Frjáls verslun - 01.10.1974, Page 51
Útlendingar í Thailandi eiga margir reisuleg hús með sund-
laugum í garðinum. Þetta er hús Gunnars í Bangkok.
fjölskyldu minni í Bangkok.
Þó að ýmsir ókostir séu á
þessu fyrirkomulagi þá er
vart annað verjandi vegna
öryggisaðstæðna í Kambodíu
og Víetnam. Einnig er mjög
mikilvægt, að í Bangkok er
starfræktur mjög góður al-
þjóðaskóli, sem starfar eftir
bandarísku menntakerfi. Eru
börn min öll nemendur við
þann skóla. Á milli dvala í
Asíu höfum við svo búið í út-
jaðri Washington, en þar eig-
um við hús í Marylandfylki.
Þar sem flutningar okkar
hafa alltaf miðast við skóla-
ár hefur ekki orðið um neina
truflun í skólagöngu barnanna
að ræða. Þess vill stundum
gæta að tíðir flutningar hafi
slæm áhrif á börn. Sem bet-
ur fer hefur þessa alls ekki
gætt í okkar tilfelli og börnin
eru mjög sátt við þau óvenju-
legu skilyrði, sem þau hafa al-
izt upp við. Álít ég þess vegna,
að börnin hafi haft mjög gott
af kynnum sínum við fjöl-
mörg lönd heims bæði í Asíu
og einnig í Miðausturlöndum
og Evrópu þar sem við höfum
stoppað á ferðum okkar. Ég
tei, að það hafi verið mjög
þroskandi fyrir þau og hafi
víkkað sjóndeildarhring þeirra
að hafa fengið tækifæri til
þess að kynnast lífsskilyrðum
og venjum þjóða, sem eru um
margt frábrugðnar þjóðum
Vesturlanda.
F.V.: — Hvernig hefur geng-
ið a.ð halda við tengslum ykk-
ar við ísland og íslendinga á
■meðan á þcssari löngu dvöl
erlendis hefur staðið?
Gunnar: — Við höfum kom-
ið við á íslandi til lengri eða
skemmri dvalar á hverju ári
síðan 1960. Þó að oft hafi ver-
ið um stutta viðdvöl hjá mér
sjálfum að ræða þá hafa kon-
an mín og börn oft dvalið hér
dágóðan tíma að sumri til. Á
þennan hátt höfum við reynt
að tryggja sem nánust tengsl
barnanna við landið og við
vini og vandamenn.
Að þessu sinni hefur ferð
okkar hingað verið sérstaklega
ánægjuleg, þar sem eldri dótt-
ir okkar var fermd við stér-
staka athöfn í Háteigskirkju
14. júlí s.l. í Washington höf-
um við ætíð haft mikið sam-
band við þá fjölmörgu íslend-
inga, sem þar dveljast við nám
eða störf. Þar er starfandi ís-
lendingafélag og eru meðlimir
nálægt 200 talsins. Þess má
geta að ég gegndi formanns-
störfum frá upphafi þess 1969
þar til fyrir 2 árum. Við hjón-
in höfum • ,:ð notað íslenzku
sem aðaln.á \ heimili okkar
bæði í Bandaríkjunum og
Asíulöndum. Þó að börnunum
sé tamara nú orðið að tala
ensku vegna skólanáms á því
máli, höfum við ætíð notað ís-
lenzku í tali okkar við börnin.
Einnig hafa hinar tíðu ferðir
til íslands orðið til þess að
börnunum hefur gengið betur
að viðhalda málinu.
F.V.: — Hvernig er a.ð búa í
Bangkok?
Gunnar.: — Við höfum búið
þar við mjög góðar aðstæður
og má segja að lífsmáti okkar
þar sé líkari því sem gerist í
Bandaríkjunum og Vestur-
Evrópu. heldur en meðal Thai-
lendinga sjálfra. Það er lýjandi
að dveljast við störf í hita-
beltinu fyrir marga Vestur-
landabúa og ef til vill sér í
lagi fyrir þá okkar, sem alizt
hafa upp við íslenzkt veður-
far. Því er meira upp úr því
lagt að búa í stóru húsnæði
þar sem hægt er að koma
við loftkælingu og að hafa af-
not af eigin sundlaug. Þetta
árið höfum við búið í tveggja
hæða húsi í Bangkok sem
verður að teljast nokkuð í-
burðarmikið á þarlendan og ís-
lenzkan mælikvarða. Til að
mynda er flatarmál stofu og
forstofu um það bil 135 fer-
metrar og önnur herbergi í
samræmi við það. Við höfum
tvær thailenzkar þjónustu-
stúlkur, sem sjá um allar
hreingerningar og þvotta en
okkur hefur þótt fara bezt á
því að konan hugsaði um
matseldina að mestu sjálf.
Einnig höfum við einkabil-
stjóra, sem sér jafnframt um
viðhald og viðgerð bifreiðar
okkar sem við fluttum með
okkur frá Washington.
Daglegt lif í Bangkok er
nokkuð frábrugðið því sem
við eigum að venjast á Vestur-
löndum. T. d. þurfa börnin að
vakna kl. 6 á morgnana þar
sem skólabíllinn sækir þau um
kl. hálf sjö fimm daga vik-
unnar. Það er einkum tvennt,
sem vinnst við að byrja skóla
þetta snemma dags. í fyrsta
lagi er komizt hjá heitasta
tíma dagsins, sem er gjarnan
síðla eftirmiðdags og í öðru
lagi er umferð í Bangkok
mjög mikil og mikið um um-
ferðatruflanir ef lagt er af
stað öllu seinna. Til viðbótar
við þau fög, sem tíðkast í
bandarísku menntakerfi, þurfa
börnin að læra thailenzku og
eldri dóttirin hefur einnig
lagt stund á frönsku. Utan
skólatíma er það helzt til
dægrastyttingar fyrir börnin
að leika sér í sundlauginni,
þar sem þau eyða miklum
tíma. Einnig hefur eldri dótt-
irin stundað nám við reiðskóla
tvisvar í viku og hún hefur
tekið þátt í námskeiðum, þar
sem kennd hefur verið batik-
gerð. Öll börnin hafa síðan
FV 10 1974
51