Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1976, Page 16

Frjáls verslun - 01.09.1976, Page 16
I verzlun Fríhafnar- innar. Ólafur Thordcrsen. Fríhafnar- stjóri (t.v) og Ólafur Jónsson, verzlunar- stjóri. staðan til matargerðar svo frumstæð, að matur er keypt- ur erlendis fyrir Atlantshafs- flugið og það sem nauðsynlega þarf að taka um borð hér er kannski ekki eins frambæri- legt og óskað væri vegna lé- legrar eldhúsaðstöðu. AUKIN ÞJÓNUSTA HJÁ FRÍHÖFN Fríhöfmin hefur nýlega tekið í notkun nýtt húsnæði fyrir af- greiðslu við farþega sem eru að koma inn í landið. Að sögn Ólafs Thordersen er þetta til að bæta þjónustu við viðskipta- vini og hraða henni því að þarna er sjálfsafgreiðsla eins og í hinum hluta Fríhafnar- verzlunarirmar. Sala Fríhafnarinnar eykst jafnt og þétt og nam í ágústlok tæpum 550 milljónum króna frá áramótum. Salan allt árið í fyrra var hins vegar 644 millj- ónir. Farþegar á ieið inn í landið fá nú einnig meira rúm i mót- tökusal fyrir farangur og toll- skoðun en hann hefur verið stækkaður með nýrri viðbygg- ingu eins og afgreiðsla Frí- hafnar. Þær framkvæmdir, sem nú eiga sér stað í gömlu flugstöð- inni eru til bráðabirgða, því að beðið er eftir nýrri flugstöð Flugleiðir hafa frestað bygg- ingu á nýju eldhúsi þar til end- anlegar ákvarðanir lægju fyrir um staðsetningu nýrrar flug- stöðvar. Hún myndi stórlega bæta aðbúnað og þjónustu við farþega ekki sízt, þar sem gert hefur verið ráð fyrir að far- þegar gætu gengið beint úr biðsal um borð í flugvélina ó- háðir veðri og vindum, sem gerast fyrirferðarmiklir á Mið- nesheiðinni á stundum. Franskir og danskir sérfræð- ingar hafa unnið að umferðar- spám og forsögn fyrir þessar framkvæmdir en málið er strandað í kerfinu. f síðustu viðræðum um varnarsamning- inn við Bandaríkjamenn var á- kveðið að starfsemi hersins og þjónusta við almennt milli- landaflug skyldi skilin að m.a. með nýrri flugstöðvarbyggingu og annarri akstursleið af flug- vallarsvæðinu en niú er. „EINS OG HARMONIKA“ Pétur Guðmundsson, flug- vallastjóri sagði í sambandi við F.V. að það tæki um 12 mánuði að gera arkitekta- og verk- fræðiteikningu af flugstöðinni nýju. Síðan mætti búast við að fyrsti áfangi hennar, með álíka salarkynnum og nú eru í gömlu flugstöðinni, yrði tvö ár í bygg- ingu. Væri byggingin þraut- hugsuð og mætti „þenja hana út eins og harmoniku eftir þörfum“ að sögn flugvallar- stjórans. Hann gat þess, að 80 milljón- um hefði verið varið til síðustu breytinga á brottfarar- og komusal í gömlu flugstöðinni auk lagfæringa á bílastæðum. Verkefninu væri efcki lokið en farið hefur verið fram á 42 milljón króna fjárveitingu til að ljúka því á næsta ári. TEKJUR, SEM EKKI KOMA FLUGVELLINUM TIL GÓÐA Ríkið hefur umtalsverðar tekjur af flugvellinum og mörgum finnst kynlegt að þær skuli ekki notaðar til að koma upp sómasamlegri aðstöðu fyr- ir flugfarþega. Tekjur ríkisins af flugvallaskatti vegna milli- landaflugs eru einar sér áætl- aðar 195 milljónir á árinu. Af lendingargjöldum verða tekjur rikisins 220 milljónir og vegna íslenzks markaðar verður að greiða 21 krónu á hver.n án- ingarfarþega sem um völlinn fer en heildartala er áætluð 5.3 milljónir miðað við 8% fjölgun þessara farþega frá því í fyrra. Pétur Guð- m’undsson, flugvallar- stjóri í skrifstofu 16 FV 9 1976

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.