Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1971, Side 45

Frjáls verslun - 01.11.1971, Side 45
Kirkjan Tímamót í sögu umdeildustu kirkjubygginga r á Islandi Hallgrímskirkjuturn fullgerður að utan á næsta ári Um síðustu áramót var bygg- ingarkostnaður Hallgrímskirkju á Skólavörðuholti orðinn rúm- lega 30.6 millj. króna. Hið opin- bera, ríkissjóður og borgarsjóð- ur Reykjavíkur höfðu lagt fram 39.5% kostnaðar, en 60.5% höfðu verið greidd af frjálsum framlögum. Þegar litið er á frjálsu framlögin, munar mest um framlög Hallgrímssafnaðar, en þau námu í árslok 1970 24.9% af heildarkostnaði fram til þess tíma. Gjafir og áheit hafa numið 13.8%, gjafir vegna kirkjuklukkna 6.6%, framlag Kvenfélags Hallgrímskirkju 3.1% og tekjur af gjafabréfi Hallgrímskirkju 4.4% kostnað- ar. Auk þess er um minni tekju- lindir að ræða. Nýlega barst svo stórgjöf frá Noregi, granít- mulningur utan á kirkjuturn- inn og annað byggingarefni, auk gjafa til lýðháskólans í Skálholti. Efnið var keypt á niðursettu verði fyrir peninga, sem presturinn Harald Hope hefur náð saman með gírósöfn- un um allan Noreg. TURNINN FULLGERÐUR AÐ UTAN 1972 Gert er ráð fyrir, að unnt verði að taka vinnupalla utan af turnspírunni, sem er um 25 metrar, þegar á þessu ári, en það verður þó algjörlega háð veðrum. Sennilega mun svo turninn birtast fullgerður að utan á næsta ári, en bá verður haldið áfram framkvæmdum við kirkjuskipið. Um líkt leyti verður sennilega gert nýtt átak í fjáröflunarmálum kirkjunnar og binda menn miklar vonir við þá söfnun, bæði vegna þess, að þá mun koma í ljós umtals- verður áfangi í kirkjusmíðinni, og hins, að andstaðan gegn kirkjubyggingunni hefur farið minnkandi á allra síðustu ár- um. UMDEILT GUÐSHÚS Hallgrímskirkja á Skóla- vörðuholti hefur verið einhver umdeildasta kirkjubygging í sögu landsins. Hugmyndin um hana kom fyrst frá Þórhalli Síðastliðinn dratug var byggt fyrir tœplega 28 milljónir. biskupi Bjarnasyni, árið 1914. Hugmyndinni um að reist yrði kirkjubygging til minningar um Hallgrím Pétursson var út af fyrir sig vel tekið. En brátt hófust deilur um staðsetningu kirkjunnar. Vildu ýmsir láta kirkjuna rísa í Reykjavík, en aðrir töldu rétt að hafa kirkj- una í Saurbæ, á þeim stað, sem Hallgrímur starfaði lengst af prestsævi sinni. Saurbæjar- menn urðu hinum yfirsterkari, og er nú fyrir löngu risin Hall- grímskirkja í Saurbæ. Þeir, sem voru hlynntir hug- myndinni um minningarkirkju í höfuðborginni, héldu þó áfram baráttu sinni, og átti hún eftir að verða bæði löng og ströng. Framan af skorti viðunandi hugmyndir um útlit kirkjunn- ar, þá tók við barátta innan bæjarstjórnar um byggingar- leyfi, loks hnakkrifust menn um útlit hennar, stærð og hvað annað, sem var talið máli skipta af hálfu andstæðinga kirkjunnar. Enginn vafi virð- ist leika á því, að andstaðan hafi ekki alltaf stafað af um- hyggju fyrir kirkjunni, heldur hafi hún einnig átt sér persónu- legar og pólitískar orsakir. Þess- um deilum hefur nú linnt í bili, og margir af helztu baráttu- mönnunum með og móti kirkju- byggingunni eru nú látnir. Af andstæðingum má nefna Lúð- víg Guðmundsson skólastjóra, Valtý Stefánsson ritstjóra og Pétur Benediktsson banka- stjóra, en af meðhaldsmönnum má nefna Jónas Jónsson frá Hriflu. Þó gætir talsverðrar óánægju — einkum meðal ungra menntamanna — og er aldrei að vita, nema sú andstaða blossi upp á svipaðan hátt og fyrir fáeinum árum, en þá var gerð hatrömm tilraun til að fá teikn- ingum af kirkjunni, og þar með öllu útliti hennar, gjör- FV 11 1971 45

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.