Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1974, Blaðsíða 47

Frjáls verslun - 01.02.1974, Blaðsíða 47
Bandag hjólbarða- sólunin hf: Kald- sólun Bandag hjólbarðasólunin h.f. er nýtt fyrirtæki, sem stofnað var í nóvember á síðasta ári, og er til húsa að Dugguvogi 2, Reykjavík. Eigendur fyrirtæk- isins eru: Kristján Helgason, sem jafnframt er fram- kvæmdastjóri, Halldór Frið- riksson og Friðrik Weisshappel. Bandag er bandarískt fyrir- tæki, sem framleiðir ýmsa hluti og vélar í sambandi við sóln- ingu á hjólbörðum. Selur fyrir- tækið nú Bandag vörur og vél- ar fyrir um 70 milljónir dala á ári. Samkvæmt rannsóknum fyrirtækisins fæst þreföld end- ing á við heitsólaða hjólbarða, á kaldsóluðum hjólbörðum. Nið- urstöður rannsóknanna sýndu einnig að greitt er langminnst verð fyrir hvern ekinn kílómet- er á kaldsóluðum Bandag hjól- barða. F.V. átti samtal við Kristján Helgason, framkvæmdastjóra og ræddi við hann um fyrirtækið og hina nýju kaldsólun. Fyrir- tækið sólar aðallega hjólbarða á stóra flutningabifreiðar, steypu- bíla, strætisvagna o. fí. Meðal helztu viðskiptavina eru: Stræt- isvagnar Reykjavíkur, ýmis verktakafyrirtæki, Sements- verksmiðja ríkisins, nokkur kaupfélög, Vélamiðstöð Reykja- víkurborgar, steypustöðvar o. fl. Nýr hjólbarði (1100x20) und- ir vörubíl kostar um 21 þúsund krónur, að sögn Kristjáns, en það kostar 12.600 krónur að sóla slitinn barða, sem hann ságði vera 20—50% endingarmeiri en nýr hjólbarði. Sagði hann að samkvæmt útreikningum sem gerðir voru fyrir fyrirtæki nokk- urt í Reykjavík, sem á 3 vöru- bifreiðar, sem eru mjög mikið eknar, að fyrirtækið sparaði um 1 milljón króna árlega með því að nota kaldsólaða hjólbarða. En hvað er kaldsólun? Krist- ján kvað kaldsólun í því fólgna, að í stað þess að sjóða hrá- gúmmilengjurnar (camelbag) á slitinn barða, sem hefur að auki í för með sér, að barðinn tapar stórum hluta af styrkleika sín- um, er aðeins ntaður 90° F hiti til þess að flýta fyrir límingu. Hann sagði 90° F hita algengan Bandag hjólbarðasólun er á margan hátt mjög frá- brugðin þekktum sólunarað- ferðum. í eftirfarandi myndaröð sjást í stórum dráttum ýmis framleiðsl'u- stig sólunarinnar. Hjólbarðinn skorðaður til að finna út skemmdir og hugsanlega galla á belgnum. Skemmdir merktar fyrir við- gerðarmann. Að lokinni skoðun og við- gerð er barðinn settur upp í sérstakan rennibekk, þar sem hann er renndur niður, þar til sléttur flötur fæst, til þess að unnt sé að setja nýja slit- banann á. Jafnframt er jafn- vægi barðans tryggt. Eftir aðgerðina í renni- bekknum er barðinn aftur tekinn til athugunar, og all- ar holur og göt, sem kunna að vera á slitfletinum, fyllt með sérstöku viðgerðar- gúmmí. Síðan er nýi slitbaninn settur á barðann. Slitbaninn er framleiddur úr gúmmí- blöndum við sérstaklega mik- inn þrýsting, eða allt að 2400 pund á fertommu. Til að festa Bandag slitbanann á er notað sérstakt límgúmmí. Slitbaninn er valtaður nið- ur milli þrýstivalsa. Þetta er gert til þess að pressa loft undan bananum. Síðan er dekkið klætt í sérstakt gúmmíumslag, og sett á sér- staka felgu. Að lokum er barðinn settur inn í Bandag þrýstiklefa, þar sem hin eiginlega festing hins nýja slitbana á sér stað við um 90° F hita. Jafnframt er barðinn blásinn út með slöngu, og umslagið, sem ut- anum er, er einnig blásið upp þannig, að mjög nálægt því, er að jafn þrýstingur sé ut- an og inn í barðanum. Eftir u. þ. b. 4 klukkustundir í þrýstiklefanum er svo barð- inn tilbúinn til notkunar. Bandag-hjólbarðasólunin h.f. getur sólað um 40—50 vöru- bíladekk á dag. á hjólbörðum í akstri. Kristján kvað Bandag fyrir- tækið hafa keypt einkaleyfi á „Micro-sipe” eða smáskoru- munstri, sem á að koma í stað snjónagla og snjókeðja. „Micro- sipe” er margar þéttar skorur, sem skornar eru með beittu Framleiðslu- stig kald- sólunar blaði, þvert yfir munsturbarð- ann, örlítið á ská. Sagði hann þessa „Micro-sipe” barða hafa 30—40% betri spyrnu, heldur en beztu hjólbarðar á vegum. Hefur Bandag hjólbarðasólunin þessa smáskorumunstur á boð- stólum hér. FV 2 1974 47
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.