Frjáls verslun - 01.02.1974, Blaðsíða 89
'HMnRKMNUM
Lyftarar
Að þessa sinni fjallar niark-
aðsþáttur Frjálsrar verzlunar
um lyftara. Samhliða aukinni
hagræðingu í atvinnulífinu
hefur notkun lyftara orðið æ
algengari í frystihúsum, verk-
smiðjuin, vörugeymslum svo
eitthvað sé talið. F.V. hef’ur
haft samband við þá aðila,
sem flytja þessi tæki til lands-
ins og fcngið upplýsingar um
það sem boðið er upp á.
KOMATSU
Hjá Heildverzlun Harðar
Gunnarssonar, sem hefur umboð
fyrir Komatsu lyftara sagði
Hjörtur Sigurðsson sölumaður
okkur, að frá því að fyrirtækið
tók við umboðinu ívrir einu ári
hafðu 14 lyftarar verið pantað-
ir. Tveir eru á leiðinni, en 12
væntanlegir síðar á þessu ári.
Komatsu er eitt stærsta fyrir-
tæki sinnar tegundar í heimin-
um og framleiðir einkum vinnu-
vélar. Má t. d. nefna, að eitt
stærsta vinnuvélaleigufyrirtæki
í Bretlandi er með 80% af sín-
um vélum frá Komatsu. Fyrir-
tæki þetta heitir L. Lipton.
Boðið er upp á rafmagns, die-
sel og benzínlyftara af öllum
stærðum og með öllum hugsan-
legum aukahlutum, svo sun
snúningsgöfflum, klemmugc ffl-
um o. s. frv. Á þessum lyfturum
eru hreinsitæki, sem hreinsa 90
% útblástursins frá vélunum í
sambandi við vinnu innanhúss.
Þá eru vélarnar þannig gerðar,
að þær þola auðveldlega, að far-
ið sé með þær úr 20 stiga frosti
innanhúss út í 20 stiga hita úti.
Hægt er að fá lyftara af öllum
stærðum og hvað snertir vara-
hluti er fullkomin slík þjónusta
í Briissel og hægt að fá vara-
hluti með dags fyrirvara. Verð
á 3ja tonna lyftara hingað komn-
um með öllum venjulegum út-
búnaði sagði Hjörtur vera mið-
að við síðustu útreikninga um
1345 þúsund kr.
CLARK
Elding Trading Company hef-
ur umboð fyrir Clark lyftara og
hafa þeir verið í notkun hér á
landi um áratugaskeið. Eitthvað
á 2. hundrað slíkir lyftarar hafa
nú verið fluttir inn. Paul Jansen
sölumaður tjáði F.V. að hægt
væri að fá lyftara með allt frá i
lestar lyftigetu upp í 30 lestir,
en algengasta stærðin væri frá
3—3,5 lestir. Mest er af diesel-
lyfturum, en sala á rafmagns-
lyfturum hefur aukizt undan-
farið. Fyrirtækið býður upp á
allan hugsanlegan aukabúnað,
en lyftararnir eru einkum smíð-
aðir í Bretlandi og V-Þýzkalandi
þótt móðurfyrirtækið sé banda-
rískt. Verð er eðlilega mjög
breytilegt eftir stærð og auka-
búnaði, en miðað við gengi í dag
væri lauslega áætlað verð á 2,5
tonna lyftara um 1300 þúsund
kr. og er þá miðað við dic":el-
lyftara. Rafmagnslyftari er að-
eins dýrari, en benzínlyfari að-
eins ódýrari. Fyrirtækið Véla-
röst sér um viðgerða*-- og vara-
hlutaþjónustu.
CATERPILLAR
Hekla h.f. hefur umboð íyrir
Catepillar lyftara og tók við því
umboði 1971. Jóhannes Karls-
son sölumaður hjá Heklu tjáði
okkur, að 6—7 lyftarar væru nú
komnir til landsins, eða á leið-
inni, en í undirbúningi væri að
flytja lyftarana inn á lager, en
fyrirtækið legði nú áherzlu á að
byggja upp varahlutalager fyr-
ir þá og er stefnt að því, að því
verði lokið fyrir næsta haust.
Aðaláherzla er lögð á lyftara af
stærðinni 1,5—3 tonn með 50 cm
þungamiðju á farmi.
Boðið er upp á þrjár stærðir af
rafmagnslyfturum með öllum
hugsanlegum aukabúnaði, 1.5,
2.0 og 2.5 lestir.
Af diesel og bezínlyfturum er
boöið upp á eina stærð 1.5 tonn
en tvær stærðir í 2ja tonna
flokknum, stuttan innilyftara en
lengri útilyftara. Slíkur lyftari
með vökvastýri kostar um 1270
þúsund með vökvastýri. Þá eru
tvær stærðir á sama hátt af
diesellyfturum með 2.5 lesta
lyftigetu og ein stærð fyrir 3ja
lesta lyftigetu. Lyftararnir eru
framleiddir í Belgíu og Bret-
landi.
YALE
G. Þorsteinsson og Johnson
hefur haft umboð fyrir Yale-
lyftara í um 20 ár og eru nú um
70 slíkir lyftarar í notkun hér á
iandi. Valgarð Jörgensen sölu-
maður hjá fyrirtækinu tjáði
FV 2 1974
89