Frjáls verslun - 01.10.1976, Page 22
V-Þýzkaland:
*
Iranskeisari
kaupir sér völd
í Krupp
OPNIR BÍLAR NJÓTA
SÉRSTAKRA VINSÆLDA
Þeir, sem bezt þekkja til
markaðar fyrir notaða bíla,
segja að opnir bílar af svo til
öllum tegundum vekji mikinn
áhuga nú, þar eð verksmiðjur í
Detroit hafa hætt framleiðslu á
blæjubílum.
Sérfræðingarnir vara áhuga-
menn líka við vissum hættum í
tenigslum við kaup á gömlum
bíl. Það er t.d. oft erfitt að
selja dýrari tegundirnar, sér-
staklega þá, sem kosta 20000
dollara eða meira. Endurbætur
eru sjaldan ódýrar, geta reynd-
ar farið upp í tugi þúsunda
dollara.
Verðlag á gömlum bílum er
afarbreytilegt í Bandaríkjun-
um. Lögun bílsins, ástand,
fjöldi eintaka og fyrri eigend-
ur — allt getur þetta haft áhrif
á gangverðið. Viðurkenningar
áhugamannaklúbba 'hafa líka
sitt að segja en þeir eru núna
um 65 talsins og helga sig á-
kveðnum tegundum.
MIKILL HAGNAÐUR?
Bílasalar segja, að bílasafn-
arar geti grætt á tá og fingri.
Auðugir skemmtikraftar og
kaupsýslumenn sækjast eftir
stórum, virðulegum, gömlum
bílum í fjárfestingarskyni. En
þessir dýru bílar hafa líka fall-
ið í verði. Til dætmis var árgerð
1929 af Dusenberg Phaeton
seld fyrir 207.000 dollara á upp-
boði árið 1974. í júní í ár var
þessi sami bíll seldur á 199.000
dollara. í ágúst 1973 seldist
Mercedes Benz 1940—41, sem
herráðið þýzka hafði til afnota
á dögum Hitlers, fyrir 176.000
dollara en var sleginn á 141.000
dollara á uppboði í fyrra eftir
að bíllinn var farinn að láta
töluvert á sjá eftir sýningar-
ferð.
Það er fyrst og fremst áferð-
in á bílunum, sem segir til um
markaðsverð þeirra.
Þar af leiðandi má búast við
að fremur algengur gamall
bíll, sem er vel með farinn og
tekizt hefur að varðveita í upp-
haflegri gerð, verði seldur á
hærra verði en illa farinn forn-
gripur eins og Packard, enda
þótt safnarar sækist mjög eftir
þeirri tegund bíla.
Á undanförnum árum hefur
Iranskeisari eytt stórum hluta
olíuauðs Irans í ka,up á hluta-
bréfum í vestrænum fyrirtækj-
um. Hann hefur fjárfest á þenn-
an hátt, bæði til að ávaxta f jár-
magnið, sem fengist hefur fyrir
olíu landsins, og til að auka álit
sitt og þjóðarinnar á sviði al-
þjóðlegra fjármála.
Á dögunum keypti íranskeis-
ari stóran hlut í vestur-þýzka
stórfyrirtækinu Krupp, sem til
skamms tíma var vopnafram-
leiðandinn, sem máttur Þýzka-
lands byggðist að miklu leyti á.
Þegar kaupin voru opinberuð
sögðu fréttamenn að frum-
kvöðlar Krupp-ættarinnar
hefðu snúið sér við í gröfinni,
enda var það aldrei ætlun
þeirra að fyrirtækið færi út fyr-
ir fjölskylduböndin hvað þá út
úr Þýzkalandi. Þetta er í fyrsta
sinn í 165 ára sögu Krupp-
samsteypunnar, sem saman
stendur af 135 dótturfyrirtækj-
um í 25 löndum, að erlendu
fjármagni er á þennan hátt
hleypt inn í fyrirtækið. íran
keypti 25,01% hlutabréfa í
Krupp-samsteypunni og fær
þannig hönd í bagga með stjórn
hennar.
VESTUR-ÞJÓÐVERJAR
ÓÁNÆGÐIR
Vestur-Þjóðverjar eru sagðir
óánægðir með þessa þróun
mála. Stjórn stórfyrirtækisins
var ekki upplitsdjörf þegar
kaupin voru tilkynnt. Fulltrúi
írans í stjórn Krupps getur
haft mikil áhrif á stjórn og
stefnu samsteypunnar á kom
andi árum.
I fréttatilkynningu, sem birt
var samtímis í Hessen og Te-
heran, segir að framtíðarstefna
cg framkvæmdaáætlun Krupps
verði ákveðin sameiginlega af
stjórn Krupþs og ríkisstjórn
Írans.
ERFIÐ ÁKVÖRÐUN
Stjórnarformaður Krupp-
samsteypunnar, Berthold Beitz,
sagði að það hefði verið erfitt
fyrir sig að taka þessa mikil-
vægu ákvörðun, vegna þess að
hún væri ekki í anda fyrir-
tækisins og fram til þess hefði
ekki þótt rétt að „opna dyrnar
fyrir aðra“ — þ. e. a. s. út-
lendinga.
Krupp Foundation hefur
fram til þessa átt 100% hluta-
bréfa í samsteypunni, eða allt
frá því að síðasti fjölskyldu-
meðlimurinn lézt árið 1967, en
það var Alfried Krupp von
Bohlen und Halbach.
HLUTAFJÁRAUKNING
Hlutabréfakaup íranskeis-
ara, sem verða að fullu greidd
í lok 1978, auka hlutafé Krupps
í rúmlega 400 milljarða dala,
en það er nú sagt vera 280
milljarðar dala. Beitz, stjórnar-
formaður, hefur neitað að gefa
upp hve mikið keisarinn borg-
ar fyrir bréfin, en það er sagt
vera langt fyrir ofan nafnvero
bréfanna. Hann hefur einnig
neitað að salan hafi farið fram
til að bjarga Krupp út úr fjar-
hagsvandræðum, en á s.l. áii
nam tap samsteypunnar um
$27,8 milljörðum, svo hér var
um fundið fé að ræða.
22
FV 10 1976