Frjáls verslun - 01.09.1976, Page 14
Flugstöðin á Keflavikurflugvelli:
Sífelldar bráðabirgðalausnir
Teikningar af nýrri flugstöð strandaðar ■ kerfinu
„Lengi getur vont versnað“ varð honum að orði embættismanni ríkisins sem setti stimpil sinn á
tcikningar af nýju viðbótarskemmunni, sem smíðuð hefur verið áföst við flugstöðvarbygginguna
á Keflavíkurfl'ugvelli. Þessi einstaki arkitektúr í hinni alþjóðlegu flughöfn okkar er fyrsta og
oft einasta nasasjón, sem erlendir flugfarþegar fá af byggingarlist fslendinga. Fyrir landsmenn
sjálfa býður flugstöðvarbyggingin ekki upp á annað en þrengstu skilyrði til nauðsynlegustu af-
greiðslustarfa vegna flugfarþega. Margs konar þjónusta sem fyrirfinnst í samskonar stofnunum er-
lendis rúmast ekki í byggingunni á eina alþjóðlega flugvelli okkar.
Flugstöðin
á Keflavíkur-
flugvelli.
Bak við
viðbyggingar
af ýmsu tagi
sér enn í
upphaflegu
flugstöðina
sem á sínum
tíma var
þokkalegasta
bygging.
Aðalbygging flugstöðvarinn-
ar á Kef'lavíkurflugvelli var
reist fyrir nærri 30 árum, þeg-
ar völlurinn var nauðsynlegur
áningarstaður farþegaflugvéla
þeirra tíma sem í förum voru
milli Evrópu og Ameriku. Sið-
an varð afturkippur í umferð
farþegavéla um völlinn til árs-
ins 1965 þegar Loftleiðir fluttu
flugstarfsemi sína þangað suð-
ureftir af Reykjavíkurflugvelli
með tilkomu Rolls Royce-400
flugvélanna. Þegar Flugfélag
íslands hóf þotuflug milli landa
fluttist sá þáttur starfsemi þess
til Keflavíkur og hefur allt
millilandaflug Íslendinga verið
stundað þaðan síðan, að Fær-
eyjaflugi og hluta Grænlands-
flugs undanskildu.
FARÞEGUM FJÖLGAR
í fyrra fóru samtals 473 þús-
und farþegar um völlinn en
hafa stundum áður komizt yfir
hálfa milljón. Var það á þeim
árum er erlend leiguflugfélög
höfðu tíðar viðkomur hér á
landi og flutningar Loftleiða
voru í hámarki. Þróunin núna
er tvímælalaust upp á við og
má í því sambandi benda á að
farþegafjöldinn fyrstu átta
mánuði þessa árs ar nærri 356
þúsund en 345 þúsund á sama
tíma í fyrra.
Eftir því sem umferð farþega
um völlinn jókst var brugðið á
það ráð að byggja við gömlu
aðalbyggingu flugstöðvarinnar
og breyta þar starfsemi innan
veggja en um langt árabil var
þar m.a. rekið hótel, sem varð
að víkja fyrir skrifstofum og
öðru tilheyrandi daglegri flug-
þjónustu, Farþegasalir hafa
verið stækkar, aðstaða sköpuð
Afgreiðslusal'ur fyrir brottför farþega. Eins og sjá má er Ioft enn
ófrágengið, en nú hafa framkvæmdir stöðvazt í hili.
14
FV 9 1976