Frjáls verslun - 01.09.1976, Síða 77
J.P. innréttingar
Smíða um 300 innréttingar
á ári
■ nær eingöngu stöðluð smíði
Jón Pétursson við eitt af sýningareldhúsunum, sem komið hefur
verið upp.
J.P. innréttingar var fyrsta
fyrirtækið, sem flutti inn í
Skeifuna. Það var árið I!)65,
scm fyrirtækið byrjaði í kjall-
arahúsnæði við Skeifuna 7, og
var bar starfað við almenna
innréttingasmíði í eitt og hálft
ár, uns starfsemin flutti einnig
upp á fyrstu hæðina. Nú starfa
J.P. innréttingar í 2200 m- liús-
næði, en stærstur hluti jiess
húsnæðis er trésmíðaverkstæð-
ið, sem lokið var við að ganga
frá í árslok 1974.
Jón Pétursson, sem stofnaði
fyrirtækið árið 1962 sagðist
vera mjög ánægður í Skeifunni.
Þó nokkrar verslanir hafa
sprottið upp í hverfinu og sagði
Jón að nú væri Skeifan bæði
mikið iðnaðar- og verslunar-
hverfi, sem ætti mikla framtíð
fyrir sér.
UM 260 ELDHÚSINNRÉTT
INGAR SMÍÐAÐAR Á
SÍÐASTA ÁRI
í J.P. innréttingum eru smíð-
aðar eldhúsinnréttingar, fata-
skápar, baðskápar, sólbekkir og
innihurðir, en einnig er mikið
um ýmis konar sérsmíði.
Með bættum húsnæðiskosti
var farið út í að smíða staðl-
aðar eldhúsinnréttingar og fata-
skápa, og sagði Jón að á síð-
asta ári hefðu verið smíðaðar
milli 260-70 eldhúsinnréttingar
og 200-300 fataskápar. Við
smíðina starfa 30 menn, en 4
eru á skrifstofunni.
Stöðluðu eldhúsinnrétting-
arnar eru til bæði með slétt-
um hurðum og 6 gerðir af
rammahurðum eru fáanlegar.
Vinsælustu viðartegundirnar
hafa verið hnota og lituð eik,
en einnig er smíðað úr 5 öðrum
viðai'tegundum, að sögn Jóns.
Kostirnir við staðlað J.P.
eldhús eru m. a. þeir, að hægt
er að koma einingum hagan-
lega fyrir hvort heldur sem er
í nýju eða gömlu húsnæði.
Óteljandi möguleikar eru fyrir
hendi og t. d. má fá mjög
skemmtilegar eldhúsinnrétting-
ar í gömlum stíl frá mismun-
andi tímabilum.
Fataskáparnir eru einnig
staðlaðir, en einnig hefur ver-
ið mikið um sérsmíðaða skápa.
Fataskáparnir eru ýmist keypt-
ir málaðir eða í ýmsum viðar-
tegundum.
IIELMINGUR ELDHÚSINN-
RÉTTINGANNA FER ÚT
Á LAND
Jón Pétursson teiknar inn-
réttingarnar sjálfur, og nú hef-
ur hann verið að teikna tvær
nýjar gerðir af eldhúsinnrétt-
ingum, sem fyrirhugað er að
smíða. Sagðist Jón reyna að
breyta um eldhúsinnréttingar á
hverju ári til þess að fram-
leiðslan væri ekki of einhæf.
Sagði hann, að nauðsynlegt
væri að koma með eitthvað
nýtt til þess að staðna ekki.
Verðið hefur verið mjög hag-
stætt á innróttingunum og hef-
ur það ekkert hækkað í heilt
ár. Sagði Jón það vera vegna
þess, að farið var út í staðlaða
smíði og sömuleiðis væri hann
með nýjar sjálfvirkar vélar.
Eini útsölustaðurinn á eld-
húsinnréttingunum og öðrum
framleiðsluvörum fyrirtækisins
hefur verið í Skeifunni 7, en
nú hefur verið ákveðið að opna
útsölustaði á þremur stöðum úti
á landi, í Keflavík, í Vest-
mannaeyjum og á Akureyri.
Aðeins er eftir að finna um-
boðsmenn, sem gætu tekið að
sér söluna. Sagði Jón að þetta
væri nauðsynleg tiihögun, þar
sem rúmlega helmingur eld-
húsinnréttinganna, sem smiðað-
ar eru, fara til kaupenda úti
á landi.
FV 9 1976
77