Frjáls verslun - 01.09.1976, Side 75
Timburverzlunin Völundur hf.
Tollamálin mjög óhagstæð
íslenzkum timburiðnaði
Framleiftir meir en 5000 innihurðir á ári
Þegar komiö er inn í Skeifuna að sunnanver'öu af Grensásvegi
er verksmiðjuhús Völundar á hægri hönd. Þar er trésmíðaverk-
stæði, hurða- og gluggaverksmiðja en hl'uti af húsnæði Völundar
hefur útgáfufélagið Árvakur á leigu fyrir prentsmiðju og af-
greiðslu Morgunblaðsins. Þarna er einnig lítill sýningarsalur og
afgreiðsla fyrir framleiðslu trésmiðjunnar.
Hurðaverksmiðja Völundar
hefur verið þarna til húsa í
rúm tvö ár en gluggaverksmiðj-
an er nýflutt. Sveinn K.
Sveinsson, forstjóri Völundar
sagði okkur, að þarna hefði
greinilega komið í ljós, hve
miklir kostir fylgdu því að hafa
svona starfsemi á einum gólf-
fleti í stað þess að dreifa 'henni
á margar hæðir. Þarna eru
smíðaðar spónlagðar innihurðir
af mörgum gerðum, um 5000
stykki á ári og gluggasmíðin
fer ört vaxandi. Völundur sér-
hæfir sig í gerð svonefndra
Carda-hverfiglugga og smíði á
gluggum eftir íslenzkum staðli.
STÖÐLUÐ GLUGGAFRAM-
LEIÐSLA
Úr vinnusal í trésmiðju Völ-
undar í Skeifunni.
ÓHAGSTÆÐIR TOLLAR
Sveinn K. Sveinsson, sagði
að peningageta almennings
virtist nikkuð takmörkuð um
þessar mundir, en samt væri
ekki beinlínis hægt að kvarta
undan verkefnaskorti. Hins
vegar sagði hann, að sam-
keppnisaðstaða við innflutning
væri slæm í þessari fram-
leiðslugrein vegna þess að toll-
ar á timbri væru hærri en á
innfluttum vörum úr timbri.
Þannig væri hægt að flytja inn
glugga og hurðir frá EFTA-
löndum á 16% tollum en toll-
urinn á timbrinu sem hráefni
er hins vegar 25V2%.
í trésmiðju Völundar í Skeif-
unni vinna um 20 manns og
sagði Sveinn að öll áherzla
væri lögð á að halda mannafla
í lágmarki. Mikil vélvæðing
hefur rutt sér til rúrns í þessari
framleiðslu og vélakosturinn
mikill og fullkominn.
Um 1000 styk'ki af Carda-
gluggum eru smíðuð á ári en
þeir henta sérstaklega vel í há-
hýsum, þar sem hægt er að
snúa þeim og hreinsa inni í í-
búðinni fyrirhafnarlaust. Á
þeim eru sérstakar öryggislæs-
ingar til að koma í veg fyrir
slys. Áætlað er að gluggarnir
eftir íslenzkum staðli geti orð-
ið 25% ódýrari en venjulegir
gluggar. Þetta byggist á því að
fjöldaframleiðsla náist. Af-
greiðslu frestur á gluggum er-
lendis er víða 6—7 vikur en
hjá Völundi er hann allt niður
í sex vikur eins og á hurðun-
um. Auk þessarar framleiðslu,
sem getið hefur verið, smíðar
Völundur og selur útihurðir,
bílskúrshurðir og verksmiðju-
hurðir.
FV 9 1976
75