Frjáls verslun - 01.10.1976, Side 79
Leðuridjan
Framleiðir
15 gerðir af seðlaveskjum
— aðallega úr geitaskinnum
Leðuriðjan hefur nú starfað
um 40 ára skeið í Reykjavík,
en fyrirtækið var stofnað 1.
september 1936. Atli R. Ólafs-
son, sem stofnaði fyrirtækið
hóf að framleiða seðlaveski og
peningabuddur til sölu á mark-
aði hér, en áður hafði hann
framleitt um nokkurt skeið leð-
urvörur fyrir móður sína í leð-
urvörudeild hennar í Hljóð-
færahúsi Reykjavíkur, sem
hún rak þá.
Hjá
Leðuriðj-
unni
starfa 13
konur að
framleiðsl-
unni.
Alla þessa tíð hefur Atli
framleitt ýmsar leðurvörur og
kom því FV að máli við hann
í tilefni af þessum tímamótum
hjá fyrirtækinu og rabbaði við
hann um reksturinn og fyrir-
tækið.
Smám saman jókst fram-
leiðslan og farið var að fram-
leiða kventöskur og einnig
framleiddi Leðuriðjan barna-
töskur, skólatöskur, skjalatösk-
ur, lyklaveski, belti, skíðatösk-
ur, tóbakspunga, greiðuhylki
og margt fleira.
20 ÞÚSUND SEÐLAVESKI
Allri annarri framleiðslu en
á seðlaveskjum og peninga-
buddum var hætt og sagði Atli,
að erfitt hefði verið að fram-
leiða margar vörutegundir fyr-
ir svona lítinn markað. Síðan
hafa nær eingöngu verið fram-
leidd seðlaveski og peninga-
buddur, en einnig er alltaf eitt-
hvað um sérpantanir.
Á þessu ári er áætlað að
framleiða um 20 þúsund seðla-
veski, en á síðasta ári fram-
leiddi Leðuriðjan um löþúsund
veski. Veskin eru seld í versl-
unum hér og sér Leðuriðjan
sjálf um dreifinguna. Einnig
hefur Leðuriðjan framleitt á-
vísanaveski fyrir alla banka og
flestalla sparisjóði á landinu.
AÐALLEGA FRAMLEITT
ÚR GEITASKINNI
Seðlaveskin eru aðallega
framleidd úr geitaskinni, sem
er flutt inn frá Bretlandi, en
einnig er nokkuð framleitt úr
kálfskinni. Um tíma framleiddi
Atli seðlaveski úr steinbítsroði,
sem var sútað hér á landi, en
þeirri framleiðslu var hætt, þar
sem skinnið nýttist svo illa.
Hráefnið til veskjafram-
leiðslunnar er dýrt og kostar
eitt geitarskinn, fullunnið og
litað um kr. 2.500. Geitarskinn-
ið er hins vegar oftast ólitað.
ATSON VÖRUMERKIÐ
Hjá Leðuriðjun-ni eru fram-
leiddar um 15 gerðir af seðla-
veskium, en varan er reyndar
miklu þekktari undir vöru-
merkinu ATSON, en þetta
vörumerki notaði Atli þegar er
fyrirtækið var stofnað. Eiga
stafirnir að tákna fyrstu tvo
og síðustu þrjá stafina í nafni
hans.
Leðuriðjan er stærsti fram-
leiðandi á seðlaveskjum hér á
landi að sögn Atla, en sam-
keppnin er ekki hörð. Seðla-
veskin eru aðallega seld sem
gjafavörur, þó sérstaklega til
f ermingargj afa.
MEIRA UNNIÐ í HÖNDUN-
UM EN í VÉLUM
Hjá Leðuriðjunni starfa 13
manns, allt konur fyrir utan
forstjórann sjálfan og fram-
kvæmdastjórinn er kona, Gyða
B. Atladóttir. Sagði Atli, að
mjög erfitt væri að fá fólk til
starfa, sem kynni vel til verka
á þessu sviði.
Mikið af framleiðslunni er
unnið í höndunum, en Atli hef-
ur tvær vélar sem sníða veskin
og hefur Atli sjálfur hannað og
smíðað flesta stansana í þessar
vélar. Einnig hefur fyrirtækið
þynningarvél sem þynnir
skinnið og nýlega fékk Leður-
iðjan vél, pressu, sem sníðir
veskin í heilu lagi. Við fram-
leiðsluna eru notaðar þrjár
saumavélar og einnig er vél
sem getur þrykkt myndir og
stafi á veskin.
FV 10 1976
75