Frjáls verslun - 01.09.1972, Síða 59
DtfKtiR H.F.
Verksmiðjan Dúkur er hluta-
félag, er hóf starfsemi sína
fyrir tæpum tuttugu árum.
Það, sem fyrst og fremst
einkennir starfsemi fyrirtækis-
ins og framleiðslu þess er, að
Dúkur h.f. hefur samvinnu við
mörg erlend fyrirtæki á sviði
fatnaðarframleiðslu. Hefur ver-
ið leitazt eftir að samræma
hönnun framleiðsluvaranna,
tæknilega reynslu hinna er-
lendu framleiðenda og upplýs-
ingar um síbreytileg markaðs-
viðhorf í íslenzkum aðstæðum.
Þessi samvinna hefur verið
á sviði kvenundirfatnaðar og
lífstykkjavara, hverskonar vtri
kvenfatnaðar, karlmannanær-
fatnaðar og karlmannabuxna-
framleiðslu.
Mörgum íslenzkum neytanda
koma i hug vörumerkin KAN-
TERS, SLIMMA, KORATON
„þarf aldrei að pressa“, og
ACTIVITY. Þessi upptalning
er ekki tæmandi fyrir frain-
leiðsluvörur fyrirtækisins þvi
þar eru ennfremur framleidd-
ar MARK skyrtur og auk þess
á Dúkur h.f. vaxandi þátt í
framleiðslu íslenzkra fatnaðar-
vara úr ullarefnum til út-
flutnings.
Það hefur jafnan verið sjón-
armið stjórnenda fyrirtækisins
að fylgjast sem bezt með
tækninýjungum að því er varð-
ar framleiðslutæki og það hef-
ur skapað sér ákjósanlega að-
stöðu til þess að koma við
óhjákvæmilegri framleiðni-
aukningu með því að skapa
sér rúmgott húsnæði, Hefur
fyrirtækið nú rúmlega lOOOm
húsnæði til ráðstöfunar fyrir
framleiðslustarfsemina.
FV 9 1972
57