Frjáls verslun - 01.09.1976, Page 57
Hvammstangi:
Brýn nauðsyn að stækka
hitaveitu staðarins
Hitaveitan frá 1973 — í haust
er fyrirsjáanlegur vatnsskortur
— A þessu sumri hefur dýpkunarskipið Hákur grafið 'uipp úr
höfninni 16000 m3 af jarðvegi, sem notaður er í gerð 7000 m-
athafnasvæðis við höfnina. Síðan er hugmyndin að lengja við-
legubryggju fyrir báta á syðri hafnargarðinum sem gerður var í
fyrra, sagði Þórður Skúlason sveitarstjóri á Hvammstanga í við-
tali við FV, um helstu framkvæmdir í byggðarlaginu.
ið í smíðum hjá okkur. Þá er-
um við að byggja kennarabú-
stað á Hvanmeyri og einnig að
innrétta hluta af nýbyggingu
skólans, svo og nýbyggingu
gagnfræðaskóla Akraness.. Við
erum ekki með mörg einbýlis-
hús í smíðum, en erum skrif-
aðir fyrir nokkrum, því eins og
víða vilja eigendur gera sem
mest sjálfir með hjálp kunn-
ingja. Þetta er vandamál hjá
iðnaðarmönnum og hefur stað-
ið byggimgariðnaðinum fyrir
þrifum í vélvæðingu. Annars
er þetta að breytast þannig að
hlutafélög eða einstaklingar
byggja upp á sinn reikning og
selja síðan.
— Er dýrt að byggja á Akra-
nesi?
— Hér er dýrt að byggja
miðað við annars staðar. íbúðir
sem við afhentum í vor og voru
fullbúnar með teppum og sam-
eign frágengin kostuðu: 2 her-
bergja, 57m- á 3,7 milljónir,
3—4 herbergja 95m2 á 5,5
milljónir og 4—5 herbergja
113m2 á 6,5 milljónir. Mér
reiknast til að þessi verð séu
svipuð og á íbúðum í Reykja-
vik, sem eru tilbúnar undir tré-
verk og seldar á almennum
markaði.
— Hvað með efniskostnað?
— Við flytjum mest alla trjá-
vöru inn sjálfir, enda rekum
við timbursölu. Við verðum
samt að selja dýrar en fyrir
sunnan, þar sem fraktin er
hærri hingað en til Reykjavík-
ur.
Að lokum sagði Stefán að
nokkur byggingarfyrirtæki,
vinnuvélaeigendur, steypustöð
og verk- og tæknifræðingar
hefðu nýlega stofnað verktaka-
fyrirtækið Berg hf.
Það var stofnað með tilliti til
verkefna á Grundartanga og
annarra stórverkefna í framtíð-
inni. Fyrsta verkefnið sem gert
var tilboð í var undirvinna fyr-
ir vinnubúðir á Grundartamga,
en aðrir aðilar voru með lægra
tilboð í þetta skipti.
Ljúka átti við smíði viðlegu-
bryggjunnar í sumar en nú er
ljóst að þær framkvæmdir
frestast til næsta sumars, þar
sem efnið er ókomið. Þessar
frEunkvæmdir voru orðnar
mjög knýjandi, enda aðstaðan
fyrir bátana mjög slæm áður
en syðri garðurinn var gerður.
Það er því mjög bagalegt að
geta ekki lokið við þær á þessu
ári, eins og til stóð. Kostnaður
við þessar framkvæmdir verð-
ur um 50 milljónir.
GATNAGERÐARFRAM-
KVÆMDIR
— Annað stærsta verkefnið
í sumar er undirbygging gatna
fyrir varanlegt slitlag og end-
umýjun holræsa og vatnslagna.
Þarna er um að ræða 500 m af
aðalgötunni, auk annarra
gatna. Vegagerðin sér um hluta
af þessum framkvæmdum og
greiðir kostnað að verulegu
leyti, vegna hraðbrautarfram-
kvæmda. Hreppurinn ver 14
milljónum til gatnagerðar, og
fær að auki 5 milljónir úr þétt-
býlisvegasjóði.
HEITAVATNSSKORTUR
— í hitaveitumálum staðar-
ins er stórvandamál framund-
an. Hitaveitan var tekin í notk-
un 1973 og strax í haust er fyr-
irsjáanlegur vatnsskortur.
Vatnið í holunum hefur minnk-
að um þriðjung og húsum
hefur fjölgað gífurlega. Ef
ekki verður gripið til skjótra
Frá Hvammstanga.
FV 9 1976
57