Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1974, Síða 13

Frjáls verslun - 01.02.1974, Síða 13
Varnarliðið: Höfðu gætur á 1000 sovézkum flugvélum á 10 árum Frjáls verzlun ræðir við Samuel Cooley, aðmírál „Fyrir íslendinga hlýtur það eðli málsins samkvæmt að skipta meginmáli aði tryggja sjálfstæði sitt og öryggi. Síðan verða að koma til ákvarðanir um hvernig þessum markmið- um skuli náð. Flestar þjóðir hafa kosið að hafa eigin her en þar sem íslendingum er það um megn hefur varnar- samningur verið gerður við Bandaríkin um að þau annist þennan þátt fyrir þá. Góð efnahagsleg afkoma er, líka eitt af keppikeflum hverrar þjóðar og mér sýnist, að ís- lendingar vilji leita samstarfs við erlenda aðila til að tryggja sér hana og nefni ég aðeins fyrirhugaðan innflutning á er- lendu vinnuafli og tækniþekk- ingu í sambandi við virkjunar- framkvæmdir við Sigöldu. Samningurinn við okkur um varnarmálin er að mínu mati ekki ósvipaður að því leyti til að þar með eru íslendingar að bæta þörfum, sem þeir geta ekki sjálfir fullnægt.“ Þetta sagði Samuel Cooley aðmíráll, yfirmaður varnarliðs- ins á Keflavíkurflugvelli í upp- hafi viðtals við Frjálsa verzl- un fyrir nokkru. Og hann hélt áfram: „Markmið okkar eru að tryggja varnir landsins, fæla hugsanlegan árásaraðila frá á- formum um áreitni og viðr halda og stuðla ennfremur að Détente á þessu heimssvæði. Það má líkja þessu við þrí- fættan stól. Til þess að hann komi að gagni verða fæturnir að vera af sömu lengd og styrkleika. Eins er það um þessi þrjú mikilvægu atriði sem ég nefndi. Þau verða öll að vera til staðar svo að frið- ur haldist. Ég vil leggja þunga áherzlu á giidi varnarliðsins í því efni að fæla frá árás. Varnarhlut- verkið verður mun auðveldara fyrir bragðið. Þegar menn meta varnarmátt þessarar stöðvar verður þess vegna að hafa þetta allt í huga í réttu samhengi. Eins og stöðin er nú uppbyggð erum við sannfærðir um þýðingu hennar og gerum ráð fyrir að hinn aðilinn átti sig líka á henni. Sumum hætt- ir til að spyrja fyrst og fremst um, hve margir menn séu hér með riffla. Það væri að sjálf- sögðu hægt að efla varnirnar enn meir með því að hafa hér fjö’lmennt lið grátt fyrir járn- um meðfram allri strandlengj- unni. En hvort tveggja er, að fslendinffar vildu ekki þá skin- an og Bandaríkjamenn hefðu ekki tök á að hafa sér slíkan mannafla aði staðaldri. F.V.: — Hve niikil er þá varn»rp'et!>n hjá bví liði, sem er hér á Keflnvíkurflugvelli? — Þetta 3300 manna lið, sem hér er, á að verja flug- völlinn, ef til ófriðar dregur og halda opinni leið tii flutn- ings á liðsauka frá Bandarikj- unum. í þessu sambandi er afar brýnt að eftirliti og könn- unarflugi á svæðinu umhverf- is landið sé haldið uppi, svo að nægileg viðvörun fáist um breytingar á háttalagi sovézka flotans, sem hér er á ferðinni allt í kring. Komi í ljós ein- hverjar athafnir hans er bendi til undirbúnings undir hernað- arátök getum við strax látið, vita til Bandaríkjanna og far- ið fram á að þar verði liðs- afli við öllu búinn. Nú tekur herútkvaðning sáralítinn tíma og liðið er tilbúið til baráttu hvenær sem er. En viðvörun- arfresturinn sem við fáum um yfirvofandi árás er líka skammur nú á tímum og þess vegna er svo geysimikilvægt, að við höldum uppi öflugu eft- irliti til að vita nákvæmlega, hvað sovézki herinn aðihefst Þess vetgna er könnunarflugið nú langveigamesti þátturinn í starfi varnarstöðvarinnar. F.V.: — Getið þér nefnt nokkrar tölur yfir fjölda sov- ézkra sprengiflugvéla, sem vart hefur orðið við liér við land? — Á þeim tima, sem orr- ustuþotur af gerðinni F-102 voru notaðar hér, en það munu hafa verið 10 ár þar til þær voru teknar út notkun í fyrra, fóru þær til móts við 1000 sov- ézkar flugvélar, sem sumar komu mjög nærri ströndinni. F.V.: — Hvað er mikið fiármavn bundið í mannvírkj- um hersins hér á Keflavíkur- flugvelli? — Það munu samtals vera hálfur miiljarðiur dollara en viðhaldskostnaður er 38,2 millíónir dohara á þessu ári. F.V.: — Hvað eru hað tmikl- ir fiármunir. sem varn'>rl?ðið legffur t'l viðhalds o" rek«trar á fhiwvollarmannvirkiiinum, sem fs'endingar vrðu að taka á sig, ef varnarliðið hyrfi af landi hrott. — Viðgerðir á flusbrautum, viðhald í flugturni, á slökkvi- tækjum og öryggistækium flugvallarins almennt kostar um 3.2 milliónir dollara og reksturinn að öðru leyti aðra eins upphæð.. Ef rekstur rad- arstöðva varnarliðsins yrði lagður niður myndu íslenzk FV 2 1974 13
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.