Frjáls verslun - 01.10.1976, Blaðsíða 61
Stöðvarf jörður:
Hreppurinn tekur þátt
í atvinnuuppbyggingu
eftir sameiningu
fiskvinnslufyrirtækja
Sigmar Pétursson, sveitarstjóri.
ljúka við að steypa upp húsin
á þessu ári og að a.m.k. tvö
þeirra verði tilbúin til af-
hendingar á næsta ári. Ég tel
að byggingaframkvæmdir á
vegum hreppsins verði að eiga
sér stað jafnframt sem upp-
bygging á sér stað í atvinnu-
málum.
Þá höfum við gert töluverð-
ar breytingar á gömlu félags-
heimili og barnaskólanum. Á
næsta ári er síðan hugmyndin
að hefjast handa um byggingu
grunnskóla í þorpinu og á hann
að þjóna allri sveitinni. Hérað-
ið á bak við okkur er stórt, en
samtals búa á svæðinu 380
manns og ég tel að þetta sé
eitt af beztu héruðum Austur-
lands. Þá má geta þess að
bændasamtökin eru að hefja
byggingu sláturhúss í þorpinu.
FISKVINNSLUFYRIRTÆKIN
SAMEINUÐ
— Ertu ánægður ineð frani-
þróunina hér í þorpinu?
— Að mörgu leyti er ég það,
það hefur verið mikill upp-
gangur síðustu árin, en ég tel
að stöðugra hráefni vanti og
því þyrftum við að hafa eina
tvo báta með togaranum. Það
hefur verið rætt um að sam-
eina öll fiskvinnslufyrirtæki
hér og að sveitarfélagið kæmi
þá sterkt í myndina og almennr
ingi um leið gefinn kostur á að
taka þátt í rekstrinum, sagði
Sigmar að lokum.
Þegar Frjáls verzlun kom
við á Stöðvarfirði einn góð-
viðrisdaginn í sumar var víða
unnið að kappi í gatnagerð, auk
þess sem unnið var að holræsa-
gerð í þorpinu. Að sögn Sól-
mundar Jónssonar hrepps-
ncfndarfulltrúa sem gegndi
oddvitastörfum í fjarveru
Björns Kristjánssonar, þá eru
þetta hclztu framkvæmdirnar,
en eðlilega hefur verið unnið
að mörgum verkefnum sam-
hliða þessu.
OLÍUMÖL GEGNUM ÞORPIÐ
— Það er ákveðið að leggja
olíumöl á 230—300 metra kafla
á þjóðveginn gegnum þorpið
og nú þegar er búið að gróf-
undirbyggja veginn. Þegar bú-
ið verður að leggja olíumöhna
á þennan kafla, má heita að
varanlegt slitlag sé komið á
veginn gegnum Stöðvarfjörð.
Samhliða þessu verki höfum
við unnið mikið að holræsa-
gerð í sumar og nú vantar lítið
á að lokið sé við lagnir holræsa
um allt þorpið. Holræsalögnin
hefur verið mikið verk á und-
anförnum árum, en alls hefur
tekið 7 ár að leggja holræsin,
en þau voru engin fyrir hér
áður. Ennfremur hefur verið
lögð hönd á nýja vatnsveitu í
sumar og ég get fullyrt að nú
búum við vel að vatni.
— Hverjar hafa aðrar helztu
framkvæmdir verið?
— í vor var keypt hingað ný
plastsundlaug og er þegar búið
að grafa fyrir henni, það á að-
eins eftir að koma henni fyrir,
þar sem hún á að standa fyrir
neðan barnaskólann, en laugin
er röskh- 17 metrar sinnum 8
metrar á breidd. Þá er enn-
fremur verið að byggja bráða-
birgðasnyrtiaðstöðu við sund-
laugina.
— Hvert hafa börnin sótt
sundkennslu áður?
— Þau hafa alltaf orðið að
fara til Eiða og verið þar í 2—3
vikur á hverju sumri. Þetta
mun breytast frá og með næsta
vori og verður að teljast til
mikilla bóta fyrir börnin.
— Nú hefur olíumölin, sem
lögð var á vegi víða á Aust-
fjörðum fyrir þrem árum
reynst misjafnlega, hvernig
hefur hún reynst á Stöðvar-
firði?
— Við lögðum norska olíu-
möl á 1 kílómetra kafla árið
1973 og hefur hún reynst mjög
vel, sem við getum þakkað
undirbyggingu vegarins. í sum-
ar munum við ljúka við að
leggja olíumöl á allan veginn
gegnum þorpið og verður það
mikið þarfaverk að losna við
rykið, sem oft hefur legið hér
yfir. Þá höldum við áfram að
skipta um jarðveg í götum
gegnum þorpið með áfram-
haldandi olíumalarlagningu í
huga.
— Hvað er að frétta af bygg-
ingarframkvæmdum hér?
FV 10 1976
57