Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1976, Qupperneq 94

Frjáls verslun - 01.10.1976, Qupperneq 94
AUGLÝSING VORLMERKIIMG HF.: Lmbúðir og vörumerkingar eru einkennisbúningar allrar framleiðslu Umbúðir eru einkennisbún- ingar allrar framleiðslu, því allar vörur þarfnast einhverr- ar merkingar svo að hægt sé að glöggva sig á þeim. Þegar komið er inn í t.d. kjörbúð blasa lím- og merkimiðarnir við á hvers konar vörum s.s. á- vaxtasafa, hreinlætisvörum, niðursuðuvörum, kjötvörum, ostum og fjölmörgu öðru. Á þessu ári eru 15 ár liðin síðan Vörumerking hf. hóf starfsemi sína, en fyrstu árin var framleiðslan að mestu leyti áprentuð límbönd, fólíur og ýmislegt annað. Smátt og smátt færðist framleiðslan meira og meira í sjálflímandi vörumiða, en framleiðsla slíkra merkimiða er ung iðngrein og aðeins eru u.þ.b. 20 ár síðan slíkir miðar fóru að ryðja sér til rúms. Vörumerking hf. er í Dals- hrauni 14 í Hafnarfirði og starfar þar í nýju og mjög hent- ugu 360 m2 húsnæði. Karl Jón- asson er framkvæmdastjóri fyrirtækisins og stofnandi þess. Við framleiðslu og prentun eru notaðar mjög fullkomnar vél- ar, en 7 manns starfa við fram- leiðsluna, bæði prentarar og sérhæft aðstoðarfólk. Allir límmiðarnir sem fram- leiddir eru hjá Vörumerkingu eru prentaðir 1 þeim litum sem verkefnið gefur til kynna og aðeins notaður viðurkenndur pappír, sem hæfir hverju verk- efni og þeim tækjum sem not- uð eru. Karl sagði, að hverju sinni þyrfti að sérhanna miða sam- kvæmt ósk viðskiptavinarins, en ekki væri mikið um staðl- aða merkimiða. Viðskiptavin- urinn getur valið um flest þau form á límmiðann, sem hann óskar, og form miðanna getur því verið nær ótakmarkað. Vörumerking hefur framleitt mest af límmiðum á hvers kon- ar vörur sem seldar eru í kjör- búðum, en auk vörumiðanna framleiðir Vörumerking hf. einnig áprentuð límbönd, var- úðarborða fyrir jarðstrengi og jarðlagnir og álfólíur fyrir inn- pökkun á lyfjatöflum, svo að eitthvað sé nefnt. Hver vörutegund þarfnast sérstakrar merkingar, sem gef- ur til kynna upplýsingar um innihald vörunnar, notkunar- reglur, geymsluþol, síðasta söludag o.fl. Oft á tíðum eru þessar merkingar háðar á- kveðnum regliun, eftir því hvort um er að ræða matvæli, hreinlætisvörur eða hættuleg efni. Ýmsar aðferðir eru notaðar við límingu miðanna á vörurn- ar, en Vörumerking er fyrst og fremst þjónustuaðili þeirra fyr- irtækja, sem pakka inn vörun- um, en þær aðferðir og tæki sem aðallega eru notuð eru handlíming, hálfsjálfvirkar vélar, sem skammta miðann upp í hendurnar á þeim sem vinnur við merkingu og loks eru notaðar alsjálfvirkar vélar, sem eru mjög hentugar fyrir stóra framleiðendur. Hefur Vörumerking hf. flutt inn slík- ar vélar frá fyrirtækinu Guhl und Scheibler AG í Sviss. Sagði Karl að lokum að möguleikarnir í litprentun væru margir, en oftast væri miðað við þrjá grunnliti, gulan, rauðan og bláan, en úr þessum litum fást flest litabrigði. Svartir og hvítir litir eru einn- ig nauðsynlegir til að ná sem bestum árangri í litprentun. 90 FV 10 1976
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.