Frjáls verslun - 01.10.1976, Blaðsíða 77
Vindlaframleiðsla:
Ný gerð Hofnar-smá-
vindla á markaðinn
— framleiddir úr
fyrir svo til öll ökutæki. Einn-
ig er stór 'hluti sölunnar
þurrkublöð, rafgeymar, kúpl-
ingar, ljósabúnaður og vara-
hlutir í rafkerfi. Þá eru fyll-
ingarefni fyrir boddýviðgerðir
nokkuð stór liður í sölunni svo
og viðgerðarlökk í „spray
brúsum“.
NÝ SÉRPÖNTUNARDEILD
Matthías sagði að nú væri
verið að koma á sérpöntunar-
deild við fyrirtækið sem er
þýðingarmikill hður til að auka
þjónustuna við viðskiptavinina.
Ef varahlutir eru ekki fáanleg-
ir á landinu er hægt að sér-
panta þá og fá afgreiðslu er-
lendis oft innian 10—15 daga
frá pöntun. Matthías kvað
möguleika á að panta svo til
alla varahluti í fólks- og vöru-
bíla, traktora og vinnuvélar.
Einnig ýmiskonar verkfæri og
tæki t.d. bretti, stuðara, vélar-
hlífar og álíka vörur sem Bíla-
naust hefur ekki legið með á
lager.
Sala út á land er einnig stór
liður í starfseminni eru þá
seldir vara- og aukahlutir bæði
til endursöluaðila út um allt
land og einnig gegn póstkröfu
til ýmissa bifreiðaeigenda.
Nú er verið að hefja sölu á
norskum mótorhiturum, eru
þeir ætlaðir til að halda vél-
inni heitri með því að hita upp
vatnskerfið. Þetta er sérlega
hentugt, þegar frost er mikið
og ræsing véla því erfið, að
sögn Matthíasar. Hægt er að fá
klukkurofa við mótorhitarana,
sem stilla má þannig að hann
fari í gang hæfilega löngu áður
en bíllinn er ræstur á morgn-
ana og auðveldar það því gang-
setninguna.
Matthías giskaði á að nú
væru yfir 20 fyrirtæki, bæði
bílaumboð og varahlutaversl-
anir í Reykjavík, sem seldu
varahluti í bíla og sagði hann
að samkeppnin væri nokkuð
hörð í þessari grein. Hann taldi
að varahlutir væru alls ekki
dýrari hér á landi en annars
staðar í Evrópu.
Hjá Bílanaust starfa um 20
manns, en 8—10 þeirra vinna
við afgreiðslu í versluninni.
Hofnar vindlaverksmiðjan í
Hollandi hefur nú hafið fram-
leiðslu á nýrri gerð smávindla,
sem hlotið hafa nafnið WILDE
SPRIET, og eru þessir vindlar
nú komnir á markaðinn hér.
Hofnar WILDE SPRIET
vindlarnir eru nýstárlegir í út-
liti, með villtan og óskorinn
enda, framleiddir úr 100%
lauftóbaki, en Hofnar verk-
smiðjan hefur lagt ríka áherslu
á að framleiða alla vindlana úr
hreinu lauftóbaki, sem flutt er
inn til Hollands frá Indónesíu,
Kamerún, Brasilíu og Kúbu.
Seljendur hafa í huga, að
nýju WILDE SPRIET vindlarn-
ir höfði sérstaklega til ungu
kynslóðarinnar, en innflytjandi
þeirra er J.P. Guðjónsson hf. í
Reykjavík.
Hofnar vindlar eru seldir til
um 30 landa, aðallega í Evrópu,
en helstu viðskiptavinirnir eru
Norðurlöndin öll, England, ír-
land, V- og A-Þýskaland, Sviss
og Frakkland.
Hofnar vindlar hafa verið á
markaði hér í mörg ár, en
kunnasti smávindillinn frá
100% lauftóbaki
Hofnar hér á landi er Hofnar
,,Puck“, en aðrar tegundir sem
eru þekktar hér eru m.a.
Hofnar „Half-time“ og „Am-
bassador". Alls eru framleidd
yfir 20 tegundarnöfn hjá Hofn-
ar verksmiðjunni.
Samkvæmt skýrslu ÁTVR er
Hofnar „Puck“ vindillinn mest
seldur af hollenskum smávindl-
um hér, en aftur á móti í þriðja
sæti yfir mest seldu smávindla
hér á landi.
Hofnar fyrirtækið er eitt
elsta í sinni grein í Hollandi,
og eru þar einungis framleiddir
vindlar. Þegar það hóf starf-
semi sína var vindlaframleiðsla
aðeins heimilisiðnaður í Hol-
landi, en nokkrir vindlagerða-
menn unnu við þetta heima við
fyrir hina ýmsu kaupmenn.
Upphaflega voru vindlar ein-
ungis framleiddir í höndunum,
en fyrsta vindlagerðarvélin hjá
Hofnar var tekin í notkun upp
úr 1930. Nú hefur Hofnar verk-
smiðjan yfir að ráða fullkomn-
ustu vindlagerðarvélum, sem
framleiða vindla að öllu leyti í
einni lotu. Nú starfa um 650
manns að framleiðslunni hjá
Hofnar.
Nýju vindlarnir eru með óskorinn cnda.
FV 10 1976
73