Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1974, Blaðsíða 33

Frjáls verslun - 01.10.1974, Blaðsíða 33
settum hugsanlega upp heima- stjórnarkerfi á móti ríkinu í orkumálum, orkusölu og orku- vinnslu," sagði Ingimundur. „Við teljum að þetta miðstjórn- arkerfi frá Laugavegi 116 hafi ekki skilað því hlutverki, sem til er ætlast. Við búum hér við úrelt orkuflutningskerfi og höfum dregist afturúr í orku- öflun, svo þessi mál eru í ó- lestri hjá okkur. Fjarstýring þessara mála frá Reykjavík býðiur upp á hvers- kyns mistök og skyssur vegna þekkingarleysis og skilnings- skorts á málefnum okkar. Síð- ast en ekki sist þá er laun- aður og ráðinn ríkisstarfs- maður ekki eins marktækur í viðræðum við löggjafar- og fjárveitingarvald eins og sam- eiginlegur hópur lýðræðiskjör- inna fulltrúa heils landshluta. Þarna erum við líklega komnir að því, hvers vegna við viljum valddreifingu.“ SAMGÖNGUR. „Við stefnum að því að efla verulega flug hér innan fjórð- ungsins og teljum dýrmætt að geta haldið hér uppi sjúkra- póst- og farþegaflugi. Flug- málastjóri hefur sýnt þessu máli góðan skilning og hafa nokkrar endurbætur átt sér stað á flugvöllum hér. Þá má bæta rekstur Ríkisskips, sé rætt um siglingar. Það, sem háir þeim mest, er aðstaða til vörumóttöku, þótt skipakost- urinn sé orðinn allgóður. Auka þarf beinar siglingar að utan hingað, t. d. til Hafnar í Hornafirði og Reyðarfjarðar, en á báðum stöðum eru stór- ar svæðishafnir. Árið 1972 var umskipunarkostnaður reiknað- ur út miðað við að vörum til okkar væri fyrst skipað upp í Reykjavík, og reyndist hann að jafnaði 2,70 kr. pr. kíló, en er nú komin yfir 7.00 kr. pr. kg. Margir álíta að vegirnir úti í dreifbýlinu séu aðeins fyrir dreifbýlisfólkið, en það er dá- lítill misskilningur. Þeir sem nota þessa vegi mest, eru höf- uðborgarbúar og þeirra ná- grannar. Þeir fjölmenna út um land á sumrin, rétt þegar við höfum lokið við að setja slit- lag á vegina eftir veturinn, og þessir ágætu landar okkar hafa það af að klára slitlagið af vegunum fyrir haustið svo ófremdarástand skapast í um- hleypingatíð. Hringvegurinn kemur okkur aðallega til góða á vetrum, sem samgönguleið fyrir vöruflutninga, en á Ingimundur Magnússon framkvæmdastjóri. meðan við höfum þröskulda eins og Breiðamerkursand og Lónsheiði meira og minna ó- færa, þá er hringvegurinn lít- ið meira í augum okkar en skemmtilegt nafn. Um flugsamgöngur, aðrar en Flugfélag Austurlands, er það að segja, að Flugfélag ís- lands heldur uppi all þokka- legri þjónustu við fjórðunginn, t. d. eru daglegar ferðir milli Reykjavíkur og Egilsstaða.“ FÆKKUN NYRST. Þar sem samgöngur eru gjarnan talin forsenda þess að landssvæði séu byggileg, lá beint við að spyrja hvort fólks- flótti væri frá einhverjum hér- uðum, og kom þá í ljós að fólksfækkun hefur orðið í Skeggjastaðahreppi, sem er á NA-horninu, enda var það ekki fyrr en á sl. ári að regluleg- ar flugsamgöngur voru teknar upp við héraðið. Það er þó ekki vegna þess að afkoma sé þar slæm, því í fámennu þorp- inu við Bakkafjörð, þar sem menn stunda smábátaútgerð, skilar hver maður um hálfri milljón króna í gjaldeyristekj- ur á ári, og eru þá börn og gamalmenni meðtalin. Svip- að vandamál er við að etja í Borgarfirði, og er þar mjög að- kallandi að bæta hafnarskil- yrði til að greiða fyrir útgerð þaðan. Ingimundur taldi mjög þýðingarmikið að bæta aðstöðu fólks á þessum stöðum, svo þeir legðust ekki í auðn. HEILBRIGÐISMÁL. „Það er sem betur fer að birta til í heilbrigðismálum," sagði Ingimundur. „Árið 1972 vann Samband sveitai'félaga í Austurlandskjördæmi mikið verk í þeim efnum með að samræma heimasjónarmiðin í heilbrigðismálum og koma inn í heilbrigðislöggjöfina atriðum, er tryggðu hverjum lands- manni lágmarks heilbrigðis- þjónustu. Læknaskortur er ekki á Austfjörðum nú. Unniði er að uppbyggingu heilsu- gæslumiðstöðvar á Egilsstöðum og það liggur alveg klárt fyr- ir hve’rnig við ætlum að byggja þetta upp hjá okkur og nokkurn veginn í hvaða röð. Það er ekki ólíklegt að árið 1982 verði uppbyggingu heil- brigðisþjónustunnar lokið að sinni.“ UPPBYGGING. „Það er ekki nærri nógu mikið byggt af íbúðarhúsnæði í fjórðungnum, enda skortir byggingariðnaðinn vinnuafl, sem ætti að geta verið ungum byggingariðnaðarmönnum hvatning til að flytjast hingað. Þá höfum við hafið varanlega gatnagerð, sem er liður í um- hverfisumbótum. Gatnakerfi fjórðungsins er um 60 km og nú eru 20 km orðnir varan- legir. Nú vantar okkur láns- fyrirgreiðslu, svo að þessi gatnagerð geti áfram gengið eðlilega. Við þurfum helst að vera búnir að ljúka varanlegri gatnagerð í fjórðungnum árið 1978.“ FÉLAGSLÍF. „Það er töluvert af félags- heimilum, og á veturna sér- staklega er blómlegt félagslíf, enda meira um frístundir en á sumrin, þrátt fyrir blessaða loðnuvertíðina. Þorrablót eru fastur liður í öllum byggðar- lögum og mjög til þeirra vand- að. Kórar, bæði barna og full- orðinna, eru víða starfandi, og eins hljómsveitir. í flestum stærri sveitarfélögunum eru færð upp leikrit á vetrum, og það sem gerir félagslífið hér svo skemmtilegt er að fólkið, er allt meira og minna þátttak- endur í sköpun þess sjálft. Það er ekki bara þiggjendur, heldur um leið veitendur. ÍÞRÓTTIR. „Ég vona að samstaða náist um uppbyggingu íþróttamið- FV 10 1974 33
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.