Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1974, Síða 33

Frjáls verslun - 01.02.1974, Síða 33
18 ár sem Globus h. í., hefur verið rekið í núverandi formi. Þegar ég lét af störfum hjá Heklu og tók við rekstri Globus var þannig um samið að Gillette- umboðið fylgdi fyrirtækinu, auk þess sem samið var um nokkur önnur umboð, sérstaklega fyrir landbúnaðartæki. Globus h. f. hefur því annazt sölu á Gillette- vörum allt frá stofnun og síðan 1956 hefur það einnig selt ýmis landbúnaðartæki sem notið hafa mikilla vinsælda hér á landi, og má þar nefna Gný-blásarana, Kvernelands-heykvíslarnar og Howard-jarðtætarana. Það var strax í upphafi ætlun forráðamanna Globus h.f. að hasla sér völl á sviði landbúnað- artækja og annarra vara til landbúnaðarins. Auk þeirra um- boða, sem áður getur, og fylgdu frá Heklu h.f. hefur fyrirtækið bætt við sig umboðum fyrir ýms- ar aðrar verksmiðjur í Evrópu. Globus hefur átt mjög ríkan þátt 1 þeirri þróun sem orðið hefur í vélvæðingu landbúnað- arins undanfarin ár og fullyrða má, að ýmis tæki, sem Globus hefur rutt braut hér á landi, hafi valdið byltingu í búrekstri bænda. Árið 1969 gengust forráða- menn Globus h.f. fyrir stofnun íslenzk-tékkneska verzlunarfé- lagsins með það fyrir augum að flytja inn ýmsar vörur frá Tékkóslóvakíu, þar á meðal hjóladráttarvélar. Innflutning- ur á Zetor traktorum hófst svo sama árið, og er nú svo komið að þetta er mest selda dráttarvélin hér á landi. Framkvæmdastjóri ístékk er Ragnar Bernburg. Með tilliti til hinna miklu við- skipta sem Globus h.f. átti við bændur var ákveðið 1968 að hefja innflutning á fóðurvörum og var samið um kaup á þess- um vörum frá fóðurblönduverk- smiðju Elias B. Muus A/S í Dan- mörku, sem er 150 ára gamalt fyrirtæki og nýtur mikils áiits þar í landi fyrir vandaðar vörur. Fyrsti farmurinn af fóðurvörum kom svo til landsins í desember 1968 og var hér einungis um sekkjaðar vörur að ræða. Þró- unin i þessum innflutningi hef- ur verið einkar ánægjuleg og hefur innflutningur á þeim vörum numið fleiri þúsund tonn- um. Globus hefur aðstöðu fyrir þessa starfrækslu í Hafnarfirði, og síðan um áramótin 1970—71 einnig fyrir laust fóður, og er því fóðri blásið beint úr lestum skipanna í fóðurgeymana. Hér var um brautryðjendastarf að ræða. Fóðrið er nú selt bænd- um og keyrt til þeirra bæði laust og sekkjað. í fyrra tók Globus að sér um- boðið fyrir frönsku Citroen-bíla- verksmiðjurnar. Á því fyrsta ári voru fluttar inn um 140 bifreið- ar af ýmsum gerðum og bindur fyrirtækið miklar vonir við sölu á Citroen bílum enda telj- um við þá henta íslenzkum stað- háttum mjög vel. Vegna hag- stæðs gengis á franska frankan- um um þessar mundir er verð bílanna mjög lágt samanborið við ýmsar aðrar gerðir. Á árinu 1970 stofnuðu for- ráðamenn Globus fyrirtæki í Skagafirði, Globusfóður h. f., ásamt innanhéraðsmönnum og hefur salan þar á fóðrinu geng- ið vel. Þegar Globus h.f. hóf aftur sjálfstæðan rekstur árið 1956 var tekið á leigu 50 fermetra húsnæði að Hverfisgötu 50 og iítil geymsla fyrir varahlutina var tekin á leigu í öðru húsi. Þá voru aðeins 3 starfsmenn sem unnu hjá Globus. Vinnuskilyrði voru þarna afleit og með aukn- um umsvifum var nauðsynlegt að koma rekstrinum í annað hús- næði. Árið 1960 réðist Globus h.f. í að kaupa 200 fermetra hús- næði að Vatnsstíg 3 og þar var Globus til húsa til ársins 1966, að reksturinn var fluttur í ný- byggingu fyrirtækisins að Lág- múla 5. Af eðlilegum ástæðum hafði Globus þá ekki bolmagn til að byggja yfir starfsemina í einum áfanga, og var því ekki hægt að koma á því skipulagi, sem hugsað hafði verið, og var innréttað bráðabirgðahúsnæði fyrir skrifstofurnar. Árið 1970 var svo ráðizt í að byggja þann hluta hússins sem hýsa átti í dagsins önn í ýmsuin deildum fyrirtækisins. FV 2 1974 33
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.