Frjáls verslun - 01.02.1974, Síða 25
Playboy er meira en tímarit
— góð hugmynd, sem þróazt hefur I 20 ár.
Heildarvelta 17 milljarðar
Þegar nafnið Playboy er
nefnt kemur flestum, sem eitt-
hvað fylgjast með á annað
borð, í hug bandarískt tíma-
rit með sama nafni og í því
sambandi einnig léttklæddar
yngismeyjar. Þeta er í sjálfu
sér ofur eðlilegt, þar sem
þetta tímarit hefur nú komið
út í tvo áratugi og í dag er
upplag þess 6,7 milljónir ein-
taka mánaðarlega.
En Playboy er meira en þetta
víðlesna tímarit, það er meðal
virtustu fyrirtækja Bandaríkj-
anna, og veltan á síðasta ári
nam um 17 milljörðum íslenzkra
króna eða rúmlega helmingi af
fjárlögum íslenzka ríkisins.
Playboy Enterprices Inc. ann-
ast að sjálfsögðu útgáfu tíma-
ritsins Playboy, sem var upphaf
ævintýris Hugh Hefners, manns-
ins, sem byggt hefur upp þetta
stórfyrirtæki, sem hefur aðal-
bækistöðvar sínar í Chicago í
Bandaríkjunum. Auk þess rekur
fyrirtækið fjölda veitingastaða
og næturklúbba, spilavíti, bóka-
útgáfu, bílaleigu, kvikmynda-
gerð, hótel, hljómplötuútgáfu
og þar að auki hefur verið
hleypt af stokkunum hliðstæðu
tímariti og Playboy, sem nefnist
Oui.
Playboy kom fyrst út í desem-
ber 1953 og sú draumadís, sem
þar var fyrst kynnt var Marilyn
»0« MiH w
PLAYBOY
♦
4*
Forsíða 20 ára afmælisrits
Playboy.
Monroe. Tímaritið sló þegar í
gegn, og sama má segja um
Marilyn Monroe. Hún þaut upp
á stjörnuhimin kvikmyndanna
fljótlega eftir útkomu blaðsins,
eins og fleiri þeirra „kroppa“,
sem birzt hafa á síðum blaðsins,
áskrifendum til augnayndis.
Hefner hafði áður verið starf-
andi hjá tímaritinu Esquire, sem
er virðulegt og íhaldssamt tíma-
rit fyrir karlmenn með góðan
bókmenntasmekk. Hann taldi
sig geta fundið auðvelda leið til
þess að koma nýju og vönduðu
tímariti til karlmanna, með því
að höfða til áhugamála þeirra
og freista þeirra með kvenleg-
um yndisþokka. Hefner ákvað
að taka áhættuna; hann útveg-
aði sér nokkur þúsund dala lán,
seldi talsvert af hlutabréfum,
sem hann átti og fékk greiðslu-
frest á því, sem þá vantaði á,
til þess að standa undir útgáfu-
kostnaði fyrsta tölublaðsins.
Ætlun hans hafði verið að
kalla tímaritið „Stag Party“, en
hann átti í erfiðleikum með að
fá það nafn skráð, þar sem fyr-
ir var gefið út í Bandaríkjunum
tímarit, sem nefndist „Stag“. í
stað þessa nafns ákvað Hefner
að gefa tímaritinu nafnið Play-
boy og útlitsteiknari, sem unnið
hafði með honum að undirbún-
ingi útgáfunnar, breytti tákn-
mynd blaðsins úr hnarreistu
hjartardýri í kanínu með slaufu.
Upplag blaðsins var í byrjun 50
þús. eintök og það var einungis
selt á blaðsölustöðum; nú nálg-
ast upplagið sjö milljónir ein-
taka og er stór hluti þeirra
seldur í áskrift.
Síðustu árin hafa ýmsir aðilar
'hafið útgáfu tímarita, sem eink-
um eru ætluð karlmönnum, og
líkja að verulegu leyti eftir
Playboy, og ber hæst á lista
keppinautanna tímaritið Pent-
house. Svar Hefners og sam-
starfsmanna hans við þessari
þróun var að hefja útgáfu rits,
sem í fljótu bragði virðist vera
í samkeppni við Playboy, en því
tímariti er fyrst og fremst beint
gegn keppinautunum. Þetta
tímarit heitir Oui. Fyrsta árið
virðist hafa gefizt vel, því að
upplag Oui er nú um ein og
hálf milljón eintaka á mánuði.
Aftur á móti hefur kaupendum
Playboy ekkert fækkað.
Ekki hafa allar framkvæmdir
Hugh Hefner orðið verulega
arðbærar. eða tekizt jafn vel og
útgáfustarfsemin, sem nefnd
hefur verið. Hann reyndi um
tíma að gefa út tímarit helgað
skemmtanaiðnaðinum, sem
nefndist „Show Business Illu-
strated“ en það og nokkrar aðrar
tilraunir af svipuðu tagi tókust
FV 2 1974
25