Frjáls verslun - 01.10.1974, Qupperneq 41
Frá Djúpavogi. T. v. sést verzlun og vör'uskemm a kaupfélagsins. Fyrir ofan skemmuna á bryggj-
unni sést í nýja frystihúsið, og við bryggjuna liggur stærsti báturinn, sem gerður er út frá
Djúpavogi.
Hjörtur Guðmundsson, Djúpavogi:
Hér snýst allt í kringum sjóinn
og nýja frysfihúsið á staðnum
„Hér snýst allt í kringum
sjóinn og nýja frystihúsið,“
sagði Hjörtur G'uðmundsson,
kaupfélagsstjóri á Djúpavogi í
viðtali við F.V. Djúpivogur
er fallegur og sérkennilegur
staður og var mikið um ferða-
menn þar sl. sumar.
NÝTT FRYSTIHÚS.
Kaupfélagið er lang um-
fangsmesta fyrirtækið á staðn-
um, en dótturfyrirtaeki þess,
Búlandstindur ihf., er um
þessar mundir að reisa nýtt
og veglegt frystihús þar. Verðr
ur húsið 2300 fermetrar að
flatarmáli og þegar það verður
tilbúið tækjum er reiknað með
að þar verði unnt að vinna
um 40 tonn af fiski á dag,
eða á tíu klst. Það verður
væntanlega fullbúið á árinu
1976. Fyrir er gamalt og úr-
elt frystihús, sem alls ekki
annar því fiskimagni, er
bærist á land á Djúpa-
vogi, ef fullkomin aðstaða
væri fyrir hendi. Nýja húsið
er staðsett niðri við aðal-
bryggjuna og verður því
hægt að landa beint upp í hús-
ið, og einnig að skipa beint úr
því í flutningaskip. Búlands-
tindur hf. á og rekur einnig
síldarverksmiðju, þar sem
loðna er nú brædd á vetrum,
og bárust þangað um 8 þúsund
lestir loðnu á síðustu vertíð.
Nýlega er búið að byggja á-
gætis bryggju, en eftir er að
sprengja úr innsiglingunni,
fyrir stærri skip, og æskilegt
væri að reisa varnargarð fyrir
utan, en að öðru leyti sagði
Hjörtur að hafnaraðstaða væri
góð.
Atta bátar
GERÐIR ÚT.
Átta bátar eru gerðir út
frá Djúpavogi, einn 250 lesta,
einn 70 lesta, einn 45 lesta og
fimm smærri bátar, sem aflað
hafa vel á rækjuveiðum. Þá
stefna Djúpavogsbúar að þvi að
geta eignast nýjan skuttogara,
um leið og frystihúsið verður
fullgert, og er þegar farið að
kanna möguleika á því. Að
sögn Hjartar yrði það ómetan-
leg lyftistöng fyrir staðinn og
mundi skapa fjölda fólks ör-
ugga atvinnu.
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ.
Djúpivogur er þjónustumið-
stöð fyrir nágrennið, en
þar búa nú um 350
manns, og hefur fjölgað þar
síðustu tvö árin, sem Hjörtur
þakkar hinni miklu uppbygg-
ingu útgerðarinnar á staðnum.
í næstu sveitum eru íbúar um
250 og stunda þeir vinnu á
Djúpavogi, þegar mikið er að
gera, t. d. í sláturtíðinni, en
sláturhús er á Djúpavogi. Þar
er einnig mjólkurstöð, verk-
stæði, verzlun og gistihús, en
kaupfélagið og Olíuverzlun ís-
lands eru í sameiningu að
byggja ferðamannaverzlun,
sem tilbúin á að vera fyrir
næsta sumar.
NÝTT FÉLAGSHEIMILI.
Af helztu verkefnum hrepps-
félagsins má nefna að verið
er að byggja talsvert við
barnaskólann. Varanleg gatna-
gerð er komin verulega á veg,
eins og reyndar víðast í aust-
firskum plássum, og er stefnt
að því að halda henni áfram.
Loks má geta þess að hreppur-
inn hyggst ráðast í byggingu
nýs félagsheimilis, en gamla
félagsheimilið, Neisti, sem
margir munu þekkja, þykir
ekki lengur boðlegur til
mannamóta.
FV 10 1974
41