Frjáls verslun - 01.09.1976, Qupperneq 34
*
Islensk iðnkynning:
Afstaða almennings til íslensks
fatnaðar er mjög jákvæð
— Sýningin íslensk föt kostaði 11 milljónir
Ein umfangsmesta fatasýn-
ing sem lialdin hefur veri'ð hcr
á landi fór fram í Laugardals-
höllinni í september. 30 ís-
lenskir fataframleið'cndur tóku
þátt í sýningunni, sem var um
Ieið kaupstefna, og hana sóttu
rúmlega 21.000 manns. Aðsókn
fór langt fram úr vonum for-
ráðamanna sýningarinnar. Hér
á landi fást um 200 einstakling-
ar og fyrirtæki við fatafram-
Iciðslu, en um 1700 manns
starfa a'ð framleiðslunni.
Pétur Sveinbjarnarson, fram-
kvæmdastjóri íslenskrar iðn-
kynningar var einn af for-
ráðamönnum sýningarinnar og
átti hann hugmyndina, að opna
fatakaupstefnuna fyrir almenn-
ingi og gera hana að veglegri
sýningu. FV ræddi við hann
um aðdraganda og undirbún-
ing sýningarinnar og kostnað-
inn af slíkri sýningu.
— Hver var a'ðdragandi sýn-
ingarinnar?
— Fimmtán sinnum hafa
fatakaupstefnur verið haldnar
hér á landi, flestar lokaðar al-
menningi. Mörgum fundust
þessar fatakaupstefnur á nið-
urleið, og aðeins tóku 12 fram-
leiðendur þátt í síðustu sýn-
ingu. Á þessu iðnkynningarári
var síðan ákveðið að endur-
reisa fatakaupstefnuraar, og
hófust umræður um þetta í
samstarfshóp fataframleiðenda.
Þá lagði ég fyrir þennan sam-
starfshóp að opna fatakaup-
Pétur Sveinbjarnarson, frkvstj.
íslcnskrar iðnkynningar.
stefnuna fyrir almenningi og
gera að sýningu.
Með þessu var tekin talsverð
áhætta, áhætta fyrir fatafram-
leiðendur fjárhagslega og einn-
ig fyrir íslenska iðnkynningu,
þar sem undirbúningur undir
þetta fyrsta framkvæmdaatriði
iðnkynningarársins var svo
stuttur.
— Hvernig var undirbúningi
háttað?
— Undirbúningstíminn var
ákaflega stuttur, aðeins 4 vik-
ur. Honum má skipta í þrjá
þætti. í fyrsta lagi undirbún-
ingur undir fatakaupstefnuna,
í öðru lagi undirbúningur und-
ir hina almennu sýningu, svo
sem leiga húsnæðis, gerð starfs-
skipulags, hönnun sýningar-
svæðis o. fl. f þriðja lagi má
nefna tískusýningarnar. Strax
var ákveðið að hafa stærstu og
viðamestu tískusýningu, sem
hér hefur farið fram. Ákveð-
inn hópur fékk það verkefni
að undirbúa tískusýningarnar.
Skipuð var sýningarstjórn,
sem í áttu sæti 8 manns og
var formaður hennar Axel
Aspelund. f tískusýningar-
nefndinni voru þrjár konur, en
Pálína Jónmundsdóttir var for-
maður þeirrar nefndar. Skrif-
stofustjóri Félags ísl. iðnrek-
enda, Magnús Magnússon, var
framkvæmdastjóri sýningar-
innar, en það hefur verið föst
venja, að skrifstofustjóri FÍI
hafi séð um kaupstefnurnar.
Strax og sýnt var að sam-
staða var með að opna kaup-
stefnuna almenningi og gera
tískusýningarnar að viðamiklu
atriði setti sýningai’stjórn sér
það takmark að fá a. m. k.
30 þátttakendur á sýninguna og
tókst það, þrátt fyrir að van-
trú sumra aðila gagnvart fyrri
kaupstefnum setti strik í reikn-
inginn.
Síðan var gerð kostnaðar-
áætlun og spá um aðsókn. Átti
sýningin að standa í 5 daga og
reiknuðum við þá með 10.000
fullorðnum og 2.000 börnum.
Jafnframt reiknuðum við með
þeim möguleika að sýningin
yrði framlengd um 2 daga, og
34
FV 9 1976