vegna bátanna. Og
jafnframt, að íslendingar muni
fara utan með bátunum og
kenna notkun þeirra. Sumum
þykir skjóta skökku við, þegar
bátasmíði fyi’ir íslenzka útgerð-
armenn er annars vegar, og
skipasmíðastöðvarnar fá enga
fyrirgreiðslu langtímum saman
til þess að halda sér gangandi,
hvað þá með fullum aíköst-
um. Virðist það standa okkur
nær að endurnýja eigin báta-
flota, nýta eigin fiskimið og
skapa aukin útflutningsverð-
mæti með eigin fiskvinnslu. Og
væri þá hitt góðra gjalda vert,
svo langt sem það nær.
• Engrar varúðar virðist
gætt, þegar erlendir veiðimenn
koma til veiða í íslenzkum ám
og vötnum, og koma þeir með
stengur sínar og tæki án sótt-
hreinsunar eða nokkurra tak-
markana. Víða erlendis gilda
strangar reglur í þessu efni,
enda talin hætta á sýkingu. Er
krafizt sótthreinsunar og flutn-
ingur sumra veiðitækja bann-
aður. Þetta varúðarleysi okkar
veldur því einnig minni sölu
hérlendis á tækjum til veiða en
ella væri.
• Frjáls Verzlun hefur að
undanförnu staðið fyrir skoð-
anakönnun um blaðið og verð-
lagsmál. Seðlum hefur verið
dreift um alla Reykjavík og í
næstu sveitarfélögum. Berast
svör stöðugt inn. Margir kaup-
endur hafa bæzt blaðinu í gegn
um þessa skoðanakönnun. Jafn-
framt hefur Frjáls Verzlun rek-
ið útbreiðsluherferð með öðr-
um hætti í Reykjavík, og hef-
ur hún gefið góða raun. Kaup-
endum blaðsins hefur á fáein-
um vikum fjölgað um mörg
hundruð.