Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1976, Page 45

Frjáls verslun - 01.09.1976, Page 45
Skuttogarinn Hólmatindur á siglingu af miðunum. TÍU ÁR VERKSTJÓRI f FRYSTIHÚSI F.V.: Hvað tók við þegar þú varst hættur að gera út í bili, leist þér nokkuð á að halda áfram í útgerð á þessum ár- um og var nokkuð upp úr þessu að liafa? Aðalsteinn: Á árunum fyrir og eftir 1950 var byggt nýtt hraðfrystihús á Eskifirði, og var ég ráðinn verkstjóri þar yfir sumartímann, en á vetrum varð ég að halda á vertíð til Suðurlands. Alls var ég 10 ár verkstjóri í frystihúsinu. Frysti- húsið hafði alltaf lítið hráefni og var byggt af vanefnum og misheppnað, og gekk flest á afturfótunum þann tíma sem ég var þar verkstjóri. Ég var því ekki alls kostar ánægður í verkstjórastarfinu, og lék því hugur á að fara út í útgerð á nýjan leik. Ég gekk í fyrstu á eftir mönnum um að koma með mér, og einnig sótti ég um ýmis störf sem ég fékk ekki, en lítið gerðist, þar til á árinu 1955, að Kristinn bróðir minn sem var vörubílstjóri, ákvað að ganga til liðs við mig um kaup á nýjum bát, og seldi bílinn. Erfitt var að fá leyfi til báta- kaupanna, en með góðra manna hjálp hafðist þetta allt saman og bátinn fengum, við árið 1956, 64 tonna dansk- byggðan eikarbát, sem við lét- um heita eftir föður okkar, og samtímis bátakaupunum stofn- uðum við hlutafélagið Jón Kjartansson um rekstur báts- ins. Rekstur þessa báts gekk með ágætum. Fyrsta árið var Þorsteinn Einarsson úr Garði með bátinn á vertíð í Sand- gerði og á sildveiðum, en síð- an var Böðvar Jónasson með bátinn á vertíðum frá Horna- firði, en Þorsteinn Gíslason, núverandi varafiskimálastjóri, var með bátinn á síld. Jafn- framt útgerð bátsins starfrækt- um við síldarsöltunarstöðvar á Eskifirði og Vopnafirði, og að nokkru einnig á Ólafsfirði, og á vertíðum verkuðum við afla bátsins í salt á Hornafirði. HEPPNIR MEÐ SKIPSTJÓRA F.V.: Svo rekstur Jóns Kjartanssonar h.f. hefur geng- ið vel frá upphafi? Aðalsteinn: Já, það má víst segja það. Skipstjórar þeir er við höfðum voru úrvals menn, og t. d. varð þessi tiltölulega litli bátur með aflahæstu bát- um á síldveiðum ár eftir ár undir stjórn Þorsteins Gísla- sonar, sem reyndar var skip- stjóri á skipum félagsins í fjöldamörg ár, og meðeigandi að tveimur þeirra, og vertíðirn- ar gengu einnig með ágætum. Félagið færði því fljótt út kvi- arnar, og í ársbyrjun 1960 eign- aðist það nýtt 150 lesta stál- skip, sem bar nafn móður okk- ar bræðra, og hét Guðrún Þor- kelsdóttir. Skömmu síðar var svo Jón Kjartansson seldur, en í árslok 1963 kemur nýtt 270 smálesta skip sem bar það nafn, og 1967 kaupum við svo síðasta Jón Kjartansson, áður togarann Jörund, 491 smálest að stærð. Nafni hins bátsins var þá breytt í Guðrún Þorkels- dóttir, en 150 tonna báturinn sem bar það nafn, var seldur þegar kaupin á togaranum voru ákveðin, en því skipi hafði reyndar verið breytt til nótaveiða. Guðrún Þorkelsdótt- ir var svo seld árið 1971, og heitir nú Sæberg, og er enn Hraðfrystihúsið tók til starfa á ný eftir endurhyggingu árið 1974. Myndin var þá tekin af starfsliði og stjórnendum. FV 9 1976 45

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.